Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 23
KYNNINGARBLAÐ 19. júlí 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Rafíþróttir Rafíþróttasamtök Íslands eða RÍSÍ eru félagasamtök sem voru upphaflega stofnuð sem hagsmunasamtök tölvuleikjaspilara og rafíþróttamanna á Íslandi. Sam­ tökin voru stofnuð fyrir um átta mánuðum og hefur fjölmargt breyst í umhverfi rafíþrótta í dag. „Við höfum náð miklum árangri í upp­ byggingu rafíþrótta á Íslandi m.a. með samstarfi við íþróttafélögin, Íþróttabandalag Reykjavíkur sem og borgarstjórn,“ segir Ólafur Hrafn Steinarsson, formaður RÍSÍ. Hann segir hlutverk RÍSÍ vera breytilegt og taka stakkaskiptum eftir þörfum samfélagsins hverju sinni. „Í augnablikinu eru stærstu tölvuleikirnir innan rafíþróttanna hátt í 20 talsins og eru fjölmargir sem hafa helgað sig spilun á þessum leikjum hérlendis. Við vinnum nú að áframhaldandi stækk­ un í íþróttinni. Við viljum halda utan um allar þessar mismunandi leikja­ greinar og ná til þeirra einstaklinga sem skara fram úr, sem og að veita þeim jákvætt, félagslegt og upp­ byggilegt umhverfi til þess að ná enn lengra. Einnig viljum við hjálpa íslenskum keppendum að taka þátt í keppnismótum erlendis, enda eigum við mjög hæfileikaríka keppendur hér á landi sem hafa verið að sýna sig og sanna á erlendri grundu. Rafíþróttir á Íslandi eru nýjar og það er mikilvægt að samtökin geti veitt þá þjónustu sem þarf að hverju sinni.“ Líkamlega og andlega hliðin Rafíþróttir er íslenska heitið yfir það sem úti í heimi er kallað Esports eða Electronic Sports. Að keppa í rafíþrótt er í grunninn það að spila tölvuleik. „En fæstir utanaðkomandi gera sér grein fyrir að rafíþróttamaðurinn gerir miklu meira en bara að spila tölvuleik. Markmið þeirra sem keppa í rafíþróttum er að gera allt sem þeir geta til þess að skara fram úr. Prófum að taka dæmi eins og fót­ bolta; bestu fótboltamenn heims spila ekki bara fótbolta allan daginn. Þeir gera ýmsar æfingar til þess að æfa ákveðna vöðva og hæfni af skilvirkni, til þess að vera í eins full­ komnu formi og hægt er, svo að þeir spili hvern leik eins vel og þeir geta. Það sama gildir með rafíþróttamenn. Þegar rafíþróttamaður er kominn út í keppnisumhverfi, þá er það ekki bara leikhæfni í tilteknum tölvuleik sem segir mest, heldur líka andlega og líkamlega hliðin.“ Rafíþróttaskólinn Rafíþróttasamtök Íslands eru í samstarfi við Rafíþróttaskólann sem hefur það á stefnuskrá sinni að búa til námskrár og æfingar og vinna eftir aðferðafræði til að skapa hæfa keppendur fyrir alþjóðleg keppnismót í rafíþróttum. „Við höfum verið mjög duglegir að vinna með bæði börnum og unglingum og búa til heilbrigt og jákvætt umhverfi fyrir þau til að æfa og stunda rafíþróttir. Dæmigerð æfingarrútína fyrir rafíþróttamann er líkamleg upphitun og teygjur til þess að koma sér í rétt hugarfar og form til þess að æfa leikhæfni. Slíkar æfingar eru nauðsynlegar til þess að draga úr hættu á ýmsum álagsmeiðslum svo sem sinaskeiðabólgu, stífum hálsi og fleiru. Þá æfir iðkandi ýmsa einangraða þætti innan hvers leiks fyrir sig inni í sérhönnuðu leikjaum­ hverfi. Þessi leið er töluvert skilvirkari, árangursríkari og heilbrigðari en að spila leiki í 12 klukkustundir samfleytt daglega í 10 ár. Einnig eru margir leikir byggðir þannig að það er spilað í liðum. Þá þarf sérstaklega að æfa samvinnu á milli liðsfélaga og margt fleira.“ Lenovo deildin Lenovo deildin er samstarfsverkefni Rafíþróttasamtaka Íslands, Lenovo á Íslandi, Vodafone, Ljósleiðar­ ans og Pringles. „Lenovo deildin er stærsta rafíþróttadeild landsins og er markmið okkar að búa til stöðugt keppnisumhverfi fyrir rafíþrótta­ iðkendur á Íslandi.“ Stærstu og vinsælustu tölvuleikirnir í dag, sem keppt er í á Íslandi, eru Counter Strike (CS), League of Legends (LoL), FIFA og Fortnite. „Rafíþróttir eru orðnar mjög vinsælt sport hér á landi og með tilkomu Lenovo deildarinnar, þar sem keppt er í CS og LoL, hefur keppnisumhverfið orðið mun faglegra og skipulagðara en áður hefur verið. Út úr þeim keppnismótum sem haldin hafa verið hér á landi hafa komið lið sem eru að sýna sig og sanna á alþjóðlegum vettvangi.“ Það geta allir verið rafíþróttamenn Í dag eru keppendur í rafíþróttum um nokkur hundruð og lang flestir iðkendur karlmenn og strákar á aldrinum 12–30 ára. „Þetta segir þó takmarkað um þann mikla fjölda fólks sem spilar tölvuleiki reglulega. Sú tala gæti hæglega hlaupið á þús­ undum og inniheldur sá hópur mjög fjölbreytta flóru af einstaklingum og samspilurum. Það geta allir verið rafíþróttamenn enda er skilgreiningin í raun sú að iðkandi spili ákveðinn tölvuleik markvisst til þess að verða betri í honum og skara fram úr. Við viljum endilega ná til breiðari hóps af bæði stelpum og konum sem og eldri spilurum,“ segir Ólafur. Fylgstu með RÍSÍ á Faebook: Rafí- þróttasamtök Íslands Rafíþróttir – Miklu meira en bara að spila tölvuleik Myndir: Ragnar Máni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.