Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 22
22 PRESSAN 19. júlí 2019
TRUMP HEFUR ALLTAF VERIÐ RASISTI
n Kynþáttaníði Bandaríkjaforseta eru engin takmörk sett n Múslimabannið, Pókahontas og indjánar
D
onald Trump Bandaríkjaforseti komst
enn og aftur í sviðsljósið um síðustu
helgi þegar hann lét þau ummæli
falla að fjórar þingkonur Demókra-
taflokksins ættu „að fara heim“. Trump hef-
ur verið sakaður um kynþáttaníð en kon-
urnar fjórar, Alexandria Ocasio Cortez, Ilhan
Omar, Ayanna Pressley og Rashida Tlaib, eru
allar Bandaríkjamenn og aðeins ein þeirra,
Omar, er fædd utan Bandaríkjanna. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem Trump lætur út úr sér
hatursfull ummæli í garð annarra kynþátta
en hvítra, en hér eru brot af því sem Trump
hefur látið falla um hina ýmsu kynþætti.
1973 – Vildi ekki leigja svörtu fólki
Þegar Trump var forstjóri fasteignafélagsins
Trump Management lagði dómsmálaráðu-
neytið fram kæru í tvígang vegna meintrar
mismununar vegna kynþáttar. Var fyrirtæk-
ið sakað um að ljúga að svörtum umsækj-
endum að engar íbúðir væru lausar til leigu
og að bjóða upp á mismunandi leigusamn-
inga fyrir hvíta leigjendur annars vegar og
svarta hins vegar.
1992 – Út með svarta
Trump Plaza, hótelið og spilavíti, var sektað
um tvö hundruð þúsund dollara því stjórn-
endur staðarins fjarlægðu þeldökka gjafara
við spilaborð ef forríkir spilarar báðu um
það. Þá hafa fyrrverandi starfsmenn staðar-
ins einnig sagt að Trump hafi ekki viljað sjá
svart fólk þegar hann mætti á staðinn því
hann sagði það latt.
1993 – Líta ekki út eins og indjánar
Trump vildi opna spilavíti í Bridgeport
í Connecticut og fara í samkeppni við
spilavíti í eigu frumbyggja Norður-Ameríku.
Um ættbálkinn á staðnum sagði hann: „Þeir
líta ekki út eins og indjánar í mínum augum.
Þeir líta ekki einu sinni út eins og indjánar í
augum indjána.“ Þá staðhæfði hann einnig,
án sannana, að mafían væri búin að taka
yfir spilavíti frumbyggja.
2011 – Njósnaði um Obama
Trump sendi fólk til Havaí til að rannsaka
hvort Barack Obama, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, væri í raun fæddur á Havaí.
Obama færði sönnur á fæðingarstað sinn
með fæðingarvottorði.
Það var ekki nóg fyrir
Trump því hann vakti aft-
ur máls á þessu í ræðu
árið 2015 og sagð-
ist hreinlega ekki
vera viss um hvort
Obama væri í raun
frá Havaí. Ári síðar ját-
aði hann sig sigraðan og
viðurkenndi að Obama
væri fæddur í Bandaríkjun-
um og sakaði síðan Hillary
Clinton um að hafa komið
þessari samsæriskenningu á
kreik.
2016 – „Hann er Mexíkói“
Trump gaf það í skyn að dómarinn Gonzalo
Curiel, sem dæmdi í hópmálsókn gegn
Trump-háskólanum, gæti ekki verið fagleg-
ur í starfi því hann væri Mexíkói. Meira að
segja flokksbræðrum og -systrum Trump
blöskraði þessi ummæli en Trump stóð
í þeirri trú að hann fengi ósanngjarna
málsmeðferð út af múrnum sem hann
hyggst byggja á milli Bandaríkjamanna og
Mexíkóa. Þá hefur hann margoft sagt að
Mexíkóar séu upp til hópa nauðgarar og
glæpamenn.
2017 – Múslimabannið
Eitt af stefnumálum Trump var að banna
múslimum að koma til Bandaríkjanna.
Múslimabannið varð að veruleika og olli
það mikilli ringulreið, en bannið náði til
fólks frá Íran, Írak, Líbíu, Sómalíu, Súdan,
Sýrlandi og Jemen.
2017 – Fallega, kóreska konan
Bandarísk kona, af kóresku bergi brot-
in, settist niður með Trump og útskýrði
ástandið í Pakistan fyrir forsetanum, en
konan vinnur við greiningar af ýmsu tagi.
Trump spurði hana ítrekað hvaðan hún
væri og tók New York ekki sem gilt svar. Síð-
an kallaði hann hana fallegu, kóresku kon-
una og viðraði þá skoðun sína að hún ætti
að einbeita sér að málefnum Norður-Kóreu
vegna upprunans.
2017 – Pókahontas
Trump gerði ítrekað grín að þingkonunni
Elizabeth Warren því hún sagðist eiga ætt-
ir að rekja til frumbyggja Norður-Ameríku.
Gaf hann henni gælunafnið Pókahontas en
Warren fór í erfðapróf til að sanna uppruna
sinn.
2017 – Fínt fólk í Ku Klux Klan
Eftir samkomu hvítra þjóðernissinna,
nýnasista og meðlima Ku Klux Klan í
Virginíu sagði Trump að fjölda ágætis fólks
væri í þessum hópum, þrátt fyrir að nýnas-
isti hefði ekið bíl inn í hóp mótmælenda
með þeim afleiðingum að kona beið bana.
2018 – Skítabæli
Trump sagði innflytjendur frá Afríku og Ha-
ítí koma úr skítabælum. „Af hverju viljum
við að allt þetta fólk frá skítabælum komi
hingað?“ sagði forsetinn. „Við ættum að fá
fleira fólk frá löndum eins og Noregi.“ n
Ringulreið
Múslimabannið
svokallaða var
harðlega gagnrýnt.
Mynd: Getty
Images
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Það sem þjálfunin færir þér:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú
á eigin getu
• Þú kemur hugmyndum þínum betur á
framfæri og eykur áhrif þín
• Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og
styrkir sambönd
• Jákvæðara viðhorf og minni kvíði
Námskeið hefjast:
10 til 12 ára 7. ágúst 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð
10 til 12 ára 23. sept. 17.00 til 20.00 8 skipti með viku millibili
13 til 15 ára 7. ágúst 14.00 til 17.30 8 virka daga í röð
13 til 15 ára 19. sept. 17.00 til 20.30 8 skipti með viku millibili
16 til 19 ára 7. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
16 til 19 ára 18. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili
20 til 25 ára 6. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
20 til 25 ára 17. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili
Skráðu þig í ókeypis kynningartíma á dale.is
eða í síma 555 7080
Undirbúningstímabilið er að hefjast
Copyright © 2019 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Gen next_070519_iceland