Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 46
46 FÓKUS 18. apríl 2019
Tannhirða mikilvæg
yfir páskana
n Sykur sem kemur í klístruðu formi er verstur fyrir tennurnar n Bursta þarf
tennurnar tvisvar sinnum á dag
N
ú líður senn að páskum og
hefst þá sú hátíð sem inni-
heldur líklega hvað mesta
sælgætisátið. Það sem ein-
kennir páskana gjarnan er góð-
ur matur, sameiginleg fjölskyldu-
stund, súkkulaði og spenntir
krakkar.
Þá er mikilvægt að hafa góða
tannhirðu í huga en foreldrar
gegna lykilhlutverki í tannvernd
barna sinni. Það skiptir því miklu
máli að vita hvað er þeim fyrir
bestu svo tennur þeirra verði heil-
ar í framtíðinni.
Betra að borða allt í einu
Það er vitað mál að sykur skemm-
ir tennur. Eftir að hann kemur inn
fyrir varir okkar breyta bakteríur
í munninum honum í sýru sem
leysir upp glerunginn. Þessi sýru-
árás hefst aðeins nokkrum mínút-
um eftir neyslu sykursins og hafa
tannlæknar því ráðlagt fólki að
forðast sykurneyslu á milli mála.
Þegar kemur að tannhirðu þá
skiptir minna máli hversu mikils
sykurs er neytt, meira hve oft hans
er neytt. Því telja tannlæknar skyn-
samlegast að borða allan sykur-
skammtinn í einu frekar en að
dreifa honum yfir á marga daga.
Sykur sem kemur í klístruðu
formi, til dæmis karamellur, hlaup
og lakkrís, er verstur fyrir tennurn-
ar okkar. Hann situr lengi á þeim
og skemmir þær.
Mikilvægt að gæta hófs
Íslendingar verða seint þekktir fyr-
ir hófsemi enda eigum við það til
að taka hlutina alla leið, þar eru
páskarnir engin undantekning.
Við viljum gera vel við okkur og
kaupum okkur jafnvel nokkur
páskaegg á mann. Þrátt fyrir
að magn sykurs sé hans neytt á
skömmum tíma hafi minni áhrif á
tannhold okkar en ef við dreifum
honum á marga daga þá er það
mikilvægt heilsu okkar að reyna
eftir bestu getu að gæta hófs þegar
kemur að páskaeggjunum. Fylgj-
ast með því hvað börnin okkar eru
að láta ofan í sig og hjálpa þeim
með hreinsun tannanna. Bursta
þarf tennurnar tvisvar sinnum á
dag, bæði kvölds og morgna, með
flúortannkremi og þegar börnin
hafa borðað mikið af sælgæti þarf
sérstaklega að vanda sig. Þá þarf
að hjálpa þeim við notkun á tann-
þræði einu sinni á dag en með
honum er hægt að ná óhreinind-
um sem festast á milli tannanna.
Segja má að málshátturinn
„Allt er best í hófi“ eigi vel við á
þessum árstíma og mættu margir
breyta samkvæmt honum. n
SKRÁNING OPNAR KL. 13:00 Á LAUGARDAG
31. ÁGÚST 2019
KIA
BRONS
48 KM
KIA
GULL
106 KM
KIA
SILFUR
65 KM
Kiagullhringurinn Kiagullhringurinn #kiagull www.kiagullhringurinn.is
KIA Í SAMVINNU VIÐ FONTANA KYNNIR:
SKEMMTILEGASTA HJÓLREIÐAKEPPNI ÁRSINS
KIA GULL
2019
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is