Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Blaðsíða 24
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ Lansetrið G-Zero Gaming hefur frá upphafi verið stór hluti af tölvuleikjasenunni síðan það var opnað vorið 2002 á Ingólfstorgi þá undir nafninu Ground-Zero. „Við opn- uðum fyrst með 24 PC tölvur túpu- skjái og kúlumýs. Átta árum síðar var húsnæðið nánast sprungið með 56 PC tölvur. Þá fluttum við að Frakka- stíg 8. Það húsnæði varð fljótlega breytingum að bráð eins og hálfur miðbærinn. Í dag erum við svo staðsett að Grensásvegi 16, en þangað fluttum við árið 2015 í glæsilegt húsnæði með næg bílastæði og settum þar upp fimm nýja sali, hvern með sitt þema. Við erum nú með 82 PC leikja- tölvur með 144 hz Benq skjám, Sades leikjaheyrnartólum, Sharkoon vélvirk lyklaborð og Logitech leikjamúsum. Við höfum alltaf keppst við að halda verðskránni niðri. Fólk kemur því jafnvel oftar og dvelur lengur án þess að líða eins og á stöðumælataxta í 101. Þannig erum við t.d. með tilboð til 16:00 á daginn sem ekki hefur breyst í 6 ár, eða 800 kr fyrir 2 tíma og 1.000 kr fyrir þrjá klukkutíma,“ segir Sigurður Jónsson hjá G-Zero. „Elko Zetustofan er vinsæl nýjung í afþreyingu hjá okkur, en hún var sett upp í samstarfi við Elko, þar erum við með PS4 leikjatölvur með 65 tommu skjáum og höfum við nú þegar haldið þar nokkur smærri mót í FIFA og fleiri leikjum. Þar er einnig 135 tommu myndvarpi sem nýttur er m.a. til að sýna beint frá rafíþróttamótum og við kennslu rafíþrótta. Hægt er að taka frá Zetustofuna fyrir ýmis tilefni gegn vægu verði. Önnur skemmtileg nýjung er „The Arena“ en það er í raun og veru þægileg borðstofa með leður- klæddu borði og stólum sem ætluð er fyrir borðspil o.þ.h., fyrir allt að 8–10 manns.“ Frábær afþreying fyrir hópa Á G-Zero hafa verið haldin fjöl- mörg mót og viðburðir tengdir tölvuleikjum á liðnum árum, allt frá sérstökum kvennakvöldum til barnaafmæla og hópeflis fyrirtækja og skóla. Viðskiptavinir G-Zero eru afar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri. „Hingað koma vinahópar og einstaklingar, að jafnaði á aldrinum 12–35+, þeir yngri meira yfir daginn að sjálfsögðu. Og gaman er frá því að segja að sumir viðskiptavina okkar hafa fylgt okkur alveg frá byrjun enda hefur myndast þarna mjög góður félagsskapur í gegnum árin. Þá koma fyrirtækjahópar til okkar reglulega og spila saman. Sömuleiðis er vin- sælt að halda steggjapartí hjá okkur sem og afmælisteiti. Þá erum við með sérstaka afmælispakka þar sem hópar eru hér í tvær til þrjár klukku- stundir, fá pítsu og drykki og spila svo tölvuleiki að eigin vali. Þetta er mjög þægileg og skemmtileg afþreying fyr- ir hópa og vinsælt hjá yngri sem eldri og allir skemmta sér konunglega í svona afmælisteitum. Það skiptir ekki máli hvað þú ert gamall, tölvuleikir eru alltaf skemmtilegir.“ Á tánum varðandi tæknina Tækninni fleygir hratt fram og nýir leikir eru sífellt að koma út. „Við erum alltaf á tánum varðandi nýja tækni og gætum þess að þróast samhliða. Við erum að setja upp nýtt VR svæði með tveimur slíkum vélum. Á næst- unni er á dagskrá að stækka tölvu- skjána upp í 27 tommur og stækka sömuleiðis músasvæðið til að mæta kröfum varðandi skotleiki. Við erum með yfir 200 tölvuleiki í gagnagrunni okkar og þar erum við að sjálfsögðu með alla þessa helstu eins og CS:GO, LOL, FIFA, Fortnite, PUBG, Rocket League o.fl. o.fl. Við bætum reglulega nýjum leikjum í safnið eftir vinsældum og óskum. Þá er á döfinni nú í haust að taka þátt í rafíþróttabyltingunni með spennandi samstarfi við Glímufélagið Ármann og Rafíþróttaskólann með námskeið fyrir krakka á aldrinum 10–12 ára og 14–16 ára sem hyggjast leggja stund á og iðka rafíþróttir á uppbyggilegan hátt undir öflugri leiðsögn Rafíþróttaskól- ans í öruggu og hvetjandi umhverfi á G-Zero Gaming Grensásvegi 16.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu G-Zero, gzero.is Grensásvegur 16, 108 Reykjavík Sími: 869-1144 Fylgstu með G-Zero á samfélags- miðlum. Facebook: Gzero Gaming Instagram: Gzero Gaming Það er alltaf gaman að spila tölvuleiki G-ZERO: Myndir: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.