Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2019, Síða 48
19. júlí 2019FÓKUS48
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
„Það er freistandi
að þiggja far,
en ég sleppi því“
K
olbeinn Þór Kolbeinsson
setti sér það markmið fyrir
sumarið 2019 að ganga
hringveginn á 30 dögum.
Hann ákvað að nýta ferðina til
góðs og styrkja gott málefni um
leið og urðu Samferða góðgerðar-
samtök fyrir valinu.
„Ég var mótiveraður af því að
fylgjast með þeim einstaklingum
sem hafa verið að ganga suður-
skautið og annað og hlusta á viðtöl
við þá,“ segir Kolbeinn, sem verð-
ur 22 ára í september, en þegar
blaðamaður hringir í Kolbein er
hann að nálgast Egilsstaði.
Kolbeinn lagði af stað 1. júlí
og hyggst ganga hringveginn á
30 dögum. „Ég fór norðurleiðina,
þetta er búið að ganga mjög vel.
Það var einn dagur sem ég gat ekki
gengið, þar sem ég var kominn
með svo miklar blöðrur undir fæt-
urnar og gat ekki stigið niður. Ég
hef náð að halda mig við áætlun
sem er 45 kílómetrar á dag.
Ég hef aldrei gert neitt svona
áður og er aðallega að ganga
hringinn fyrir sjálfan mig og ákvað
síðan að styrkja einhver góð-
gerðarsamtök í leiðinni. Ég leit-
aði að góðgerðarsamtökum á
netinu og Samferða kom upp og
mér leist vel á það félag. Mér finnst
flott hvernig þau vinna,“ segir Kol-
beinn, sem segist ekki þekkja
neinn sem notið hefur styrkja frá
Samferða.
Kolbeinn er ekki óvanur því
að hreyfa sig, hann er að æfa am-
erískan fótbolta og æfði fimleika
frá tíu ára aldri og var í landsliðinu
í hópfimleikum árið 2014. Hann
varð stúdent frá Fjölbrautaskóla
Garðabæjar árið 2017 og vinnur í
dag á lagernum hjá Tengi.
Útilegastur
„Það fer allt sumarfríið mitt í
gönguna,“ segir Kolbeinn. „Ég fer
á þjóðhátíð,“ bætir hann við að-
spurður hvort hann ætli að verð-
launa sig að göngu lokinni.
Veðrið hefur svo sannarlega
leikið við Kolbein á göngunni. „Ég
hef verið heppinn með veður, hef
fengið 2–3 rigningardaga,“ seg-
ir hann, og bætir við að hann gisti
aðallega í tjaldi en njóti þess þegar
hann kemur í bæi að gista á hóteli.
Er fólk ekkert að stoppa fyrir þér
og bjóða þér far?
„Jú, og það er freistandi að
þiggja farið, en maður verður að
sleppa því.“
Þar sem áætlunin er stíf segist
Kolbeinn ekki ná að njóta margs
á göngunni eða hafi tíma til að
skoða landið. „Þetta er svo mikið
að ég er eiginlega bara að ganga og
sofa, ganga og sofa.
Það hafa allir tekið mér mjög vel
og það sýna mér allir mjög mikinn
stuðning, ég held að ég sé kominn
með um 200 þúsund í styrki sem er
bara geggjað, ég er að vonast til að
safna 300 þúsundum.“ n
Fylgjast má með Kolbeini á
Instagram: kollihawt og á hring-
ferdin.com.
Viljir þú styrkja Kolbein
og Samferða þá er reikning-
ur 0370-13-005770 og kennitala
2409972079.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
n Kolbeinn gengur hringveginn á þrjátíu dögum
n Styrkir gott málefni um leið
S
amferða góðgerðarsamtök
voru stofnuð í nóvember
2016 og eru fimm einstak-
lingar sem skipa stjórn
samtakanna. „Við í stjórninni
deilum sömu áherslum og fram-
tíðarsýn, það er að við vinnum af
hugsjón í 100 prósent sjálfboða-
liðavinnu. Engin yfirbygging eða
kostnaður, hver einasta króna fer
á þann stað sem hún á að fara á.
Deloitte sér til þess að allt bók-
hald sé til fyrirmyndar og uppi
á borðinu,“ segir Rútur Snorra-
son.Stjórn samtakanna hittist
í hverjum mánuði og úthlutar
styrkjum til fólks sem henni ber-
ast góðar ábendingar um. Bæði
þar sem langveik börn eiga í hlut
og svo fólk á öllum aldri sem er
að glíma við lífsógnandi sjúk-
dóma. Mest er þetta unnið eftir
ábendingum frá fólki um land allt
og einnig frá Ragnheiði hjá Krafti
(ungt fólk með krabbamein),
Ljósinu og Krabbameinsfélaginu,
svo eitthvað sé nefnt. Sú breyting
varð á í ár að aðeins verður tekið
á móti ábendingum og þeir ein-
ir munu fá styrk sem hafa ekki
fengið styrk áður frá Samferða.
Samferða er á Facebook: Sam-
ferða góðgerðarsamtök og tekið
er á móti öllum góðum ábending-
um á netfangi Samferða:
godgerdarsamtokin@gmail.com.
„Markmið okkar er og verður að
gera þau atriði og þá þætti, er
snúa að góðgerðarmálum, rétt
og vel. Í leiðinni skapa trú og
traust almennings í landinu á
okkar starfi, því ekki er vanþörf á.
Umfram allt – hjálpa og aðstoða
þá er minna mega sín, sem því
miður er svo sannarlega ábóta-
vant um allt land.“
Samferða góð-
gerðarsamtök