Skessuhorn - 21.11.2001, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 47. tbl. 4. árg. 21. nóvember 2001______________________ Áskriftarsími: 431 5040
Staðarfell opnar
á nýjan leik
Hitaveita Borgamess í
sameiningarviðræðum við
Orkuveitu Reykjavíkur
Halifax fékk
Stokkseyringa
Þau fáheyrðu firn gerðust í
drætti í engilsaxnesku Effa krukk-
unni (FA Cup) að saman drógust í
annarri umferð hið ljúfa, geðþekka
og hugprúða langneðstudeildarlið
Halifaxhrepps og sveinar Guðjóns
ffá Stokkseyri (Stoke City). Lið
þessi háðu sem kunnugt er hildi
mikla í Vörubíladósinni (LDV
Vans Trophy) í janúar síðastliðnum
og náðu Stokkverjar með heppnina
eina að vopni að leggja að velli
Hahfaxa eins og ítarlega hefur ver-
ið fjallað um í Skessuhomi. Hins-
vegar em Faxar þegar famir að
brýna busana og jáma klára sína
staðráðnir í að hefha ófaranna og
er víst að Alli stubbur (Alan Little)
knattspyrnustjóri Halifaxhrepps
mun einskis láta ófreystað til að slá
Stokkseyringa með bylmingshöggi
út úr bikarkeppninni.
Skessuhom í
kaupstaðarferð
Skessuhorn er að þessu sinni
prentað í óvenju stóra upplagi, eða
55 þúsund eintökum og sent til
allra áskrifenda Morgunblaðsins í
Reykjavík í kynningarskini.
IA í við-
ræðum við
Veigar Pál
Forráðamenn IA hafa undanfar-
ið verið í samningaviðræðum við
Veigar Pál Gtmnarsson, leikmann
Stromsgodset í Noregi, um að ger-
ast leikmaður liðsins. Veigar er 21
árs gamall framherji og hefur sl.
árið leikið í Noregi. Þar á trndan
lék hann með Stjömunni. Veigar
óskaði eftir því í haust að fá að vera
leystur undan samningi við
Stromsgodset en liðið féll í 2.deild
á nýafstöðnu tímabili. Félagið hans
var trilbúið til þess en vill þó fa um
eina milljón króna fýrir hann þar
sem að hann á enn tvö ár eftír af
samningi sínum. ÍA mun ekki tril-
búið til að borga þessa upphæð og
því gæti allt eins ekkert orðið af fé-
lagaskiptunmn. Veigar mun þó
hafa sýnt mikinn áhuga á að ganga
til liðs við Islandsmeistarana.
Meðferðaheimilið að Staðarfelli
tók aftur til starfa nú í nóvember.
efrir að staðnum hafði verið lokað í
fjóra mánuði. Lokunin var ein af
margþættum aðhaldsaðgerðum
SAA en niðurskurður uppá 65-70
milljónir var nauðsynlegur vegna
fjárskorts. Að sögn Olafs Sveinsson-
ar, staðarhaldara á Staðarfelli, er á-
nægjulegt að starfsemin er nú aftur
komin á fullan skrið. „Við vissum
alltaf að lokunin yrði aðeins tíma-
bundin en hinsvegar var ekki vitað
hversu lengi hún myndi vara. Vð
höfum fundið fyrir því að þessi lok-
un hefur haft áhrif á sjúklinga og því
var reynt að koma starfseminni af
stað sem fyrst aftur“. Olafur sagði
einnig að þrátt fyrir að SAA hefði
fyrir löngu sannað mikilvægi sitt við
meðferð áfengissjúklinga þá virðist
alltaf sem fjárskormr hrjái yfirvöld
þegar kemur að úthlutun fjármagns
vegna starfseminnar. Frekari lokanir
á Staðarfelli eru ekki fyrirhugaðar
þar sem að aðhaldsaðgerðirnar hafa
tryggt reksturinn en einn liðurinn í
aðgerðunum var sá að SAA fækkaði
mjög í starfsliði sínu, bæði á Vogi og
á meðferðarheimilum á landsbyggð-
inni.
Allar líkur eru á að Hitaveita
Borgarness sameinist Orkuveitu
Reykjavíkur líkt og Akranesveita
gerði síðastliðið sumar. „Vð höfum
verið í viðræðum við Orkuveituna
og vonumst til að þetta gangi eftir
þannig að sameining geti átt sér stað
um áramót,“ segir Stefá'n Kalmans-
son bæjarstjóri Borgarbyggðar.
Aðdragandinn hefur verið smttur
og segir Stefán að viðræður hafi ekki
hafist fyrr en eftír að sameining
Akranesveim og Orkuveitunnar var
ákveðin. „Það var búið að að vinna
reiknilíkanið vegna Akranesveim og
við göngum inn á svipuðum for-
sendum þannig að vinnan er tiltölu-
lega auðveld. Það virðast ekki mikl-
ir þröskuldar í veginum og þetta
ætti að skýrast á næsm vikum. Vð
viljum fá út úr þessu viljayfirlýsingu
um að hugað verði að veitufram-
kvæmdum í dreifbýlinu en það á-
samt lægra orkuverði er okkar
markmið með þessari aðgerð," segir
Stefán.
Gert er ráð fýrir að húshitunar-
kosmaður hitaveitunotenda í Borg-
arnesi lækki um fjórðung. „Þetta er
mikið búsetumál og til þess fallið að
styrkja enn frekar byggðina á þessu
svæði,“ segir Stefán. GE
HJH
Veturinn bœrir á sér. Mynd: GE
Oi