Morgunblaðið - 14.06.2019, Page 15

Morgunblaðið - 14.06.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 Málað og myndað Húsið þar sem bakarí Brauðs & co er við Frakkastíg vekur jafnan athygli vegfarenda – og listamanna. Kristinn Magnússon Frank-Walter Stein- meier, forseti Þýska- lands, og kona hans Elke Büdenbender fara af landi brott í dag eftir tveggja daga opinbera heimsókn. Á vefsíðu þýska forseta- embættisins var lögð áhersla á að auk sam- tala forsetans við ís- lenskan starfsbróður sinn og Katrínu Jakobsdóttur for- sætisráðherra færi hann í vinnu- stofu Ólafs Elíassonar í Marshall- húsinu. Tilkynning um þetta í Þýskalandi skiptir máli, Ólafur hef- ur aðstöðu í Berlín og er kunnur listamaður í Þýskalandi eins og víð- ar um heim allan. Þá er þess getið að forsetinn minnist þess að 70 ár séu frá því að 500 þýskar konur komu til starfa við íslenskan landbúnað með skip- inu Esju. Hann opni ljósmyndasýn- ingu og hitti nokkrar þessara kvenna. Þessi menningarlegi þáttur heim- sóknarinnar skiptir máli fyrir for- setann á heimavelli. Steinmeier á að baki um 20 ára feril í valdastofnunum Þýskalands. Hann hófst til æðstu metorða innan Jafnaðarmannaflokksins (SPD) á kanslaratíma Gerhards Schröders, 1998 til 2005. Sem leiðtogi jafnaðarmanna átti hann síðan náið samstarf við An- gelu Merkel, kanslara kristilegra (CDU), sem utanríkisráðherra í „stórri samsteypustjórn“ 2005 til 2009 og aftur 2013. Skiptust þau Merkel á að sitja í efsta sæti sem vinsælustu stjórnmálamennirnir. Hún gerði hann 12. febrúar 2017 að forseta Þýskalands eftir að henni mistókst að fá græningja til að setjast í embættið. Erfið stjórn- armyndun Við stjórnarmyndun Merkel að loknum kosningunum 24. sept- ember 2017 reyndi verulega á stjórnmála- manninn Frank- Walter Steinmeier sem forseta. Sumir telja að í sögu þýska sam- bandslýðveldisins hafi forseti þess aldrei glímt við sambærilegan vanda við stjórnarmyndun. Forset- inn átti tveggja kosta völ: að til- nefna kanslara til að leiða minni- hlutastjórn eða rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Steinmeier valdi hvorugan kost- inn heldur sannfærði Merkel- andstæðinginn Martin Schulz, leið- toga SPD, um að hverfa frá and- stöðu sinni við kanslarann og halda áfram samstarfi við Merkel í stórri samsteypustjórn. Schulz fór að ósk- um forsetans og lauk viðræðum við Merkel með stjórnarmyndun 7. febrúar 2018 á grundvelli 170 bls. stjórnarsáttmála. Síðan tilkynnti Schulz án nægi- legs samráðs innan eigin flokks að hann ætlaði taka við af Sigmar Gabriel, fyrrv. formanni SPD, sem utanríkisráðherra. Þetta þótti for- kastanleg fljótfærni sem leiddi til harðra deilna innan SPD. Sagði Schulz af sér sem flokksleiðtogi 13. febrúar 2018 og lagði til að Andrea Nahles yrði eftirmaður sinn. Skömmu síðar gaf hann einnig embætti utanríkisráðherrans frá sér. Merkel og Nahles tókst síðan mynda stjórn 14. mars 2018. Hún situr enn, Nahles er hins vegar horfin úr forystu SPD og Olaf Scholz, vara-kanslari og fjár- málaráðherra, segir að bið verði á nýrri stórri samsteypustjórn eftir þessa. Enginn veit hvað stjórnin lif- ir lengi. Ný skoðanakönnun sýnir þó að meirihluti Þjóðverja vill að hún sitji út kjörtímabilið. Grænar áherslur Seinni dag Íslandsheimsóknar sinnar lögðu þýsku forsetahjónin áherslu á endurnýjanlega orku- gjafa, umhverfismál og loftslags- mál. Græni dagurinn í heimsókn- inni fellur vel að höfuðáherslum í þýskum stjórnmálum. Í ESB-þingkosningunum 26. maí 2019 bar útlendingamál ekki hæst í Þýskalandi eins og margir ætluðu heldur græn mál. Urðu græningjar næststærsti flokkur Þýskalands á eftir kristilegum, jafnaðarmenn féllu í þriðja sæti. Í Die Welt var rifjað upp að við tilnefningu Angelu Merkel sem heiðursdoktors við Harvard-háskóla 30. maí hefði verið borið lof á grænt yfirbragð þýskra stjórnmála, opin landamæri bæru vinsemd í garð innflytjenda vitni, markvisst væri sóst eftir endurnýjanlegum orkugjöfum, umhverfisvernd skip- aði háan sess, kjarnorkuverum væri lokað og hjónabönd samkyn- hneigðra leyfð. Segir blaðið að þarna sé hampað stefnumálum græningja. Þau móti í raun þýsk stjórnmál um þessar mundir. Í skoðanakönnun á vegum Die Welt og sjónvarpsstöðvarinnar ARD í liðinni viku skipaði flokkur græningja efsta sæti fyrir ofan kristilega og jafnaðarmenn. Þá sýn- ir könnun á vegum vikublaðsins Die Zeit að forystumaður græningja, Robert Habeck, er talinn mikilvæg- asti þýski stjórnmálamaðurinn, að- eins ofar en Angela Merkel. Die Welt veltir fyrir sér hvor Habeck verði næsti kanslari og græningjar séu nýr „þjóðarflokkur“ Þýskalands. Loftslagsmál séu það sem skipti mestu fyrir þjóðina. Græningjar nái sér á strik á sama tíma og jafnaðarmenn njóti svipaðs fylgis og AfD, þjóðernissinnaður flokkur gegn innflytjendum. Kjós- endur treysti ekki Annegret Kramp-Karrenbauer, arftaka Mer- kel á formannsstóli kristilegra, fyr- ir kanslaraembættinu. Merkel í Harvard-háskóla Í úttekt Der Spiegel á ferli An- gelu Merkel segir að síðla árs 2016 hafi hún ekki ætlað að gefa kost á sér sem kanslaraefni í fjórða sinn. Donald Trump sigraði í banda- rísku forsetakosningunum 8. nóv- ember 2016. Átta dögum síðar heimsótti Barack Obama, fráfar- andi Bandaríkjaforseti, Berlín og þau Merkel ræddu saman í þrjár klukkustundir yfir kvöldverði á Hótel Adlon. Ben Rhodes, ræðurit- ari Obama, segir í endurminningum sínum að forsetinn hafi aldrei á embættisferli sínum rætt svo lengi við neinn þjóðarleiðtoga. Fjórum dögum eftir Obama- samtalið tilkynnti Merkel að hún gæfi að nýju kost á sér sem kansl- ari. Því embætti hefur hún nú gegnt í 13,5 ár og sitji hún út kjör- tímabilið til 2021 nær hún að jafna tímann sem forveri hennar, Helmut Kohl, sat. Hann var kallaður „eilífð- ar-kanslarinn“. Trump hefur sem forseti frekar haft horn í síðu Merkel og Þjóð- verja. Hann skynjar að hún væri ekki kanslari hefði Hillary Clinton sigrað árið 2016. Í heiðursdoktorsræðunni í Har- vard-háskóla hvatti Merkel til sam- eiginlegs átaks allra þjóða í lofts- lagsmálum og í þágu frjálsra alþjóðaviðskipta. Ræðan er ákall gegn þröngsýni sem mætti Merkel sem námsmanni í Austur-Berlín á tíma Berlínarmúrsins. Í ræðunni segir hún að með hruni múrsins hafi það orðið að veruleika sem margir, þar á meðal hún sjálf, taldi að mundi aldrei verða. Dyr hefðu allt í einu opnast þar sem áður var svartur múr. Hún gat gengið um þessar dyr, hún þurfti ekki lengur að snúa baki við frelsinu eins og áður þegar hún nálgaðist múrinn. Nú gat hún farið yfir þessi landamæri og reynt fyrir sér í veröldinni allri. Hvetur hún unga áheyrendur sína til að láta ekki hugfallast þótt leiðir sýnist lokaðar – hið óvænta gerist. Merkel áréttaði að samstarf þjóðanna við Atlantshaf, reist á gildum lýðræðis og mannréttinda, hefði getið af sér frið og farsæld í meira en 70 ár. Þessa njótum við Íslendingar ekki síður en Þjóðverjar og þess vegna var forseti Þýskalands au- fúsugestur hér ekki síður en Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, sem áréttaði sömu gildi og Merkel í samtali við Morgunblaðið nú í vikunni, þegar hann sagði: „[…] frelsi er betra en helsi, lýð- ræði er betra en einræði og ástin mun alltaf sigra hatrið“. Eftir Björn Bjarnason » Segir blaðið að þarnasé hampað stefnu- málum græningja. Þau móti í raun þýsk stjórn- mál um þessar mundir. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Græn umskipti þýskra stjórnmála Verði þriðji orkupakkinn samþykktur á Al- þingi er Ísland þar með skuldbundið að þjóðarétti til að uppfylla ákvæði hans og inn- leiða í landsrétt. Ófullkomin innleiðing orku- pakkans hér á landi gæti valdið orkufyr- irtækjum, sæstrengsfyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum tjóni og gefið þeim tilefni til að höfða skaðabótamál gegn ríkinu. Þeir ein- hliða fyrirvarar sem ríkisstjórnin hyggst setja við innleiðingu orkupakkans hér skapa því lagalega óvissu og áhættu fyrir ríkið. Vakin var athygli á þessari óvissu í álits- gerð Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst og þar er líka bent á áhættu vegna mögulegra samningsbrota- mála og erfiða stöðu Íslands við þær að- stæður. Við teljum nauðsynlegt að þessi óvissa og áhætta verði greind nánar áður en Alþingi tekur afstöðu til orkupakkans. Einu undanþágurnar frá ákvæðum EES samningsins sem hafa lagalegt gildi, fást hjá sameiginlegu EES-nefndinni. Yfirlýsingar embættismanna ESB og EFTA ríkjanna um að Ísland sé enn ótengt orkumarkaði ESB hafa enga lagalega þýðingu og skerða ekki möguleika hagsmunaaðila til að leita réttar síns. Að okkar mati ber Alþingi að fresta ákvörðun um orkupakkann þar til þessi laga- lega óvissa og áhætta hefur verið könnuð til hlítar. Atli Ingibjargar Gíslason, Björgvin Þorsteinsson, Jón Magnússon, Tómas Jónsson, Þorsteinn Einarsson Lagaleg óvissa og áhætta sem fylgir orkupakkanum Höfundar eru hæstaréttarlögmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.