Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 42
42 PRESSAN 18. apríl 2019
V
íða um heim er horft til
Norðurlandanna sem
fyrir myndarríkja hvað
varðar lífsgæði, jafnrétti,
öryggi, heiðarleika og ýmislegt
fleira. Norðurlöndin tróna oft á
toppi ýmissa lista og samantekta
sem eru gerðar um eitt og annað
sem viðkemur daglegu lífi fólks.
Þá telja margir að lítil mengun sé á
Norðurlöndunum, þar sé heiðar-
leiki hafður í miklum metum og
að spilling finnist næstum ekki. En
nú hefur skuggi fallið á ímyndina.
Stór bankahneyksli skekja nú
Danmörku og Svíþjóð og flest
bendir til að ekki séu öll kurl kom-
in til grafar í þeim málum.
Danske Bank, stærsti banki
Danmerkur, hefur mánuðum
saman verið í umræðunni og í
skoðun hjá yfirvöldum vegna
peningaþvættismáls sem hefur
nú þegar kostað Thomas Borgen
starfið sem aðalbankastjóri
bankans. Þá þurfti for-
maður bankaráðs að
láta af störfum eftir að
Mærsk-fjölskyldan,
sem á samnefnt skipa-
félag og ýmis önn-
ur fyrirtæki, beitti sér
innan bankans en fjöl-
skyldan á stóran hlut í
bankanum.
Í síðustu viku var
Birgitte Bonneson,
bankastjóri Swed-
bank í Svíþjóð,
síðan látin
taka
pokann sinn eftir að bankinn var
bendlaður við peningaþvætti. Þá
hefur Nordea bankinn
í Danmörku og
Svíþjóð einnig
verið til
skoðunar að
undanförnu
vegna pen-
ingaþvættis.
Milljarðar á
milljarða ofan
Mál Danske
Bank er mjög
umfangsmikið
og gæti verið eitt
stærsta pen-
ingaþvætt-
ismál
sögunnar í heiminum. Talið er
að 300 til 400 milljarðar dollara
hafi verið þvættaðir í gegnum úti-
bú bankans í Eistlandi frá 2007 til
2015. Megnið af peningunum virð-
ist hafa komið frá Rússlandi. Hér
er ekki um neinar smáupphæðir
að ræða en þær eru um tíu sinn-
um hærri en stærð eistneska hag-
kerfisins. Samt sem áður virðast
engin viðvörunarljós hafa kviknað
innan Danske Bank og það þrátt
fyrir að bæði Deutsche Bank og JP
Morgan fjárfestingarbankinn hafi
varað Danske Bank við en bank-
arnir sáu um fjármagnsfærslur
fyrir Danske Bank.
Sænska ríkisútvarpið skýrði frá
því í vetur að minnst 135 milljarð-
ar dollara hafi verið fluttir í gegn-
um útibú Swedbank í Eistlandi,
frá viðskiptavinum sem voru
flokkaðir í hæsta áhættuflokk og
bjuggu utan Eistlands, á árunum
2008 til 2018. Þetta voru aðallega
Rússar. Stór hluti af þessu fé fór á
milli reikninga í útibúum Swed-
bank og Danske Bank í Eistlandi.
Það bendir til að tengsl séu þarna
á milli. Þá skýrði Sænska ríkisút-
varpið nýlega frá því að í gegn-
um útibú Swedbank í Litháen
hafi milljónir dollara streymt af
reikningum í Úkraínu sem tengj-
ast hugsanlega fyrrverandi for-
seta landsins, Viktor Yanukovych,
sem er nú í útlegð í Rússlandi og á
ákærur fyrir landráð yfir höfði sér í
heimalandinu. Fram kom að hluti
þessa fjár hefði endað á reikning-
um sem tengjast Paul Manafort,
fyrrverandi kosningastjóra Don-
alds Trump, sem hlaut nýlega
þungan fangelsisdóm í Bandaríkj-
unum. Manafort starfaði áður fyr-
ir Yanukovych. Swedbank sætir
rannsókn bandarískra yfirvalda
fyrir villandi upplýsingagjöf. Í apríl
2016 krafði fjármálaeftirlit New
York-ríkis bankann um upplýs-
ingar um fjármagnsfærslur tengd-
ar Mossack Fonseca, hinni vel-
þekktu lögmannsstofu í Panama,
í Eystrasaltsríkjunum en fékk ekki
fullnægjandi skýringar og því er
Swedbank nú til rannsóknar þar
á bæ. Ekki bætir það stöðu Swed-
bank að ásakanir hafa komið fram
um að bankinn hafi brotið reglur
um innherjaupplýsingar með því
að láta marga hluthafa í bankan-
um vita af ásökununum um pen-
ingaþvættið.
Nordea, sem er stærsti banki
Svíþjóðar, hefur einnig verið sak-
aður um að hafa leyft pening-
um, frá vafasömum aðilum, að
renna í gegnum útibú bankans
í Eistlandi, Danmörku og Finn-
landi. Færslurnar áttu upphaf sitt í
banka í Litháen en sá er ekki starf-
andi lengur. Hluti af þessu fé er
sagður tengjast spillingarmálum
sem rússneski endurskoðandinn
Sergei Magnitsky kom upp um
í Rússlandi. Hann var barinn til
dauða í rússnesku fangelsi 2009.
Eystrasaltsríkin eru
miðpunkturinn
Öll þessi hneyksli eiga það sam-
eiginlegt að það eru útibú bank-
anna í Eystrasaltsríkjunum sem
virðast hafa verið notuð af Rúss-
um til að dæla peningum, sem var
aflað með vafasömum hætti, frá
Rússlandi og til Vesturlanda.
Nú vinna sænsk og dönsk
stjórnvöld að því að herða allt
regluverk í kringum starfsemi
banka og fjármálastofnana og
veita þeim meiri völd og úrræði til
að takast á við mál eins og þessi.
En þessi hneykslismál vekja upp
spurningar um af hverju þessir
stóru norrænu bankar voru svo
berskjaldaðir fyrir peningaþvætti.
Bent hefur verið á að í Bandaríkj-
unum sé regluverkið mun betra og
bankar og eftirlitsstofnanir betur í
stakk búnar til að takast á við slík
mál. Það sama á ekki við alls staðar
í Evrópu og það er kannski ástæða
þess að Rússar hafa komið auga
á veika hlekki í Vestur-Evrópu og
nýtt sér þá til fjármagnsflutninga
og peningaþvættis. n
20 MP
Fram myndavél
5x 12 MP
myndavél
19:916MP13MP12MP 5.8’’19:916MP13MP12MP 5.8’’ 19:916MP13MP12MP 5.8’’
IP67 Vatns
og rykheldur
Android
9 Pie
Nokia 9
PureView
HANN ER
KOMINN
Norræna bankahneykslið
Svartur blettur á orðspori Norðurlandanna „Þessi hneykslismál vekja
upp spurningar um af hverju
þessir stóru norrænu bankar voru
svo berskjaldaðir fyrir peninga-
þvætti
Danske Bank 300 til 400 milljarðar
dollara taldir þvættaðir.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Sergei Magnitsky Barinn til
dauða í rússnesku fangelsi.