Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 48
 19. júlí 2019FÓKUS48 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt „Það er freistandi að þiggja far, en ég sleppi því“ K olbeinn Þór Kolbeinsson setti sér það markmið fyrir sumarið 2019 að ganga hringveginn á 30 dögum. Hann ákvað að nýta ferðina til góðs og styrkja gott málefni um leið og urðu Samferða góðgerðar- samtök fyrir valinu. „Ég var mótiveraður af því að fylgjast með þeim einstaklingum sem hafa verið að ganga suður- skautið og annað og hlusta á viðtöl við þá,“ segir Kolbeinn, sem verð- ur 22 ára í september, en þegar blaðamaður hringir í Kolbein er hann að nálgast Egilsstaði. Kolbeinn lagði af stað 1. júlí og hyggst ganga hringveginn á 30 dögum. „Ég fór norðurleiðina, þetta er búið að ganga mjög vel. Það var einn dagur sem ég gat ekki gengið, þar sem ég var kominn með svo miklar blöðrur undir fæt- urnar og gat ekki stigið niður. Ég hef náð að halda mig við áætlun sem er 45 kílómetrar á dag. Ég hef aldrei gert neitt svona áður og er aðallega að ganga hringinn fyrir sjálfan mig og ákvað síðan að styrkja einhver góð- gerðarsamtök í leiðinni. Ég leit- aði að góðgerðarsamtökum á netinu og Samferða kom upp og mér leist vel á það félag. Mér finnst flott hvernig þau vinna,“ segir Kol- beinn, sem segist ekki þekkja neinn sem notið hefur styrkja frá Samferða. Kolbeinn er ekki óvanur því að hreyfa sig, hann er að æfa am- erískan fótbolta og æfði fimleika frá tíu ára aldri og var í landsliðinu í hópfimleikum árið 2014. Hann varð stúdent frá Fjölbrautaskóla Garðabæjar árið 2017 og vinnur í dag á lagernum hjá Tengi. Útilegastur „Það fer allt sumarfríið mitt í gönguna,“ segir Kolbeinn. „Ég fer á þjóðhátíð,“ bætir hann við að- spurður hvort hann ætli að verð- launa sig að göngu lokinni. Veðrið hefur svo sannarlega leikið við Kolbein á göngunni. „Ég hef verið heppinn með veður, hef fengið 2–3 rigningardaga,“ seg- ir hann, og bætir við að hann gisti aðallega í tjaldi en njóti þess þegar hann kemur í bæi að gista á hóteli. Er fólk ekkert að stoppa fyrir þér og bjóða þér far? „Jú, og það er freistandi að þiggja farið, en maður verður að sleppa því.“ Þar sem áætlunin er stíf segist Kolbeinn ekki ná að njóta margs á göngunni eða hafi tíma til að skoða landið. „Þetta er svo mikið að ég er eiginlega bara að ganga og sofa, ganga og sofa. Það hafa allir tekið mér mjög vel og það sýna mér allir mjög mikinn stuðning, ég held að ég sé kominn með um 200 þúsund í styrki sem er bara geggjað, ég er að vonast til að safna 300 þúsundum.“ n Fylgjast má með Kolbeini á Instagram: kollihawt og á hring- ferdin.com. Viljir þú styrkja Kolbein og Samferða þá er reikning- ur 0370-13-005770 og kennitala 2409972079. Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is n Kolbeinn gengur hringveginn á þrjátíu dögum n Styrkir gott málefni um leið S amferða góðgerðarsamtök voru stofnuð í nóvember 2016 og eru fimm einstak- lingar sem skipa stjórn samtakanna. „Við í stjórninni deilum sömu áherslum og fram- tíðarsýn, það er að við vinnum af hugsjón í 100 prósent sjálfboða- liðavinnu. Engin yfirbygging eða kostnaður, hver einasta króna fer á þann stað sem hún á að fara á. Deloitte sér til þess að allt bók- hald sé til fyrirmyndar og uppi á borðinu,“ segir Rútur Snorra- son.Stjórn samtakanna hittist í hverjum mánuði og úthlutar styrkjum til fólks sem henni ber- ast góðar ábendingar um. Bæði þar sem langveik börn eiga í hlut og svo fólk á öllum aldri sem er að glíma við lífsógnandi sjúk- dóma. Mest er þetta unnið eftir ábendingum frá fólki um land allt og einnig frá Ragnheiði hjá Krafti (ungt fólk með krabbamein), Ljósinu og Krabbameinsfélaginu, svo eitthvað sé nefnt. Sú breyting varð á í ár að aðeins verður tekið á móti ábendingum og þeir ein- ir munu fá styrk sem hafa ekki fengið styrk áður frá Samferða. Samferða er á Facebook: Sam- ferða góðgerðarsamtök og tekið er á móti öllum góðum ábending- um á netfangi Samferða: godgerdarsamtokin@gmail.com. „Markmið okkar er og verður að gera þau atriði og þá þætti, er snúa að góðgerðarmálum, rétt og vel. Í leiðinni skapa trú og traust almennings í landinu á okkar starfi, því ekki er vanþörf á. Umfram allt – hjálpa og aðstoða þá er minna mega sín, sem því miður er svo sannarlega ábóta- vant um allt land.“ Samferða góð- gerðarsamtök
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.