Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 26
isval, tækjakaup, borðplötur, litaval, húsgögn, uppröðun hús-
gagna og líka aðstoð við að hengja upp málverk og fleira í
þeim dúr. Þetta er svo gaman, maður þarf að vera opinn fyr-
ir nýjum hlutum og hugmyndum, svo er nauðsynlegt að
skoða blöð, Pinterest og Instagram. Það heldur mér ferskri,“
segir hún.
Spurð hvort hún sé á förum úr húsinu segir hún svo ekki
vera.
„Við ætlum að einbeita okkur að því að klára fallega húsið
okkar og við ætlum okkur að verða gömul hérna.“
Þeir sem vilja fylgja Ernu á samfélagsmiðlum geta fundið
hana undir ErnaGeirlaug_innanhússarkitekt á Facebook og á
Instagram.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Baðherbergið er klassískt og fal-
legt. Flísarnar eru í 60X60 cm og
koma frá Birgisson. Innréttingin er
sérsmíðuð hjá Smíðaþjónustunni.
Blöndunartækin
koma frá Tengi.
Grár marmari er á
baðinnréttingunni.
Hann kemur frá
Granítsmiðjunni.
Á baðherberginu er bæði
sturta og baðkar. Þar er
líka nóg pláss fyrir allt sem
tilheyrir baðherberginu.
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019