Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 16
16 19. júlí 2019FRÉTTIR
É
g reikna ekki með því,“ sagði
Gunnar Rúnar Sigurþórsson
er blaðamaður DV gekk að
honum fyrir utan áfanga
heimili Verndar að Laugateigi 19
og falaðist eftir viðtali. Gunnar var
þá að stíga út úr bíl sínum við ann
an mann, laust fyrir klukkan níu
á þriðjudagskvöldið, rétt áður en
útivistartíma fanga sem dvelja að
Vernd lýkur. „En væri þú til í að
svara einni spurningu?“ spurði
blaðamaður þá. „Nei,“ sagði
Gunnar og gekk inn í húsið.
Útlit fólks kann að vera smekks
atriði en blaðamaður fullyrðir þó
að Gunnar líti mun betur út en
árið 2009 þegar hann birti í frægu
myndbandi á Youtube ástarjátn
ingu sína til Hildar. Hann lítur líka
mun betur út núna en á ljósmynd
um sem teknar voru af honum eft
ir morðið á Hannesi Helgasyni og
í tengslum við réttarhöld yfir hon
um á árunum 2010 og 2011.
Þetta þriðjudagskvöld, um
miðjan júlí, var Gunnar klæddur
í snotra, prjónaða peysu, vatterað
vesti og íþróttabuxur. Hann var
hreinn og snyrtilegur. Rautt hár
ið snöggklippt en ekki snoðað.
Hann var með gleraugu með
þunnri umgjörð. Þess skal einnig
getið að Gunnar var engan veg
inn óvinsamlegur við blaðamann
þrátt fyrir að afþakka viðtal og þó
að ávarpið kæmi honum eðlilega á
óvart virtist honum ekki ýkja mik
ið brugðið.
Gunnar, sem varð Hannesi
Helgasyni að bana með afar
kaldrifjuðum og hrottafullum
hætti árið 2010, hefur ekki lokið
afplánun. Hann hefur ekki einu
sinni lokið lágmarksafplánun af
dómi sínum, sem er tveir þriðju
af dómi í þeim brotaflokki sem
afbrot hans fellur undir. Fréttir
þess efnis að Gunnar sé skráður
á stefnumótaforritið Tinder hafa
vakið mikla athygli og umræður
um réttmæti þess að fangar með
jafn alvarleg afbrot á samviskunni
og hér um ræðir geti átt kost á öðr
um afplánunarúrræðum en fang
elsi.
Í vor bárust fjölmiðlum
ábendingar um að sæist til
Gunnars á ferli í Hafnarfirði. Þær
sögur fengust aldrei staðfestar.
DV hafði þá samband við Pál Win
kel, forstjóra Fangelsismálastofn
unar, sem tjáði DV að fangar með
afbrot á borð við þetta á bakinu
þyrftu að afplána tvo þriðju hluta
af dómi í það minnsta. Hins vegar
væru alls konar úrræði í boði til
að afplána utan fangelsis að hluta
fyrir fanga sem sýndu af sér fyrir
myndarhegðun. Páll sagðist þá
hafa góðan skilning á því að fólki
væri illa við að sjá á ferli dæmda
morðingja sem ekki væru búnir
að afplána dóm, en þarna væru að
vegast á ólíkir hagsmunir, því úr
ræði á borð við til dæmis ökkla
band eða dagleyfi úr fangelsi gætu
verið hluti af betrun og aðlögun
manna út í samfélagið.
Vekur ótta fólks
Hér vegast á hagsmunir um betr
un fanga annars vegar og rétt eft
irlifenda til að þurfa ekki að mæta
morðingja ástvinar síns á förnum
vegi hins vegar. Raunar var glæp
ur Gunnars Rúnars svo sérstak
lega kaldrifjaður, óvenjulegur
og hrottafullur, að margir óttast
manninn þó að þeir þekki ekki
til hans og lesendur sem sent
hafa DV ábendingar um að til
hans hafi sést á almannafæri, til
dæmis í verslunum (óstaðfestar
ábendingar, vel að merkja, og án
sönnunargagna) hafa lýst yfir ótta
við að vera í návist hans.
Gunnar hefur aðsetur á áfanga
heimili Verndar, í reisulegu húsi
að Laugateigi 19. Á heimasíðu
Fangelsismálastofnunar segir svo
um skilyrði afplánunar á áfanga
heimili Verndar:
„Afplánun á áfangaheimili, skv.
31. gr. laga um fullnustu refsinga,
felur í sér afplánun hluta fang-
elsisrefsingar utan fangelsis, þar
sem viðkomandi dvelur á sérstakri
stofnun eða heimili og er þar undir
eftirliti. Áfangaheimili Verndar er
það áfangaheimili sem Fangelsis-
málastofnun hefur gert samkomu-
lag við og langflestir dómþolar
sem uppfylla skilyrði afplána á.
Fangi skal dvelja á áfangaheimil-
inu milli kl. 23:00–07:00 alla daga
vikunnar, að auki skal hann vera
á heimilinu milli kl. 18:00–19:00 á
virkum dögum og skal hann fylgja
öllum húsreglum sem þar gilda.
Jafnframt ber fanga að stunda
vinnu, nám, starfsþjálfun eða
meðferð sem forsvarsmenn Vernd-
ar hafa samþykkt.“
Við þetta er að bæta að DV hef
ur heimildir fyrir því að fangar á
Vernd eigi að vera komnir í hús
fyrir klukkan níu á kvöldum virkra
daga en klukkan ellefu um helgar.
Af framangreindu er ljóst að
Gunnar hefur ríflegan tíma utan
áfangaheimilisins sem hann getur
nýtt að vild. Er því ekki að undra
að fólk telji sig hafa orðið vart við
hann.
Gunnar ekur um á silfurgráum
Suzuki SX4, árgerð 2010. Þrátt fyrir
nokkuð háan aldur lítur bíllinn vel
út og er með skoðun. Bíllinn er í
eigu rúmlega fimmtugrar móður
Gunnars. Gunnar hefur lögheim
ili hjá móður sinni að Klapparholti
6 í Hafnarfirði og þangað virðist
hann venja komur sínar reglulega.
Á heimilinu býr einnig yngri bróð
ir Gunnars sem er fatlaður. Sjálfur
er Gunnar fæddur árið 1987.
Gunnar starfar í fatasöfnunar
deild Rauða kross Íslands. Mynd
ir af Gunnari að störfum þar fylgja
fréttinni.
Faðir Gunnars svipti sig lífi að
honum viðstöddum
Faðir Gunnars, Sigurþór, fæddur
árið 1962, framdi sjálfsvíg árið
1996 á heimili sínu. Það gerði hann
í viðurvist Gunnars sem var aðeins
níu ára gamall. Feðgarnir munu
hafa verið mjög nánir og eins og
nærri má um geta var atburður
inn Gunnari gífurlegt áfall. Gunn
ar er sagður hafa orðið félagslega Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
SVEFNSÓFI PIU YARIS SVEFNSÓFI
Verð nú 369.900 kr. Verð nú 154.900 kr.
DÆMDUR MORÐINGI EN LIFIR AÐ
MIKLU LEYTI EINS OG FRJÁLS MAÐUR
n Gunnar vinnur hjá Rauða krossinum n Afþakkaði kurteislega viðtal við DV n Heimsækir fjölskyldu sína reglulega og hefur afnot af bíl
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is
Helgi í Góu. Mynd af syni hans,
Hannesi, í ramma í baksýn.