Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 22
22 PRESSAN 19. júlí 2019 TRUMP HEFUR ALLTAF VERIÐ RASISTI n Kynþáttaníði Bandaríkjaforseta eru engin takmörk sett n Múslimabannið, Pókahontas og indjánar D onald Trump Bandaríkjaforseti komst enn og aftur í sviðsljósið um síðustu helgi þegar hann lét þau ummæli falla að fjórar þingkonur Demókra- taflokksins ættu „að fara heim“. Trump hef- ur verið sakaður um kynþáttaníð en kon- urnar fjórar, Alexandria Ocasio Cortez, Ilhan Omar, Ayanna Pressley og Rashida Tlaib, eru allar Bandaríkjamenn og aðeins ein þeirra, Omar, er fædd utan Bandaríkjanna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump lætur út úr sér hatursfull ummæli í garð annarra kynþátta en hvítra, en hér eru brot af því sem Trump hefur látið falla um hina ýmsu kynþætti. 1973 – Vildi ekki leigja svörtu fólki Þegar Trump var forstjóri fasteignafélagsins Trump Management lagði dómsmálaráðu- neytið fram kæru í tvígang vegna meintrar mismununar vegna kynþáttar. Var fyrirtæk- ið sakað um að ljúga að svörtum umsækj- endum að engar íbúðir væru lausar til leigu og að bjóða upp á mismunandi leigusamn- inga fyrir hvíta leigjendur annars vegar og svarta hins vegar. 1992 – Út með svarta Trump Plaza, hótelið og spilavíti, var sektað um tvö hundruð þúsund dollara því stjórn- endur staðarins fjarlægðu þeldökka gjafara við spilaborð ef forríkir spilarar báðu um það. Þá hafa fyrrverandi starfsmenn staðar- ins einnig sagt að Trump hafi ekki viljað sjá svart fólk þegar hann mætti á staðinn því hann sagði það latt. 1993 – Líta ekki út eins og indjánar Trump vildi opna spilavíti í Bridgeport í Connecticut og fara í samkeppni við spilavíti í eigu frumbyggja Norður-Ameríku. Um ættbálkinn á staðnum sagði hann: „Þeir líta ekki út eins og indjánar í mínum augum. Þeir líta ekki einu sinni út eins og indjánar í augum indjána.“ Þá staðhæfði hann einnig, án sannana, að mafían væri búin að taka yfir spilavíti frumbyggja. 2011 – Njósnaði um Obama Trump sendi fólk til Havaí til að rannsaka hvort Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, væri í raun fæddur á Havaí. Obama færði sönnur á fæðingarstað sinn með fæðingarvottorði. Það var ekki nóg fyrir Trump því hann vakti aft- ur máls á þessu í ræðu árið 2015 og sagð- ist hreinlega ekki vera viss um hvort Obama væri í raun frá Havaí. Ári síðar ját- aði hann sig sigraðan og viðurkenndi að Obama væri fæddur í Bandaríkjun- um og sakaði síðan Hillary Clinton um að hafa komið þessari samsæriskenningu á kreik. 2016 – „Hann er Mexíkói“ Trump gaf það í skyn að dómarinn Gonzalo Curiel, sem dæmdi í hópmálsókn gegn Trump-háskólanum, gæti ekki verið fagleg- ur í starfi því hann væri Mexíkói. Meira að segja flokksbræðrum og -systrum Trump blöskraði þessi ummæli en Trump stóð í þeirri trú að hann fengi ósanngjarna málsmeðferð út af múrnum sem hann hyggst byggja á milli Bandaríkjamanna og Mexíkóa. Þá hefur hann margoft sagt að Mexíkóar séu upp til hópa nauðgarar og glæpamenn. 2017 – Múslimabannið Eitt af stefnumálum Trump var að banna múslimum að koma til Bandaríkjanna. Múslimabannið varð að veruleika og olli það mikilli ringulreið, en bannið náði til fólks frá Íran, Írak, Líbíu, Sómalíu, Súdan, Sýrlandi og Jemen. 2017 – Fallega, kóreska konan Bandarísk kona, af kóresku bergi brot- in, settist niður með Trump og útskýrði ástandið í Pakistan fyrir forsetanum, en konan vinnur við greiningar af ýmsu tagi. Trump spurði hana ítrekað hvaðan hún væri og tók New York ekki sem gilt svar. Síð- an kallaði hann hana fallegu, kóresku kon- una og viðraði þá skoðun sína að hún ætti að einbeita sér að málefnum Norður-Kóreu vegna upprunans. 2017 – Pókahontas Trump gerði ítrekað grín að þingkonunni Elizabeth Warren því hún sagðist eiga ætt- ir að rekja til frumbyggja Norður-Ameríku. Gaf hann henni gælunafnið Pókahontas en Warren fór í erfðapróf til að sanna uppruna sinn. 2017 – Fínt fólk í Ku Klux Klan Eftir samkomu hvítra þjóðernissinna, nýnasista og meðlima Ku Klux Klan í Virginíu sagði Trump að fjölda ágætis fólks væri í þessum hópum, þrátt fyrir að nýnas- isti hefði ekið bíl inn í hóp mótmælenda með þeim afleiðingum að kona beið bana. 2018 – Skítabæli Trump sagði innflytjendur frá Afríku og Ha- ítí koma úr skítabælum. „Af hverju viljum við að allt þetta fólk frá skítabælum komi hingað?“ sagði forsetinn. „Við ættum að fá fleira fólk frá löndum eins og Noregi.“ n Ringulreið Múslimabannið svokallaða var harðlega gagnrýnt. Mynd: Getty Images Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Það sem þjálfunin færir þér: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Þú kemur hugmyndum þínum betur á framfæri og eykur áhrif þín • Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd • Jákvæðara viðhorf og minni kvíði Námskeið hefjast: 10 til 12 ára 7. ágúst 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð 10 til 12 ára 23. sept. 17.00 til 20.00 8 skipti með viku millibili 13 til 15 ára 7. ágúst 14.00 til 17.30 8 virka daga í röð 13 til 15 ára 19. sept. 17.00 til 20.30 8 skipti með viku millibili 16 til 19 ára 7. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku 16 til 19 ára 18. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili 20 til 25 ára 6. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku 20 til 25 ára 17. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili Skráðu þig í ókeypis kynningartíma á dale.is eða í síma 555 7080 Undirbúningstímabilið er að hefjast Copyright © 2019 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_070519_iceland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.