Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 16
16 19. júlí 2019FRÉTTIR É g reikna ekki með því,“ sagði Gunnar Rúnar Sigurþórsson er blaðamaður DV gekk að honum fyrir utan áfanga­ heimili Verndar að Laugateigi 19 og falaðist eftir viðtali. Gunnar var þá að stíga út úr bíl sínum við ann­ an mann, laust fyrir klukkan níu á þriðjudagskvöldið, rétt áður en útivistartíma fanga sem dvelja að Vernd lýkur. „En væri þú til í að svara einni spurningu?“ spurði blaðamaður þá. „Nei,“ sagði Gunnar og gekk inn í húsið. Útlit fólks kann að vera smekks­ atriði en blaðamaður fullyrðir þó að Gunnar líti mun betur út en árið 2009 þegar hann birti í frægu myndbandi á Youtube ástarjátn­ ingu sína til Hildar. Hann lítur líka mun betur út núna en á ljósmynd­ um sem teknar voru af honum eft­ ir morðið á Hannesi Helgasyni og í tengslum við réttarhöld yfir hon­ um á árunum 2010 og 2011. Þetta þriðjudagskvöld, um miðjan júlí, var Gunnar klæddur í snotra, prjónaða peysu, vatterað vesti og íþróttabuxur. Hann var hreinn og snyrtilegur. Rautt hár­ ið snöggklippt en ekki snoðað. Hann var með gleraugu með þunnri umgjörð. Þess skal einnig getið að Gunnar var engan veg­ inn óvinsamlegur við blaðamann þrátt fyrir að afþakka viðtal og þó að ávarpið kæmi honum eðlilega á óvart virtist honum ekki ýkja mik­ ið brugðið. Gunnar, sem varð Hannesi Helgasyni að bana með afar kaldrifjuðum og hrottafullum hætti árið 2010, hefur ekki lokið afplánun. Hann hefur ekki einu sinni lokið lágmarksafplánun af dómi sínum, sem er tveir þriðju af dómi í þeim brotaflokki sem afbrot hans fellur undir. Fréttir þess efnis að Gunnar sé skráður á stefnumótaforritið Tinder hafa vakið mikla athygli og umræður um réttmæti þess að fangar með jafn alvarleg afbrot á samviskunni og hér um ræðir geti átt kost á öðr­ um afplánunarúrræðum en fang­ elsi. Í vor bárust fjölmiðlum ábendingar um að sæist til Gunnars á ferli í Hafnarfirði. Þær sögur fengust aldrei staðfestar. DV hafði þá samband við Pál Win­ kel, forstjóra Fangelsismálastofn­ unar, sem tjáði DV að fangar með afbrot á borð við þetta á bakinu þyrftu að afplána tvo þriðju hluta af dómi í það minnsta. Hins vegar væru alls konar úrræði í boði til að afplána utan fangelsis að hluta fyrir fanga sem sýndu af sér fyrir­ myndarhegðun. Páll sagðist þá hafa góðan skilning á því að fólki væri illa við að sjá á ferli dæmda morðingja sem ekki væru búnir að afplána dóm, en þarna væru að vegast á ólíkir hagsmunir, því úr­ ræði á borð við til dæmis ökkla­ band eða dagleyfi úr fangelsi gætu verið hluti af betrun og aðlögun manna út í samfélagið. Vekur ótta fólks Hér vegast á hagsmunir um betr­ un fanga annars vegar og rétt eft­ irlifenda til að þurfa ekki að mæta morðingja ástvinar síns á förnum vegi hins vegar. Raunar var glæp­ ur Gunnars Rúnars svo sérstak­ lega kaldrifjaður, óvenjulegur og hrottafullur, að margir óttast manninn þó að þeir þekki ekki til hans og lesendur sem sent hafa DV ábendingar um að til hans hafi sést á almannafæri, til dæmis í verslunum (óstaðfestar ábendingar, vel að merkja, og án sönnunargagna) hafa lýst yfir ótta við að vera í návist hans. Gunnar hefur aðsetur á áfanga­ heimili Verndar, í reisulegu húsi að Laugateigi 19. Á heimasíðu Fangelsismálastofnunar segir svo um skilyrði afplánunar á áfanga­ heimili Verndar: „Afplánun á áfangaheimili, skv. 31. gr. laga um fullnustu refsinga, felur í sér afplánun hluta fang- elsisrefsingar utan fangelsis, þar sem viðkomandi dvelur á sérstakri stofnun eða heimili og er þar undir eftirliti. Áfangaheimili Verndar er það áfangaheimili sem Fangelsis- málastofnun hefur gert samkomu- lag við og langflestir dómþolar sem uppfylla skilyrði afplána á. Fangi skal dvelja á áfangaheimil- inu milli kl. 23:00–07:00 alla daga vikunnar, að auki skal hann vera á heimilinu milli kl. 18:00–19:00 á virkum dögum og skal hann fylgja öllum húsreglum sem þar gilda. Jafnframt ber fanga að stunda vinnu, nám, starfsþjálfun eða meðferð sem forsvarsmenn Vernd- ar hafa samþykkt.“ Við þetta er að bæta að DV hef­ ur heimildir fyrir því að fangar á Vernd eigi að vera komnir í hús fyrir klukkan níu á kvöldum virkra daga en klukkan ellefu um helgar. Af framangreindu er ljóst að Gunnar hefur ríflegan tíma utan áfangaheimilisins sem hann getur nýtt að vild. Er því ekki að undra að fólk telji sig hafa orðið vart við hann. Gunnar ekur um á silfurgráum Suzuki SX4, árgerð 2010. Þrátt fyrir nokkuð háan aldur lítur bíllinn vel út og er með skoðun. Bíllinn er í eigu rúmlega fimmtugrar móður Gunnars. Gunnar hefur lögheim­ ili hjá móður sinni að Klapparholti 6 í Hafnarfirði og þangað virðist hann venja komur sínar reglulega. Á heimilinu býr einnig yngri bróð­ ir Gunnars sem er fatlaður. Sjálfur er Gunnar fæddur árið 1987. Gunnar starfar í fatasöfnunar­ deild Rauða kross Íslands. Mynd­ ir af Gunnari að störfum þar fylgja fréttinni. Faðir Gunnars svipti sig lífi að honum viðstöddum Faðir Gunnars, Sigurþór, fæddur árið 1962, framdi sjálfsvíg árið 1996 á heimili sínu. Það gerði hann í viðurvist Gunnars sem var aðeins níu ára gamall. Feðgarnir munu hafa verið mjög nánir og eins og nærri má um geta var atburður­ inn Gunnari gífurlegt áfall. Gunn­ ar er sagður hafa orðið félagslega Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum SVEFNSÓFI PIU YARIS SVEFNSÓFI Verð nú 369.900 kr. Verð nú 154.900 kr. DÆMDUR MORÐINGI EN LIFIR AÐ MIKLU LEYTI EINS OG FRJÁLS MAÐUR n Gunnar vinnur hjá Rauða krossinum n Afþakkaði kurteislega viðtal við DV n Heimsækir fjölskyldu sína reglulega og hefur afnot af bíl Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Helgi í Góu. Mynd af syni hans, Hannesi, í ramma í baksýn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.