Skessuhorn - 01.06.2005, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2005
23
Ferskir Fylkismenn
lögðu slaka Skagamenn
Ungu strákarnir
stálu senunni
Flestir bjuggust við jöfnum og
spennandi leik þegar ÍA tók á
móti Fylki í 4. umferð Lands-
bankadeildar karla á Akranesvelli
á mánudagskvöld. Liðin voru á
svipuðu róli og búin að fara í
gegnum svipaða dagskrá í fyrstu
þremur umferðunum. Bæði liðin
hafa unnið Þrótt og tapað fyrir
Val. Fylkismenn töpuðu hinsveg-
ar fyrir KR á meðan ÍA lagði
Grindavík og það skildi liðin að.
Jafn og spennandi leikur var
samt sem áður ekki það sem
boðið var upp á. Fylkismenn
hreinlega áttu fyrri hálfleikinn og
varla hægt að segja að Skaga-
menn ættu skot á markið. Fylkis-
menn áttu gott færi strax á 2.
mínútu en fast skot Viktors Árna-
sonar fór rétt framhjá. í næstu
sókn á eftir fékk Guðjón Heiðar
Sveinsson að líta gula spjaldið
fyrir að brjóta á Fylkismanni. Tíu
mínútum síðar stakk Björgúlfur
Takefúsa þrjá Skagamenn af
þegar hann geystist upp hægri
kantinn en Hafþór Ægir Vil-
hjálmsson náði að bjarga í horn.
Á 23. mínútu uppskáru Fylkis-
menn síðan þegar Hrafnkell
Helgason skoraði af löngu færi
með föstu skoti, óverjandi fyrir
Pál Gísla Jónsson í marki ÍA.
Áfram sóttu Fylkismenn og
það var ekki fyrr en á síðustu
tveimur mínútum hálfleiksins
sem eitthvað lífsmark sást í
sóknarleik Skagamanna en þó
náðu þeir ekki að ógna marki
Fylkis.
Þegar síðari hálfleikur hófst
vonuðust menn til að Skagapiltar
hefðu fengið eitthvað hressandi í
leikhléi en oft hafa „eldmessur“
Ólafs Þórðarsonar þjálfara dug-
að til að hressa menn við. Það
var hinsvegar öðru nær því áfram
réðu Fylkismenn lögum og lofum
og sóttu án afláts en vörn
Skagamanna hélt þar til á níundu
mínútu þegar Björgúlfur stakk
sér inn í vítateig hvar Helgi Pétur
Magnússon tók hann glímutök-
um og uppskar gult spjald. Það
sem Björgúlfur fékk út úr bylt-
unni var hinsvegar vítaspyrna
sem hann skoraði úr af öryggi.
Fylkismenn létu ekki þar við sitja
því tveimur mínútum síðar skor-
aði Sven Gustafsson þriðja
markið eftir fádæma klaufaskap í
vörn Akurnesinga.
Fljótlega eftir markið gerði
Ólafur þjálfari þrjár breytingar á
liði sínu, inn komu Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, Kári Steinn
Reynisson og Andri Júíusson. Þá
fyrst fóru Skagamenn að sækja
en þess má geta að Fylkismenn
voru komnir í þægilega stöðu og
gátu leyft sér að slaka á. Skaga-
menn áttu nokkur góð færi í síð-
ari hluta hálfleiksins en náðu ekki
að minnka muninn. Lokatölur
urðu því 0-3. Fylkismenn léku
feikivel í leiknum en Skagamenn
illa og er það nægileg útskýring á
þessum úrslitum. Það sem er
hinsvegar Ijósi punkturinn er það
að í þessum fyrstu leikjum móts-
ins hafa nokkrir ungir og efnileg-
ir strákar verið að fá tækifæri til
að sýna sig og sanna og hafa
nýtt þau ágætlega. Vissulega
eiga þeir nokkuð í land með að
komast í úrvalsflokk en enginn
verður óbarinn Skagamaður
stendur víst einhversstaðar. Það
verður því að líta á málið þannig
að verið sé að byggja upp lið
framtíðarinnar.
GE / Ijósm. Hilmar.
Skallagrímur lagði Afríku
Skallagrímur átti ekki í miklum
vandræðum með Afríku úr
Reykjavík þegar liðin mættust á
gervigrasvellinum í Laugardal á
föstudagskvöld í þriðju deild ís-
landsmótsins í knattspyrnu.
Skallarnir sölluðu inn mörkum og
urðu lokatölur 0 - 7. Sveinbjörn
Hlöðversson skoraði 3 mörk og
þeir Sigurjón þjálfari Jónsson,
Kristján Hagalín Guðjónsson, Víð-
ir Jónasson og Sölvi G Gylfason
sitt markið hver.
Skallagrímur byrjar vel í C riðli
3. deildarinnar, hefur unnið báða
sína leiki og situr í efsta sæti rið-
ilsins. Þá er liðið komið í 2. um-
ferð bikarkeppninnar og mætir
Gróttu í kvöld á Seltjarnarnesinu.
Vinni Skallarnir þann leik eru þeir
komnir í 32 liða úrslit og eiga þá
möguleika á að fá jafnvel úrvals-
deildarlið í heimsókn.
GE
Vitlaus Víkingssigur íVíkinni
Það var fallegt veður á laugar-
daginn þegar Víkingar lögðu land
undir fót og heimsóttu nafna sína
frá Reykjavík. Það var sannarlega
ekki ferð til fjár né stiga. Víkingar
biðu afhroð og var gjörsamlega
„slátrað" af heimamönnum. Gest-
irnir áttu þó fyrstu sóknina sem
eitthvað kvað að þegar Hermann
og Mitic prjónuðu sig í gegn með
góðum þríhyrningi en Hermann
skaut rétt framhjá. Gaman hefði
verið að vita hvernig leikurinn
hefði þróast ef Ólsarar hefðu
komist yfir. Heimamenn í Víkinni
skoruðu sitt fyrsta mark með
skalla eftir hornspyrnu á 12. mín.
Annað markið kom úr vítaspyrnu
á 17. mín. Það var að mínu mati
afar ósanngjarn dómur. Ég hitti
Magnús dómara síðar sama dag
og varð að spyrja hann út í þenn-
an vafasama dóm og hann sagði
að tveir leikmanna Víkings hefðu
klemmt sóknarmanninn. Enginn
kannast við slíkt, rangur dómur
Magnús! Þriðja markið kom með
skalla eftir snarpa sókn eftir að
gestirnir höfðu tapað boltanum á
miðjunni. Fjórða markið kom
með skalla eftir aukaspyrnu og
staðan því 4 - 0 í hálfleik.
í seinni hálfleik komu þrjú mörk
til viðbótar öll með skotum utan
úr teig og lokastaðan því 7-0.
Stórtap okkar manna því stað-
reynd.
í heild voru Reykjvíkingar miklu
betri og það hlýtur að vera um-
hugsunarefni fyrir Ejub þjálfara að
fá á sig 3 skallamörk í einum og
sama leiknum. Vonandi styttist í
Begga, mann með hausinn í lagi.
Einar markvörður stóð sig ágæt-
lega í leiknum en fékk á sig
klaufamark í seinni hálfleik þegar
hann missti laust skot úr fanginu
og inn, skamm Einar! Helgi
Reynir átti ágæta kafla í leiknum
en tapaði knettinum fulloft. Aðrir
leikmenn geta gert mun betur og
Ijóst að þeir verða að rífa sig upp
á „rassgatinu" svo að fleiri svona
úrslit líti ekki dagsins Ijós og tak-
markið náist í sumar.
Víkingar fengu örfá ágætis
tækifæri og með smá heppni
hefðu þeir átt að skora eins og
eitt mark sem að hefði glatt fjöl-
marga stuðningsmenn Ólsara
sem mættir voru til að styðja sitt
lið. Gaman að sjá brottflutta
Snæfellinga sem og aðra mæta á
völlinn að styðja sína menn. Von-
andi halda þeir því áfram þó illa
hafi farið að þessu sinni. FRF
Skagamenn unnu góðan en
nauman sigur á Grindvíkingum á
Akranesvelli á fimmtudagskvöldið,
3 - 2, í leik sem skipti sköpum fyr-
ir framhaldið hjá ÍA. Ef liðið ætlaði
að halda í við toppliðið þá var sig-
ur nauðsynlegur eftir slæmt tap
gegn Val í síðustu umferð.
Leikurinn var ekki mikið fyrir
augað framan af og fyrsta alvöru
færið kom ekki fyrr en eftir tæpan
stundarfjórðung. Þá stakk Hjörtur
Hjartarson sér inn fyrir vörn Grind-
víkinga en skaut beint á markvörð
Grindvíkinga. Skömmu síðan átti
nýliðinn Jón Vilhelm Ákason góð-
an skalla að marki Grindavíkur
sem Boban Savic varði meistara-
lega.
Skagamenn voru líklegri til að
skora enda voru þeir meira með
boltann þótt færin væru ekki ýkja
mörg framan af. Það voru samt
Grindvíkingar sem voru fyrri til því
á 35. mínútu fékk Magnús Þor-
steinsson boltann inn á vítateig þar
sem hann var illa valdaður og fékk
góðan tíma til að koma boltanum
fyrir sig og eftirleikurinn því auð-
veldur. Skagamenn fengu færi til
að jafna fyrir hálfleik og meðal ann-
ars átti Hjörtur Hjartarson tvö slík
sem honum tókst ekki að nýta.
Heimamenn hafa væntanlega
fengið hressilega orð í eyra í leik-
hléi því þeir komu afar ferskir inn á
völlinn í síðari hálfleik. Sóknarleikur
Skagamanna skilaði árangri þegar
fimm mínútur voru liðnar af hálf-
leiknum en þá var það varnarmað-
urinn Reynir Leósson sem tók mál-
in í sínar hendur. Hann tók á rás
upp allan völl og lék á nokkra
Grindvíkinga og renndi boltanum
fyrir á Kára Stein Reynisson. Kári
kom boltanum á Hafþór Ægi Vil-
hjálmsson sem var í opnu færi og
nýtti það vel. Þetta var fyrsta mark
Hafþórs fýrir ÍA í deildarkeppni en
fleiri nýliðar áttu eftir að komast á
blað í þessum leik.
Eftir markið róaðist leikurinn
nokkuð en á 70. mínútu náði Hjört-
ur loks að koma boltanum í netið
eftir fjölmargar tilraunir. Það var
heldur ekki neitt smámark þegar
það loksins kom því Hjörtur lét
vaða af þrjátíu metra færi og beint
í samskeitin. Án efa fallegasta
mark sumarsins til þessa. Skaga-
menn gáfu svolítið eftir og virtust
ætla að halda fengnum hlut en
gestirnir refsuðu þeim fljótt því
Mounir Ahandour jafnaði leikinn á
76. mínútu. Eftir þetta gerðist ekki
mikið fyrr en venjulegum leiktíma
var lokið en þá fékk Andri Þór Júl-
íusson boltann inn á vítateig eftir
ágætan undirbúning Jóns Vilhelms
og Kára Steins. Andri þakkaði fyrir
sig með því að skora sigurmarkið
og um leið sitt fyrsta deildarmark
fyrir (A.
Ungu strákarnir; Hafþór, Jón Vil-
helm og Andri stóðu sig allir með
prýði. Sömuleiðis Finnbogi Llorens
og Guðjón Heiðar Sveinsson en
maður leiksins var þó Kári Steinn
Reynisson sem var á tánum allan
tímann. GE
.litfnl fyru* byrjeiulur seut
íengra kmnna
Fi iistiikí i iiiTfVfi it.Tkiaiiópii'
\ inahúp.i. kvrnnnliópn ■
Ikt'ói írkit'snK'nn (Í1, ot» •.***'
hn scin ekki ern í göIfklúlVbi
Ifpplýsingar og skrániiig:
Skrifstofa I.eynis sínii 431-^71^
Kristvin Hjarnason 1 sínia S‘)‘)-ia3S
Netfang: kristvinh(«\siinhel.is ^
IleiinasíOa: www.golf.is/gl ‘ f
GollKluhhurinu I.e>nir
Krist\ in lijarnason I l'G \ eollTeiöheiniiiuli*
nr.i.r.w
RUBINSTKIN
Opna Helena Rubinstein
kvennagolfmótið Garðavelli Akranesi
5* f /
. jum
Keppt er í þremur flokkum.
Veitt eru veraaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum
flokki. Keppandi getur aðeins unnið til verðlauna í
einum íIokkí. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum.
Glæsileg teiggjöf.
Keppnisgiald kr. 2500
Skráning nafin á golf.is
og í síma 431-2711