Morgunblaðið - 14.06.2019, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Bretar sitjanúna uppimeð það
sem kallað er
„vönkuð önd“ í
Downing-stræti.
Forsætisráð-
herrann hætti sem
leiðtogi breska Íhaldsflokksins
og er flokkurinn nú leiðtoga-
laus fram í síðari hluta júlí.
Flokksmenn fullyrða að það
hafi styrkt flokkinn þegar eng-
inn tók við keflinu af May. Á
leiðtogaferlinum náði hún að
tapa hreinum meirihluta á
þingi. Hafði þó þá afsökun að
fylgið óx um 6% en vegna ólán-
legrar dreifingar atkvæða tap-
aðist meirihlutinn.
Næst leiddi hún flokkinn í
sveitarstjórnarkosningum. Þá
er ríkisstjórnarflokkum oft
„refsað“. En hrakfarirnar voru
slíkar að tal um refsingu lýsti
litlu nema þá dauðarefsingu.
Flokkurinn tapaði um 1.800
fulltrúum í sveitarstjórnunum,
missti meirihluta og lykil-
stöður niður þar sem áður
þótti óhugsandi. Þá komu
kosningar til þings ESB. Þær
kosningar eru helst hugsaðar
til að minna á að ESB sé ekk-
ert að bila í hreinni skömm
sinni á lýðræðislegri leikfimi
sem er truflandi fyrir sjálf-
kjörna, andlistslausa stjórn-
endur fjöldans. Eftir slíkar
kosningar er ekki nefnt hvort
flokkar eða einstaklingar sem
enginn þekkir vinni eða tapi.
En úrslitin urðu þó söguleg
að þessu sinni, en ekki þó svo
söguleg að eitthvað breytist
varanlega. En þess verður þó
minnst á Bretlandi að flokkur
sem Farage stofnaði fyrir
nokkrum vikum sigraði með
ótrúlegum yfirburðum.
Hinn fornfrægi Íhalds-
flokkur kom frá þessum kosn-
ingum í gervi aukaleikara, og
endaði í 5. sæti flokkanna.
Flokkur Jeremy Corbyns
reið svo sem ekki feitum hesti
frá kosningunum, en útreið
höfuðandstæðingsins, Íhalds-
ins, náði að skyggja á hve lúpu-
legur hann varð.
Theresa May forsætisráð-
herra gerði þau höfuðmistök,
eins og er svo algengt þegar
veikir stjórnmálamenn eiga í
hlut, að hún treysti embættis-
mönnum fyrir viðræðum við
Brussel. Markmið beggja við-
ræðunefnda varð þar með eitt
og hið sama, að eyðileggja að
mestu áform Breta um út-
göngu.
May japlaði á talpunktum
sinna embættislegu höndlara
eins og væri hún í íslenska ut-
anríkisráðuneytinu, og talaði
sig upp í það að Bretar mættu
alls ekki fara úr ESB „án út-
göngusamnings“, en það fyrir-
bæri var ekki nefnt
í aðdraganda þjóð-
aratkvæðis um út-
göngu eða veru.
Elítan beggja
vegna sunds trúði
könnunum um að
takast mætti að
hræða bresku þjóðina frá því
að samþykkja útgöngu með
samræmdum og skipulögðum
hræðsluáróðri, sem var ósvíf-
inn og spöruðu „hlutlausir“
fræðimenn og fjömiðlar sig
hvergi í misnotkun sinni, en
voru þó í ætt við hvítþvegna
engla bornir við skúrkana í
Icesave-málinu, en uppvakn-
ingar þaðan eru á fleygiferð í
afbökun á orkupakka nú, þótt
óvæntir nytsamir sakleysingj-
ar hafi bætt sér í þann ókræsi-
lega hóp.
Nú heyrist síoftar sagt í
Brussel, að þjóðaratkvæði séu
jafnvel hættulegri en áður var
talið og finna verði leið til að
banna þau, svo sem Þýskaland
gefur svo gott fordæmi fyrir.
Áður fyrr hafi langoftast geng-
ið að láta lýðinn endurtaka vit-
lausa niðurstöðu (margreynt í
Icesave). Hópar svikahrappa í
Íhaldsflokki (Major) og Verka-
mannaflokki (Blair) hafa verið
að þjappa sér um „leiðrétting-
aratkvæði“. En þótt þokast
hafi í þá átt er enn langt í land.
Brussel grunar Corbyn um
það að vera „Brexit-mann“ í
hjarta sínu. (Sjálfsagt verða
samin drög að tilskipun um að
þingmenn skuli ekki hafa
hjarta, en geti í staðinn sótt
um að vera með þrjú nýru (og
Juncker fengið auka lifur án
umsóknar) og því verið jafn vel
eða betur settir). Flestir hljóti
að sjá að þjóðum er ekki
treystandi til að greiða at-
kvæði sem hafi raunverulega
þýðingu. Í staðinn gætu þjóðir
fengið að kjósa í ESB-
þingkosningum daglega þar til
þátttakan verði komin niður í
0,5% sem er mjög viðráðanleg.
En það var ekki nóg með það
að May léti selja sér að út-
göngusamningur væri eins og
blóð og súrefni fyrir mannslík-
ama. Hún lét þingið sam-
þykkja ráðgefandi tillögu um
að ekki mætti yfirgefa ESB án
útgöngusamnings! Sagði því
næst að hún liti á þessa „óbind-
andi“ afgreiðslu sem bindandi
og var þá komin niður á sama
kjánastig og íslenskir ráð-
herrar að ræða um Mannrétt-
indadómstólinn skrítna. Um
leið og ESB heyrði þetta sagði
það að einungis væri til einn
útgöngusamningur og honum
yrði aldrei breytt. Þar með
hafði móða Theresa náð að
verða heimaskítsmát í aðeins
einum leik og það met verður
aldrei slegið.
Boris þýðir Boris
segir May. En bætir
við: En hvort er hann
Johnson eða Yeltsin,
það er efinn}
Brexit þýddi Brexit en
óvíst var hvað það þýddi
Í
fréttum vikunnar kom fram að
dauðsföllum vegna ofneyslu lyfseð-
ilsskyldra lyfja fækkaði um helming
á fyrstu mánuðum ársins miðað við
sama tímabil í fyrra, úr tuttugu í
níu. Við sjáum að þróun undanfarinna ára
hefur hér verið snúið við en misnotkun lyfja
sem valdið geta ávana og fíkn hefur farið
hratt vaxandi undanfarin ár og haft í för
með sér alvarlegar afleiðingar. Til marks um
það er fjölgun dauðsfalla fólks undir fertugu
vegna ofneyslu lyfseðilsskyldra lyfja úr að
meðaltali fimmtán á ári á tímabilinu 2001-
2015 í rúmlega þrjátíu dauðsföll árið 2018.
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, forstjóri SÁÁ,
sem var innt var eftir viðbrögðum við þess-
ari þróun sagði aðgerðir frá heilbrigðisráðu-
neytinu varðandi lyfjaávísanir hafa skipt
miklu máli í þessu samhengi en jafnframt aukin um-
ræða og vitundarvakning um skaðsemi lyfja sem valdið
geta ávana og fíkn.
Vísaði Valgerður þarna til aðgerða sem farið var í á
vegum heilbrigðisráðuneytisins til að stemma stigu við
mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja meðal annars með
því að takmarka magn ávanabindandi lyfja í umferð
hér á landi, styðja við góðar ávísanavenjur lækna og
efla eftirlit, meðal annars með reglugerð um lyfjaávís-
anir, nr. 1266/2017, sem tók gildi 1. júlí sl. Meðal þess
sem sú reglugerð felur í sér er að læknum er veitt
meira aðhald en áður í lyfjaávísunum t.d.
með því að heimila ekki ávísun á ýmis lyf,
sem valdið geta ávana og fíkn, lengur en til
30 daga notkunar í senn. Þá þarf að liggja
fyrir lyfjaskírteini sjúklings til að fá af-
greidd lyf úr ákveðnum lyfjaflokkum og
auknar kröfur eru um að einstaklingar sýni
skilríki í apótekum til að fá slík lyf afgreidd.
Árangur þessara aðgerða hefur verið góður
en samkvæmt upplýsingum frá Embætti
landlæknis dró verulega úr ávísunum lækna
á lyf sem valdið geta ávana og fíkn á árinu
2018.
Þrátt fyrir að dregið hafi úr ávísunum
lyfja sem valdið geta ávana og fíkn og
dauðsföllum vegna ofneyslu þeirra hafi
fækkað er notkun slíkra lyfja meiri hér en
annars staðar á Norðurlöndum og ljóst að
leita þarf allra leiða til að stemma enn frekar stigu við
misnotkun þeirra. Jafnframt er mikilvægt að huga að
öryggi þeirra einstaklinga sem þegar eru í neyslu með
skaðaminnkun að leiðarljósi og bind ég vonir við að
frumvarp þess efnis um örugg neyslurými verði sam-
þykkt af Alþingi innan skamms.
Allar þessar aðgerðir haldast í hendur og verkefni af
þessu tagi krefst heildarsýnar og markvissra ákvarð-
ana.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Markviss vinna skilar árangri
Höfundur er heilbrigðisráðherra
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Allt að 6,8% af vörum semfluttar eru til ríkja Evrópu-sambandsins eru fölsuð eðaólögleg. Þetta kemur fram í
skýrslu Europol um vörusvik og hug-
verkaglæpi. Þar kemur fram að flest-
ar sviknu vörurnar komi frá Kína þótt
stór hluti þeirra komi frá öðrum lönd-
um. Skipulögð glæpasamtök standa
yfirleitt á bak við falsanirnar og þær
verða sífellt vandaðri og erfiðari að
greina. Þetta á sérstaklega við um
matvælasvindl.
Falsaðar matvörur víða
Í skýrslunni kemur fram að
aukning á sölu falsaðrar matvöru og
drykkja sé sérstakt áhyggjuefni enda
séu gæði, innihald og hreinlæti við
framleiðslu matvælanna oft óljós og
dæmi um að þau geti ógnað heilsu
neytenda. Vörutegundir á borð við
þurrmjólk fyrir ungabörn, áfengi, ost,
kaffi, ólífuolíu og pasta eru oft falsaðar
og dæmi um að slíkar vörur rati í mat-
vörubúðir í Evrópulöndum. Herdís M.
Guðjónsdóttir, sérfræðingur á inn-
flutningsskrifstofu Matvælastofn-
unar, segir ekki algengt að fölsuð mat-
væli rati inn á markað á Íslandi enda
sé erfiðara að smygla vörum hingað til
lands en til margra annarra Evrópu-
landa.
Herdís segir þó mjög trúlegt,
miðað við rannsóknir í öðrum löndum,
að fölsuð matvæli sé að finna í ein-
hverjum verslunum á landinu. Hún
segir að rannsóknir á matvælum hér á
landi séu oftast gerðar í kjölfar ábend-
inga eða vegna erlendra tilkynninga
um fölsuð matvæli sem gætu hafa rat-
að til Íslands.
Þetta segir hún að hafi til dæmis
verið uppi á teningnum þegar Mat-
vælastofnun gerði rannsókn á nauta-
kjöti hér á landi eftir að upp komst um
falsað nautakjöt í Evrópu sem í raun
reyndist vera hrossakjöt frá Rúmeníu.
Í þess háttar tilfellum segir Herdís að
rekjanleiki matvæla skipti höfuðmáli.
„Svo tökum við stundum rassíur
og tökum að okkur eftirlitsverkefni.
Þá skoðum við hvernig ástandið er á
markaðnum.“
Sælgæti oft falsað
Herdís segir strangt eftirlit vera
með innfluttum matvælum í Evrópu
og að Matvælastofnun hafi tengsl við
samtökin Food Fraud Network, sam-
tök Evrópusambandsins sem rann-
sakar fölsun matvæla. Mat-
vælastofnun fái því reglulega
tilkynningar um matvælasvindl í álf-
unni.
Hún segir að stofnunin fylgist
jafnframt vel með tilvikum um
matvælasvindl á Norðurlöndunum
sem komi reglulega upp.
„Þar er voðalega mikið verið að
falsa sælgæti. Fólk græðir mikið á
því. Það er til dæmis verið að pakka
einhverju í Svíþjóð sem er svo selt í
Danmörku því þar eru miklu hærri
tollar,“ segir Herdís.
Upprunaland stundum rangt
Hún segir algengt að dýrmæt
matvæli séu drýgð með ódýrari mat-
vælum og að matvörur séu merktar
ranglega, til dæmis sé oft getið um
rangt upprunaland. Þetta segir Her-
dís algengt að sé gert við hunang,
ólífuolíu og ýmis dýr krydd eins og
saffran og túrmerik. Hrísgrjón eru
einnig oft merkt röngum gæðaflokki.
Herdís segir ákaflega algengt áfengi
sé falsað og dæmi um slík tilvik í næt-
urklúbbum þar sem fræg tegund
kampavíns var fölsuð og upp komst
um svikin þegar stafsetningarvilla
fannst á miðanum.
„Þetta er algengt í svartamyrkri
þar sem fólk er oft mjög drukkið. Það
kaupir rándýra kampavínsflösku sem
er svo bara svikin vara,“ segir Herdís.
Hún segist vita til þess að matvæla-
svindl hafi komið upp hér á landi þar
sem íslenskur fiskur var merktur sem
röng fisktegund.
„Það er algengt að verið er að
falsa fisktegundir. Flest er þetta auð-
vitað hvítt og lítur eins út þegar verið
er að steikja þetta og setja í rasp. Þá
er voðalega erfitt að greina þetta
nema fyrir sérfræðinga,“ segir Her-
dís.
Trúlega fölsuð
matvæli hér á landi
Morgunblaðið/Eggert
Svik Fölsun matvæla er vaxandi vandamál í Evrópu.
Fölsuð merkjavara, sér í lagi
föt og fylgihlutir, er sú vöru-
tegund sem oftast er gerð
upptæk í Evrópu. Í skýrslu
Europol kemur fram að fjölg-
un slíkra vara á markaði megi
m.a. rekja til netverslana.
Sala á fölsuðum skordýra-
eyði sem eyðileggur nytja-
gróður, hefur áhrif á heilsu
bænda og neytenda og meng-
ar umhverfið hefur valdið
miklum áhyggjum víða í Evr-
ópu.
Þurrmjólk fyrir ungbörn er
dæmi um matvæli sem hafa
verið framleidd í Evrópu og
seld til Kína undir fölsku
flaggi, merkt þekktum vöru-
merkjum.
Merkjavörur
og þurrmjólk
SVIKAVÖRUR AF ÝMSU TAGI
Íþróttaskór Erfitt getur verið að sjá
mun á ófalsaðri og falsaðri merkjavöru.