Skessuhorn - 21.11.2001, Blaðsíða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
aálfiounu^i
IA á toppnum í
annarri deild
Bensínlausir
Borgnesingar
- kafsigldir í 4. leikhluta gegn Þór á Akureyri
Það sameinuðust tvær grýlur
þegar Skallagrímsmenn héldu til
Akureyrar til að spila gegn Þórs-
urum í 32ja liða úrslitum bikar-
keppni KKI í síðustu viku. Ann-
ars vegar bikargrýlan og hins
vegar Akureyrargrýlan. Skalla-
grímur hefur aðeins unnið 3 leiki
af þeim 11 sem þeir hafa spilað
gegn úrvalsdeildarliðum í bikar-
keppninni síðan 1992. Sama töl-
fræði er uppi á teningnum þegar
skoðaðir eru leikir Þórs og
Skallagríms á Akureyri í úrvals-
deild ffá upphaíi.
Grýlur þessar virtust ekki gera
vart við sig í upphafi leiksins á
Akureyri síðasta fimmtudag.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik þó svo að heimamenn
hefðu alltaf yfirhöndina. Þórsar-
ar leiddu í leikhléi með 8 stigum.
Það virtist allt stefha í spennandi
leik í upphafi þriðja leikhluta
þegar Borgnesingar minnkuðu
muninn í 2 stig 72-70. Allur
kraftur virtist hins vegar úr
Sköllunum í lokin var sem þeir
hefðu ekki kraft til að standa í
norðanmönnum undir lokin og
sigldu Þórsararnir ffam úr og
höfðu í lokin 114-93 sigur.
Hlynur gerði 27 stig og Larry
Florence 26 stig. Hún var því
ekki löng dvöl Borgnesinga í bik-
arkeppninni þetta árið og geta
þeir nú lagt allan sinn kraft í
deildarkeppninar.
R.G
Eins og fram kom í Skessu-
horni fyrir skömmu síðan er Vest-
urlandsriðillinn í 2. deild karla í
körfuknattleik á fullu og hafa far-
ið ffam nokkrir leikir síðan síðast
var greint frá. Meðal úrslita má
nefna að Grundfirðingar hafa lagt
Hrafnaflóka og Reyni Hellissandi
en tapað fyrir IA C og
Hrafinaflóki lagði Skallagrím C.
Kempurnar í C liði Skallagríms
lögðu svo ÍA C 89-66 á föstu-
dagskveldið í Borgarnesi 89-66
þar sem Egill Örn Egilsson gerði
38 stig fyrir Skallana og var sjóð-
andi heitur. Þess má geta að
Skagamenn söknuðu sárt Elvars
Þórólfssonar og Trausta Freys
Jónssonar sem léku ekki með að
þessu sinni. Staðan í riðlinum er
annars þessi:
Nr. Félag Leik U T Stig Stig
1. ÍAC 5 4 1393:353 8
2. Grundarfi. 5 4 1357:321 8
3. Reynir H 4 1 3253:270 2
4. HHF 4 1 3224:244 2
5. Skallagrímur C
4 1 3236:275 2
Birgir
Leifur úr
leik
Birgi Leifi Hafþórssyni tókst
ekki að tryggja sér þátttökurétt á
evrópsku mótaröðinni á lokaúr-
tökumótinu sem lauk á Spáni á
mánudaginn. Birgir lék holum-
ar 108 á 429 höggum eða þrem-
ur höggum undir pari vallarins.
Þeir kylfingar sem tryggðu sér
þátttökurétt í Evrópumótaröð-
inni léku á 5 höggum og fleiri
undir pari vallarins.
Birgir hóf keppni á loka-
hringnum mjög vel og lék fyrri 9
holurnar á 2 höggum undir pari.
Fékk fugl á 5. og 7. braut. En
síðan fór að halla undan fæti og
tapaði Birgir Leifur höggumun
tveimur þegar hann fékk skolla á
10. og 11. braut og á þeirri 13.
varð hann að taka víti og fékk
fyrir vikið skramba, þ.e. lék hana
á tveimur höggum yfir pari.
Birgir Leifur fékk fúgl strax í
kjölfarið á 14. braut en þar við
sat og síðustu 4 holurnar lék
hann á pari. Birgir Leifúr sagði í
samtali á golf.is að slæmar á-
kvarðanir og lánleysi á loka-
hringnum hefði komið homun í
koll. „Ég held að hugarfarið hjá
mér breytist meira en nokkuð
annað þegar ég fer í úrtökumót.
Þá er eins og ég líti öðmm aug-
um á keppnina og taki sjaldnar
áhættu,“ sagði Birgir Leifur.
Birgir mun, þrátt fyrir þetta
bakslag, hafa nóg fyrir stafúi á
næsta ári þar sem að hann mun
keppa í áskorendamótaröðinni.
HJH
Olafur til
Bolton
Ólafur Þórðarson, þjálfari IA,
heldur á föstudaginn tíl Bolton á
Englandi þar sem hann mun
fylgjast með æfingum liðsins.
Með honum í för verður Aðal-
steinn Víglundsson fyrram að-
stoðarmaður hans hjá ÍA og
Fylki, núverandi þjálfari Fylkis.
Koma þeir félagar tíl með að
dvelja í Bolton í fimm daga hjá
fyrirliða liðsins, Guðna Bergs-
syrú. Ólafur sagði að ferðin væri
fýrst og síðast ætluð til að fá hug-
myndir við þjálfunaraðferðir og
vonandi mundi hún nýtast hon-
um við þjálfun Skagaliðsins.
Vel varið hús með klæðningu frá
BORGARNES STÁL
Borgamesstálið skipar nú traustan sess sem
klæðningarefhi á þök og veggi utanhúss og
prýðir fjölda bygginga um land allt.
Boigamesstálið er fáanlegt í möigum gerðum:
Litaðstál
Galv. stál
Alu/inkstál
Gataðstál
■ Plastísol stál
Á1
Litaðál
0,4-0,6min
0,6 - 0,7 mm
0,6-0,7 mm
0,5 mm
0,5 - 0,6 mm
0,7-0,9 mm
0,7 mm
Vímet hf. hefur gefið út aðgengilegt rit,
Veðurkápuna, þar sem fjallað er um
stálklæðningar og val á þeim,
uppsetningu og viðhald.
VIRNET
Borgarbraut 74 - 310 Borgamesi
Sími 437 1000 - Fax 437 1819
Netfang: vimet@vimet.is
Heimasíða: www.vimet.is
BÁRUSTÁL OG KANTSTÁL