Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 41
Rafíþróttir 19. júlí 2019 KYNNINGARBLAÐ ICEPHONE KRINGLUNNI Markmiðið er hröð og jákvæð þjónustuupplifun Fyrirtækið Icephone opnaði árið 2015 og býður upp á hraða þjónustu í símaviðgerðum á öllum símum, símafylgihluti og eldri uppgerða síma. Einnig býður fyrir- tækið upp á tölvu- og iPadviðgerðir. „Hjá Icephone er þetta spurning um að veita góða, hraða og ekki síst gegnsæja þjónustu. Okkar markmið er að viðskiptavinurinn gangi héðan út ánægður og hefur það gengið eftir alveg síðan við opnuðum, af umsögnum á Facebook og Google að dæma,“ segir Halldór S. Steinssen, framkvæmdastjóri Icephone. Slagorðið er 90 mínútna viðgerðir Snjallsímar eru viðkvæmir og al- gengt að þeir lendi í vatnsskaða eða höggskemmdum. Hvorutveggja er yfirleitt utan ábyrgðar framleið- anda. „Við fáum talsvert af slíkum tilfellum til okkar, auk þess sem við sjáum mikið af símum sem eru með slappa rafhlöðu. Margir sjá fyrir sér að vera símalausir í marga daga, jafnvel vikur þegar kemur að því að fara með símann í viðgerð. Það er allt í símanum hjá fólki í dag, vinirnir, vinnan og samfélagsmiðlarnir þannig að viðskiptavinurinn má alls ekki við því að missa tækið í marga daga. Við fórum því af stað með slagorðið 90 mínútna viðgerðir, þannig að fólk getur jafnvel sinnt erindum sínum í Kringlunni á meðan við gerum við símann. 90 mínútna viðgerðir þarf þó að panta fyrirfram. En ef við fáum til dæmis iPhone, sem þarf skjáviðgerð, inn fyrri part dags, þá erum við oftast að klára viðgerð á tækinu sama dag. Við erum mest að gera við iPhone og Samsung, enda eru það algengustu símarnir á markaðinum. Okkar markmið er að vera sneggri en hinir og reyna að klára viðgerð samdægurs eða daginn eftir.“ Ekkert skoðunargjald hjá Icephone „Við höfum tekið eftir því að viðskipta- vinir eru oft stressaðir yfir hvað viðgerð kostar. Kosturinn við okkar starfsemi er að við tökum ekkert skoðunargjald. Við tökum einfaldega við símanum, greinum hann fyrir viðskiptavininn og höfum síðan samband og segjum honum hvað sé að tækinu og hvað viðgerð muni kosta. Þá getur viðskiptavinurinn ákveðið hvort hann vill láta gera við símann eða ekki. Íhlutir eru þó oft dýrir og skjáir eru dýrir. Við notum original Samsung-íhluti, en það er meira framboð af íhlutum frá þriðja aðila í iPhone. Við erum með ágætis reynslu af okkar birgjum þannig að við treystum okkur til að bjóða sex mánaða ábyrgð á þeim íhlutum sem við notum,“ segir Halldór. Umhverfisvænn kostur „Einnig bjóðum við viðskiptavin- um, sem koma til okkar með nýlega Samsung eða iPhone-síma í skoðun vegna rafhlöðuvandamála, brotins skjás eða annarra vandamála sem getur verið kostnaðarsamt að gera við, að kaupa af þeim símana. Þá gerum við símana upp og seljum aftur. Þetta er umhverfisvænn kostur fyrir þá sem vilja kaupa notaða síma á lækkuðu verði, en hentar líka þeim sem vilja frekar kaupa sér nýjan síma en að láta gera við gamla símann. Við erum mörg hver svolítið gíruð í að vera alltaf með nýjustu týpuna þó að ekkert sé að eldri símanum, en með þessu höldum við símanum lengur í notkun. Uppgerðu símunum fylgir 6 mánaða ábyrgð.“ Ýmsir símafylgihlutir til sölu Icephone selur einnig fylgihluti fyrir síma. „Við seljum hulstur, skjáfilmur, hleðslutæki, fyrirframgreidd símakort, vatnshelda poka, höggvarnarsnúrur og margt fleira. Auk þess erum við með Popsocket, sem er mjög vinsælt í dag, en það er sett aftan á símann til að halda betur á honum eða tylla honum á borð,“ segir Halldór. Nánari upplýsingar má finna á icephone.is Icephone er staðsett í Kringlunni á bíóganginum og verkstæðið er á þriðju hæð Sími: 546-5444 Opnunartími er frá kl. 10–18 alla daga nema sunnudaga Facebooksíða: IcePhone Viðgerðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.