Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Side 24
Rafíþróttir 19. júlí 2019KYNNINGARBLAÐ
Lansetrið G-Zero Gaming hefur frá upphafi verið stór hluti af tölvuleikjasenunni síðan það var
opnað vorið 2002 á Ingólfstorgi þá
undir nafninu Ground-Zero. „Við opn-
uðum fyrst með 24 PC tölvur túpu-
skjái og kúlumýs. Átta árum síðar var
húsnæðið nánast sprungið með 56
PC tölvur. Þá fluttum við að Frakka-
stíg 8. Það húsnæði varð fljótlega
breytingum að bráð eins og hálfur
miðbærinn.
Í dag erum við svo staðsett að
Grensásvegi 16, en þangað fluttum
við árið 2015 í glæsilegt húsnæði
með næg bílastæði og settum þar
upp fimm nýja sali, hvern með sitt
þema. Við erum nú með 82 PC leikja-
tölvur með 144 hz Benq skjám, Sades
leikjaheyrnartólum, Sharkoon vélvirk
lyklaborð og Logitech leikjamúsum.
Við höfum alltaf keppst við að halda
verðskránni niðri. Fólk kemur því
jafnvel oftar og dvelur lengur án þess
að líða eins og á stöðumælataxta í
101. Þannig erum við t.d. með tilboð til
16:00 á daginn sem ekki hefur breyst í
6 ár, eða 800 kr fyrir 2 tíma og 1.000
kr fyrir þrjá klukkutíma,“ segir Sigurður
Jónsson hjá G-Zero.
„Elko Zetustofan er vinsæl nýjung í
afþreyingu hjá okkur, en hún var sett
upp í samstarfi við Elko, þar erum við
með PS4 leikjatölvur með 65 tommu
skjáum og höfum við nú þegar haldið
þar nokkur smærri mót í FIFA og fleiri
leikjum. Þar er einnig 135 tommu
myndvarpi sem nýttur er m.a. til að
sýna beint frá rafíþróttamótum og við
kennslu rafíþrótta. Hægt er að taka
frá Zetustofuna fyrir ýmis tilefni gegn
vægu verði. Önnur skemmtileg nýjung
er „The Arena“ en það er í raun og
veru þægileg borðstofa með leður-
klæddu borði og stólum sem ætluð er
fyrir borðspil o.þ.h., fyrir allt að 8–10
manns.“
Frábær afþreying fyrir hópa
Á G-Zero hafa verið haldin fjöl-
mörg mót og viðburðir tengdir
tölvuleikjum á liðnum árum, allt
frá sérstökum kvennakvöldum til
barnaafmæla og hópeflis fyrirtækja
og skóla. Viðskiptavinir G-Zero eru
afar fjölbreyttur hópur fólks á öllum
aldri. „Hingað koma vinahópar og
einstaklingar, að jafnaði á aldrinum
12–35+, þeir yngri meira yfir daginn
að sjálfsögðu. Og gaman er frá því
að segja að sumir viðskiptavina okkar
hafa fylgt okkur alveg frá byrjun enda
hefur myndast þarna mjög góður
félagsskapur í gegnum árin. Þá koma
fyrirtækjahópar til okkar reglulega
og spila saman. Sömuleiðis er vin-
sælt að halda steggjapartí hjá okkur
sem og afmælisteiti. Þá erum við
með sérstaka afmælispakka þar sem
hópar eru hér í tvær til þrjár klukku-
stundir, fá pítsu og drykki og spila svo
tölvuleiki að eigin vali. Þetta er mjög
þægileg og skemmtileg afþreying fyr-
ir hópa og vinsælt hjá yngri sem eldri
og allir skemmta sér konunglega í
svona afmælisteitum. Það skiptir ekki
máli hvað þú ert gamall, tölvuleikir
eru alltaf skemmtilegir.“
Á tánum varðandi tæknina
Tækninni fleygir hratt fram og nýir
leikir eru sífellt að koma út. „Við erum
alltaf á tánum varðandi nýja tækni
og gætum þess að þróast samhliða.
Við erum að setja upp nýtt VR svæði
með tveimur slíkum vélum. Á næst-
unni er á dagskrá að stækka tölvu-
skjána upp í 27 tommur og stækka
sömuleiðis músasvæðið til að mæta
kröfum varðandi skotleiki. Við erum
með yfir 200 tölvuleiki í gagnagrunni
okkar og þar erum við að sjálfsögðu
með alla þessa helstu eins og CS:GO,
LOL, FIFA, Fortnite, PUBG, Rocket
League o.fl. o.fl.
Við bætum reglulega nýjum leikjum
í safnið eftir vinsældum og óskum. Þá
er á döfinni nú í haust að taka þátt í
rafíþróttabyltingunni með spennandi
samstarfi við Glímufélagið Ármann og
Rafíþróttaskólann með námskeið fyrir
krakka á aldrinum 10–12 ára og 14–16
ára sem hyggjast leggja stund á og
iðka rafíþróttir á uppbyggilegan hátt
undir öflugri leiðsögn Rafíþróttaskól-
ans í öruggu og hvetjandi umhverfi á
G-Zero Gaming Grensásvegi 16.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu G-Zero, gzero.is
Grensásvegur 16, 108 Reykjavík
Sími: 869-1144
Fylgstu með G-Zero á samfélags-
miðlum.
Facebook: Gzero Gaming
Instagram: Gzero Gaming
Það er alltaf gaman
að spila tölvuleiki
G-ZERO:
Myndir: Eyþór Árnason