Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019
Er heitt í vinnunni?
Þín eigin skrifborðs-
kæling!
Á vinnustað eða
hvar sem er!
Kæli-, raka- og
lofthreinsitæki,
allt í einu tæki.
Hægt að tengja
bæði við rafmagn
eða USB tengi.
Verð aðeins
kr. 24.900 m.vsk.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 1.400 manns hafa
dáið af völdum ebólufaraldurs í
Austur-Kongó, eða um 70% þeirra
sem hafa greinst með sjúkdóminn.
Ekkert lát er á ebólusýkingunum og
faraldurinn hefur nú borist til
grannríkisins Úganda. Hann er nú
þegar orðinn sá næstskæðasti í sögu
ebólufaraldra í heiminum og sumir
sérfræðingar spá því að það taki allt
að tvö ár að ráða niðurlögum hans.
Neyðarnefnd Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO) kemur
saman í dag til að meta hvort ástæða
sé til að auka alþjóðlega viðbúnaðinn
vegna faraldursins.
„Svo sannarlega skelfilegur“
Jeremy Farrar, framkvæmda-
stjóri góðgerðarstofnunarinnar
Wellcome Trust, sem fjármagnar
rannsóknir í heilbrigðismálum, segir
að þetta sé skæðasti ebólufaraldur-
inn í heiminum frá árunum 2013-
2016 þegar að minnsta kosti 11.310
manns létu lífið af völdum sjúkdóms-
ins í Vestur-Afríkuríkjunum Gíneu,
Líberíu og Síerra Leóne. „Hann er
svo sannarlega skelfilegur,“ hefur
fréttavefur breska ríkisútvarpsins
eftir Farrar sem segir ekkert benda
til þess að faraldurinn réni á næstu
mánuðum. „Austur-Kongómenn
ættu ekki að þurfa að takast á við
þetta einir.“
Tvö dauðsföll í Úganda
Jane Ruth Aceng, heilbrigðis-
ráðherra Úganda, hefur skýrt frá
því að fimm ára piltur og fimmtug
amma hans hafi dáið af völdum
ebólu. Þriggja ára bróðir piltsins
hefur einnig greinst með ebóluveir-
una. Þau höfðu öll farið til Austur-
Kongó ásamt þremur öðrum í fjöl-
skyldu sinni í því skyni að vera hjá
ættingja sem hafði sýkst af veirunni.
Ættinginn dó úr sjúkdómnum og
fjölskyldan var við útför hans áður
en hún sneri aftur til Úganda.
Embættismenn Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar sögðu að
fylgst væri grannt með 27 manns
sem höfðu samneyti við fjölskylduna
í Úganda. Alls hefðu tólf í fjölskyld-
unni verið sett í sóttkví í Austur-
Kongó eftir útförina en sex þeirra
„komust undan og fóru til Úganda“
9. júní, daginn áður en fimm ára pilt-
urinn var fluttur á sjúkrahús með
einkenni sjúkdómsins, meðal annars
blóðuppköst.
Nær 4.700 starfsmenn sjúkrahúsa
í Úganda hafa fengið bóluefni gegn
ebólu vegna hættu á að sjúkdóm-
urinn breiðist út í landinu. Nokkrir
ebólufaraldrar hafa brotist út í Úg-
anda, síðast árið 2012, og um 200
manns dóu úr sjúkdómnum í norðan-
verðu landinu árið 2000.
Talið er að erfitt geti verið að
koma í veg fyrir frekari útbreiðslu
sjúkdómsins frá Austur-Kongó til
Úganda vegna þess að landamærin
eru 875 km löng og víða er hægt að
komast á milli landanna án þess að
fara í gegnum eftirlitsstöðvar. Dag
hvern fara um 25.000 manns um
helstu landamærastöðina.
Óvenjulangvinnur
Ebólufaraldurinn í Austur-Kongó
hófst í ágúst sl. í héraðinu Norður-
Kivu, við landamærin að Úganda.
Síðan þá hafa rúmlega 2.000 manns
greinst með sjúkóminn og 1.400
þeirra dáið.
Þetta er í fyrsta skipti frá faraldr-
inum í Vestur-Afríkuríkjunum á ár-
unum 2013-2016 sem sjúkdómurinn
heldur áfram að breiðast út rúmum
átta mánuðum eftir að faraldurinn
hófst. Vitað er um nær 29.000 manns
sem smituðust af sjúkdómnum í
Vestur-Afríkuríkjunum og þar af
dóu 11.310 af völdum hans. Farald-
urinn sligaði heilbrigðiskerfi land-
anna og olli þeim miklu efnahags-
tjóni.
Árásir torvelda hjálparstarf
Árásir vopnaðra hópa í Austur-
Kongó og tortryggni gagnvart
starfsmönnum alþjóðlegra hjálpar-
samtaka hafa torveldað tilraunir til
að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Á
árinu hefur verið ráðist á 200 staði
þar sem læknar og hjúkrunarfræð-
ingar hafa haft aðstöðu og þeir hafa
því þurft að fresta bólusetningum og
meðferðum eða jafnvel hætta við
þær. Læknar án landamæra þurftu
til að mynda að stöðva starfsemi sína
í borginni Butembo og bænum
Katwa í Norður-Kivu vegna árás-
anna, að því er fram kemur á frétta-
vef BBC.
Næstskæðasti
ebólufaraldur
sögunnar
Hefur valdið 1.400 dauðsföllum í
Austur-Kongó og borist til Úganda
2.071
1.400
3
2
NORÐUR-KIVU
Faraldurinn hófst
í ágúst sl.
Fjöldi smitaðra
Fjöldi látinna
ITURI
Fimmtug amma
hans dó seinna.
Heimild: WHO
Skv. opinberum
gögnum í gær
Fimm ára piltur dó
eftir ferð til
Austur-K0ngó.
Ebóla breiðist út frá Austur-Kongó til Úganda
ÚGANDA
A-KONGÓ
SUÐUR-SÚDAN
KASESE
Beni
JUBA
KAMPALA
KINSHASA
Sjúkrahús í
viðbragðsstöðu,
starfsfólk bólusett.
Bráðsmitandi veira
» Að meðaltali deyja um 50%
þeirra sem smitast af ebólu og
dánartíðnin getur verið frá
25% til 90%.
» Ebóla er bráðsmitandi og
getur valdið banvænni
blæðingarsótt. Talið er að
ebóluveiran berist úr dýrum í
menn og að ávaxtaleðurblökur
séu forðahýsill hennar.
» Simpansar, górillur, smáap-
ar, antílópur og puntsvín geta
smitast af veirunni. Fólk sem
borðar sýkt dýr getur einnig
smitast. Veiran berst milli
manna með sýktu blóði og öðr-
um líkamsvessum.
» Fyrstu einkenni blæðingar-
sóttarinnar eru m.a. höfuð-
verkur, hálssærindi og vöðva-
verkir. Þeim fylgja m.a.
uppköst, kviðverkir og niður-
gangur. Veiran getur skemmt
mikilvæg líffæri, einkum lifur
og nýru, og leitt til losts, önd-
unarstopps og dauða.
AFP
Skæð sótt Lík ebólusjúklings borið
til grafar í Austur-Kongó.
Áhöfnum tveggja tankskipa var
bjargað í Ómanflóa í gær eftir
sprengingar sem urðu til þess að eld-
ar kviknuðu í þeim. Ekki var vitað
hvað olli sprengingunum en grunur
lék á að skipin hefðu orðið fyrir árás-
um. Sprengingarnar urðu til þess að
heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði
verulega og óttast var að þær myndu
auka spennuna í Mið-Austurlöndum.
Annað skipanna, Front Altair, er í
eigu norsks fyrirtækis og hitt, Ko-
kuka Courageous, í eigu japansks
skipafélags. Siglingamálastofnun
Noregs sagði að skýrt hefði verið frá
þremur sprengingum í norska skip-
inu eftir að það hefði orðið fyrir
„árás“. Stjórnvöld í Íran sögðu að
öllum í áhöfnum skipanna, alls 44
skipverjum, hefði verið bjargað.
Front Altair var á leiðinni frá Kat-
ar til Kúveits með etanólfarm en jap-
anska skipið sigldi frá Sádi-Arabíu
með metanólfarm sem átti að fara til
Singapúr.
Mikil spenna hefur verið í sam-
skiptum Írans og Bandaríkjanna síð-
ustu mánuði og úfar hafa einnig risið
með írönsku klerkastjórninni og
stjórnvöldum í Sádi-Arabíu og fleiri
arabalöndum. Bandaríkjaher sendi
flugmóðurskip og langdrægar
sprengjuvélar til Persaflóa í byrjun
maí og sagði það gert vegna hættu á
að ráðist yrði á bandarískar her-
sveitir á svæðinu með stuðningi Ír-
ana. Um viku síðar urðu fjögur tank-
skip fyrir árásum undan strönd
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna og bandarísk stjórnvöld sökuðu
Írana um að hafa staðið fyrir þeim en
klerkastjórnin neitaði því.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær-
kvöldi, að mat Bandaríkjanna væri
að Íran bæri ábyrgð á árásunum.
Hyggjast Bandaríkjamenn ætla að
taka málið upp við öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna.
Vekja ugg um
átök fyrir slysni
Sprengingar í tankskipum í Ómanflóa
AFP
Spennan eykst Eldur logar í öðru
tankskipanna í Ómanflóa.