Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Side 44
44 FÓKUS 18. apríl 2019
Dropi af
náttúrunni
Nýjar bragðtegundir með lífrænum kjarnaolíum
úr ferskri grænmyntu, engifer og fennil
Kaldunnin þorsklifrarolía
„Þegar kemur að
næringu og heilsu vel
ég aðeins það besta”
Andri Rúnar Bjarnason
Knattspyrnumaður Helsingborg
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
óhefðbundnar leiðir
til þess að brúka gúrku10 „Þú getur meira
að segja notað
gúrku til þess að þrífa
vaska og ryðfrítt stál
Hinn líffræðilega ávöxt og hið menningar-
lega grænmeti gúrku þekkja og nota
líklega allir Íslendingar. Við skerum hana
niður og setjum út í salat og mögulega eru
einhverjir sem skella tveimur sneiðum yfir
augun til að fríska upp á útlitið. En gúrkuna
er hægt að nota til ýmislegs annars sem
flestum hefði aldrei dottið í hug að fram-
kvæma.
Þessi græni ílangi ávöxtur er stútfullur af
vítamínum en í hverjum og einum má finna
B-vítamín (B1-2-3-5 og 6), fólin-sýru, C- vítamín,
kalk, járn, magnesíum, fosfór, kalín og sink.
Þynnkubani og sm
urefni
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Í þessa hluti má meðal annars nota gúrkuna:
1 Ef þú ert þreytt/ur seinni partinn slepptu því þá að fá þér koffíndrykk og borðaðu eina gúrku. Innihaldsefni
gúrkunnar gerir það að verkum að hún gefur þér orku
fyrir þessa síðustu klukkutíma dagsins.
2 Kemur alltaf móða á spegilinn inni á baði eftir að þú ferð í sturtu? Prófaðu að nudda gúrkusneið yfir speg-
ilinn. Hún mun eyða móðunni og gefa ferskan ilm inni
á baðherbergi.
3 Ef þú nuddar gúrkusneið á appelsínuhúð eða hrukkur þá geta innihaldsefni hennar styrkt húð þína.
4 Vilt þú sleppa við þynnkuna eða höfuðverkinn eftir djamm? Borðaðu nokkrar sneiðar af gúrku áður en þú
ferð að sofa og þú munt vakna miklu betri daginn eftir.
5 Ef þú átt það til að setjast niður fyrir framan sjónvarp-ið á kvöldin og háma í þig sælgæti eða snakk, prófaðu
þá að skipta því út fyrir gúrku. Það mun minnka sykur-
löngunina og hungurtilfinninguna sem oft leggst yfir okkur
á kvöldin.
6 Áttaðir þú þig á því þegar þú mættir í vinnuna að þú gleymdir að bursta skóna? Ekkert mál, nuddaðu nýafskorinni gúrkusneið yfir
skóna og þeir verða glansandi fínir.
7 Er ískrið í lömunum á svefnherbergishurðinni að gera þig brjál-aða/n en þú átt ekki til WD 40 til þess að bera á. Nuddaðu gúrku-
bita á lömina og heyrðu muninn.
8 Er stressið að fara með þig? Skerðu niður heila gúrku í sneiðar og settu ofan í pott ásamt vatni. Kveiktu undir pottinum og bíddu
þar til suðan kemur upp. Leyfðu vatninu að sjóða í dágóðan tíma og
finndu hvernig gufan hjálpar þér að slaka á.
9 Finnur þú fyrir andfýlu en átt ekki tyggjó? Taktu gúrkusneið og þrýstu henni upp í góm með tungunni í þrjátíu sekúndur. Það
mun eyða þeim bakteríum sem eru til staðar í munninum á þér og
valda andfýlunni.
10 Þú getur meira að segja notað gúrku til þess að þrífa vaska og ryðfrítt stál. Hún hjálpar þér að ná af blettum og þú skaðar ekki
húðina með eiturefnum.