Skessuhorn - 01.06.2005, Síða 5
^.usssunöEW
MIÐVIKUDAGUR 1. JUNI 2005
5
Ú,tskriftamemar frá Bifröst 2005.
Rannsóknarsetur jafii-
réttismála stofiiað á Bifröst
Síðasliðinn laugardag voru sextíu
og þrír nemendur útskrifaðir frá
Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Þar
á meðal voru fyrstu meistaranem-
arnir sem útskrifast frá skólanum
en þeir voru þrír talsins. Þá voru
brautskráðir 25 nemendur með BS
gráðu í viðskiptalögfræði og 35
með BS gráðu í viðskiptafræði.
Við athöfnina á Bifröst á laugar-
dag undirrituðu Runólfur Ágústs-
son, rektor og Árni Magnússon, fé-
lagsmálaráðherra samsstarfssamn-
ing um stofhun Rannsóknarseturs
vinnuréttar og jafnréttismála.
Rannsóknarsetrið verður staðsett á
Bifröst en félagsmálaráðuneytið sér
um helming árlegs kostnaðar við
reksturinn.
GE
Runólfur Agústsson ogAmi Magnússon undirrita samning um rekstur Rannsóknarset-
urs vinnuréttar ogjafnréttismála.
Lögreglan vill bæta
umferðarmenninguna
Undanfarna daga hefur lögregl-
an á Akranesi beint athygli sinni
sérstaklega að umferðarhraða og
notkun öryggisbúnaðar í umferð-
inni. Rannsóknir sýna að þessir
tveir áhrifaþættir í umferðinni eru
meðal þeirra stærstu þegar fólk
slasast í umferðaróhöppum.
Liðna daga hafa um þrjátíu öku-
menn verið kærðir vegna þess að
þeir hafa ekki virt hraðatakmarkan-
ir. Ekki er óalgengt að umferðar-
hraði aukist fyrst á vorin og reynir
lögreglan að sporna við þeirri
hættu sem hraðakstrinum fylgir
með auknu eftírliti.
„Þessa dagana streyma börn út á
göturnar á reiðhjólunum sínum.
Því miður er það svo að ekki virð-
ast allir vera búnir að átta sig á
nauðsyn þess að bömin noti viðeig-
andi öryggisbúnað á hjólunum því
allt of mikið ber á að þau séu á reið-
hjólum án hjálma svo ekki sé talað
um hné- og olnbogahlífar við notk-
un línuskauta. Mikilvægi þessa
búnaðar á fyrir löngu að vera öllum
ljós fyrir nú utan að lög kveða á um
að böm undir 15 ára aldri skuli
alltaf nota hjálma við hjólreiðar.
Slys þar sem börn slasast í umferð-
inni era átakanleg og ekki hvað síst
þegar alvarleg meiðsl verða sem
hefði verið hægt að koma í veg fyr-
ir með notkun einfalds búnaðar
sem kostar nokkrar krónur,“ Sagði
Jón Sigurður Olason, yfirlögreglu-
þjónn í samtah við Skessuhorn.
Hann segir að velta megi því fyrir
sér hvort fyrirmyndirnar, þ.e. full-
orðna fólkið þurfi einnig að taka
sér tak? „Sumir virðast neftúlega
halda að eftir 15 ára aldur sé skylt
að hætta að nota hjálma við hjól-
reiðar. Allt of sjaldgæft er að sjá
fullorðna hjólreiðamenn með
hjálma þó vissulega sé hægt að
finna undantekningar. Staðreyndin
er nefnilega sú að höfuð mann-
skepnunnar heldur áffam að vera sá
líkamshluti sem minnst má við
meiðslum efdr að við verðum full-
orðin.“
Lögreglan á Akranesi hefur haft
afskipti af 30 hjálmlausum börnum
á reiðhjólum síðustu daga. Börnun-
um hefur verið gert að leiða hjól
sín heim og foreldram er sent bréf
þar sem þeir eru minntír á nauðsyn
öryggisbúnaðar.
Jón Sigurður segir einnig að
öryggisbeltanotkun á Akranesi hafi
ekki verið viðunandi og eru lög-
reglumenn ákveðnir í að koma
henrú í betra horf. „Margir virðast
enn haldnir þeim ranghugmyndum
að umferðarslys verði bara á sér-
stökum stöðum og við sérstakar að-
stæður og þá þannig að einhverjir
aðrir en þeir sjálfir lendi í þeim.
Algengar afsakanir fólks sem kært
er vegna þess að það notar ekki ör-
yggisbelti eru t.d: „Eg var bara að
skjótast út í búð,“ eða „ég var bara
á leiðinni í vinnuna." Samt sem
áður var allt þetta fólk á leiðinni
milli brottfararstaðar og áfanga-
staðar, rétt eins og allir hinir og
einnig þeir sem slasast hafa í um-
ferðarslysum.“
Það sem af er þessu ári hafa 72
aðilar verið kærðir af lögreglunni á
Akranesi vegna þess að þeir hafa
ekld notað öryggisbelti, bæði öku-
menn og farþegar. Þar af 28 nú síð-
ustu daga. MM
NAM AÐ LOKNUM
GRUNNSKÓLA
fjöltækniskóli íslands byggir á traustum grunnl Stýrimanna-
skólans og Vélskólans og býður fjölbreytt og spennandi nám á
fjórum sviðum.
Tæknisvið býður nýja náttúrufræðibraut á framhaldsskólastlgi
sem er sérsniðin að kröfum háskólanna. Námið er bæði bóklegt og
verklegt á sviði raftækni og véltæknl, og býr nemendur elnstak*
lega vel undlr háskólanám f tækni* og verkfræðlgreinum, auk
þess sem nemendur útskrifast með 1. stigs sklpstjórnar* eða
2. stlgs vélstjómarréttindi.
Vélstjórnarsvið opnar nemendum mikla möguleika og leggur
m. a, áherslu á véifræðl, rafmagnsfræði og málmsmíðar. Vaxandi
þörf er fyrir vélstjóra f atvinnulffinu, baeðl á landl og sjó, og
nemendur öðlast stigvaxandl starfsréttlndi eftlr námsframvlndu.
Mest réttindl fá nemendur sem Ijúka 4, stigl sem veltlr elnnlg
stúdentspróf, svo leiðin er greið f frekara framhaldsnám.
Skipstjórnarsvið er elna námsbrautln á landinu sem býður
nám á framhaldsskólastlgl til alþjóðlegra skipstjórnarréttinda.
Námið er elnnig góð alhllða stjórnunarmenntun sem býður tæki*
færi tll stjórnunarstarfa f landi, auk þess að veita möguleika á
frekara framhaldsnámi.
Almenn námsbraut er ætluð nemendum sem þurfa að bæta
vlð slg þekkingu tll að uppfylla almenn Inntökuskllyrðl á aðrar
námsbrautlr framhaldsskóla og þelm sem vllja kynna sér nám f
málmsmfðum, rafmagnsfræðl og fleirl tæknlgreinum á framhalds*
skólastigl. Almenna brautln býður fléttu verknáms og bóknáms
við góðar aðstæður svo alllr getl fanglð tækifæri tll að finna slg og
ná árangri.
Kynntu þér möguleíkana f Fjöltæknískólanum á www.fti.is
*- þar gaeti verlð áhugaverður kostur fyrir þlg.
FJOLTÆKNISKOLI ISLANDS
TÆKNI VÉLAR SIGLINGAR ÚTVEGUR
Háteigsvegi 105 Reykjavík Sími 522 3300 Fax 522 3301 fti@fti.is www.fti.is
Skemmtileg blanda af
bóklegu ogverklegu námi
NYTT
NYTT