Morgunblaðið - 14.06.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Vegagerðin hefur á ný hafið vinnu við
að fjarlægja svonefndar teina-
girðingar á miðeyjum milli vega í
Reykjavík, en vinna við þetta hófst
árið 2017. Banaslys varð á Miklu-
braut við Skeiðarvog sama ár þar
sem bifreið hafnaði á vegriði með
þeim afleiðingum að ökumaðurinn
kastaðist út úr henni og á teinagirð-
ingu. Hlaut maðurinn banvæna fjöl-
áverka, en hann var ekki spenntur í
öryggisbelti og undir áhrifum áfeng-
is og fíkniefna.
Í skýrslu rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa um slysið frá 6. júní sl.
segir að girðingin hafi ekki verið
hönnuð sem vegbúnaður og geti
reynst hættuleg lendi bifreið á henni.
Dæmi séu um alvarleg slys þar sem
rekja megi meiðsli farþega beint til
teinagirðinga. Vegagerðin tók í fram-
haldinu ákvörðun um að teinagirð-
ingar yrðu teknar niður og skipt út
fyrir netgirðingu þar sem vegrið séu
ekki á miðeyjum. Í skýrslunni kemur
fram að þegar hún hafi verið rituð
hafi þessu verki verið ólokið.
2.270 metrar í sumar
Jóhann Bjarni Skúlason, yfirverk-
stjóri við þjónustustöð Vegagerðar-
innar í Hafnarfirði á suðursvæði,
segir að tiltekin upphæð hafi verið
sett í verkefnið á sínum tíma, þegar
hann er spurður hvers vegna verkinu
sé ekki lokið. „Það sem var á bak við
vegrið tókum við allt niður og í fyrra
tókum við um 2.000 metra í kringum
gatnamótin Kringlumýrarbraut/
Miklubraut. Það var látið gott heita
síðasta haust. Við byrjuðum síðan
aftur núna og höfum verið að í tvær
nætur,“ segir Jóhann Bjarni.
Í yfirstandandi lotu hefur teina-
girðing verið fjarlægð á Breiðholts-
braut og unnið verður á Sæbraut
næstu tvo daga og síðan aftur í júlí.
Alls verða 2.270 metrar af teinagirð-
ingum fjarlægðir í sumar á 11 stöð-
um í borginni, en 20 milljónum króna
var veitt í verkefnið í ár. „Við ætl-
uðum að fjarlægja svona girðingar á
Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ líka, en
síðan kom í ljós að á þeim kafla verð-
ur unnið að nýrri framkvæmd svo
það var tekið út úr þeim pakka. Síðan
er spurning með Hringbrautina og
hvort þar eigi að taka girðingu líka,
frá Háskólanum og vestur úr,“ segir
Jóhann Bjarni, en þar stendur til að
gera breytingar á hámarkshraða.
„Við höfum tekið þessi svæði þar sem
er 60 kílómetra hámarkshraði, en nú
á að lækka hann niður í 40 fyrir vest-
an Melatorg. Kannski fær þetta að
standa, það er ekki búið að ákveða
það,“ segir hann. Fyrst verði fyrr-
nefndir 2.270 metrar kláraðir í það
minnsta.
Lítið eftir að sumri loknu
Vegagerðin hefur ýmist fjarlægt
teinagirðingar og sett netgirðingar í
staðinn eða fjarlægt teinagirðingarn-
ar þannig að þar standa girðingar-
staurar einir eftir. „Við höfum unnið
að því að setja netgirðingar í staðinn
fyrir teinagirðingar. Staurarnir sem
þú sérð standa eftir, það eru staurar
sem vegrið verja. Það hefur ekki ver-
ið tekin ákvörðun um það hvort það
eigi að setja þar netgirðingar á þá
staura eða taka þá niður,“ segir Jó-
hann Bjarni sem telur að lítið verði
eftir af verkinu að sumrinu liðnu.
„Ég held að þegar það er búið sem
nú er undir, þá sé þetta að mestu
leyti búið nema mögulega á Hring-
braut og í kringum hana og svo þarf
mögulega að setja netgirðingar á
milli vegriða þar sem staurarnir
standa. Það væri lokahnykkurinn,“
segir hann.
Fjarlægja enn girðingar
hættulegar ökumönnum
Vegagerðin segir að lokið verði við mestallt verkið í sumar
Teinagirðingar
» Í skýrslu rannsóknarnefndar
samgönguslysa segir að girð-
ingarnar séu ekki viðurkenndur
vegbúnaður.
» Fram kemur að dæmi séu
um að meiðsl farþega bifreiða í
alvarlegum umferðarslysum
megi rekja til slíkra girðinga.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjarlægja girðingar Feðgarnir Árni Svavarsson og Svavar Árnason.
SMÁRALIND – KRINGLAN
Renndu við
hjá okkur í
Tangarhöfða 13
FAI varahlutir
Ódýrari kostur í varahlutum!
stýrishlutir
hafa verið leiðandi
í yfir 10 ár.
Framleiddir undir
ströngu eftirliti
til samræmis
við OE gæði.
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Landsréttur staðfesti í síðustu viku
þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykja-
víkur að erfingjar einstaklinga, sem
keyptu íbúðir á vegum bygginga-
samvinnufélags Samtaka aldraðra,
megi selja þær fasteignir á markaðs-
verði.
Í samþykktum félagsins segir, að
söluverð íbúðar megi aldrei vera
hærra en kostnaðarverð hennar, að
viðbættri verðhækkun samkvæmt
vísitölu byggingarkostnaðar. Þetta
ákvæði töldu dómstólarnir vera víð-
tækari skerðingu á eignarrétti en fel-
ist í lögum um byggingasamvinnu-
félög. Vísaði dómurinn einnig í
eignarréttarákvæði stjórnarskrár.
Margir beðið niðurstöðunnar
Jóhannes S. Ólafsson hæstarétt-
arlögmaður, lögmaður eigenda fast-
eigna, sem byggðar voru fyrir tilstilli
byggingasamvinnufélagsins, segir að
margir hafi beðið eftir niðurstöðum
Landsréttar og íbúðir hafi staðið
auðar vegna þess að eigendur vildu
ekki selja fyrr en ljóst væri að mark-
aðsverð gilti og nú ríki enginn
ágreiningur um það.
Að sögn Jóhannesar getur mun-
urinn á markaðsvirði og matsvirði
verið allt að 30 til 40% af kaupverði
íbúðanna eða 10 til 12 milljónir á
íbúð.
Í málunum var einnig deilt um það
hvort byggingasamvinnufélaginu
væri heimilt að innheimta 1% um-
sýslugjald af endursöluverði íbúða.
Héraðsdómur hafði áður dæmt að
það sú innheimta væri óheimil en
Landsréttur komst að þeirri nið-
urstöðu að gjaldið væri heimilt.
Þá komst héraðsdómur að þeirri
niðurstöðu, að byggingasamvinnu-
félaginu væri heimilt að hafa þá kvöð
í eignaskiptayfirlýsingum, að íbúðir
verði hvorki seldar né afhentar til af-
nota öðrum en þeim sem eru félagar í
Samtökum aldraðra. Þeirri nið-
urstöðu var ekki áfrýjað til Lands-
réttar og því stóð hún.
Mega selja á
markaðsverði
Getur munað milljónum á verði íbúða
Morgunblaðið/RAX
Húsnæði Munur á markaðsvirði og
matvirði gat numið milljónum.
Hátíðahöldin 17. júní í ár verða
með sérstökum hátíðablæ í tilefni
af 75 ára afmæli lýðveldisins. Há-
tíðadagskrá á vegum Alþingis og
forsætisráðuneytisins hefst á Aust-
urvelli kl. 11 þar sem forseti Ís-
lands leggur blómsveig að styttu
Jóns Sigurðssonar.
Síðan verður gengið fylktu liði
að kirkjugarðinum við Suðurgötu
þar sem Dóra Björt Guðjónsdóttir,
forseti borgarstjórnar, leggur
blómsveig á leiði Jóns Sigurðs-
sonar og Ingibjargar Ein-
arsdóttur.
Síðar um daginn verða skrúð-
göngur frá Hallgrímskirkju og
Hagatorgi og ýmislegt verður til
skemmtunar, þar á meðal leik-
tæki, skemmtiatriði frá Sirkus Ís-
lands, harmonikkuball og tón-
leikar.
Landssamband bakarameistara
mun bjóða upp á lýðveldisköku í
samstarfi við forsætisráðuneytið í
tilefni af 75 ára afmælinu, hún
verður 75 metra löng eða sem
samsvarar hæð Hallgrímskirkju.
75 metra löng lýðveldiskaka
17. júní Margt verður um dýrðir.
Rúmlega helmingur landsmanna, eða 53%, er með virkt aðildarkort í
Costco. Þetta er nokkru lægra hlutfall en í janúar í fyrra þegar 71% voru
með slíkt kort. Þetta sýnir ný könnun MMR þar sem kannað var hversu
hátt hlutfall landsmanna væri með aðildarkort í Costco og hvort þeir ætl-
uðu sér að endurnýja það þegar það rennur út.
Af þeim sem voru með virkt aðildarkort sögðust 78% ætla að endurnýja
það þegar þar að kæmi. Þá eru höfuðborgarbúar líklegri til að eiga Costco-
kort, 58% þeirra eiga kort, en 42% íbúa á landsbyggðinni.
Helmingur á Costco-kort