Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 27

Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 ✝ Sigrún RutEyjólfsdóttir fæddist 29. ágúst 1947. Hún lést á HSS í Reykjanesbæ 6. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Ólafía Theodórsdóttir og Gísli Líndal Stef- ánsson. Átta mán- aða var hún ætt- leidd af hjónunum Margréti Eyþórsdóttur, frá Hamri í Langadal, systur Jóns Eyþórssonar veðurfræðings og hálfsystur Sigurðar Norðdal, og Eyjólfi Þorsteinssyni húsa- smíðameistara frá Ytri- Þorsteinsstöðum í Haukadal. Sigrún giftist Páli Steinari Hrólfssyni og eignuðust þau eitt barn, Sigríði Stefaníu, en fyrir átti Sigrún soninn Eyjólf og gekk Páll honum í föðurstað. Þau skildu. Eftir formleg starfslok tók hún að sér ýmis aukaverkefni fyrir skólann. Hún tók að sér ýmis trúnaðarmál fyrir kennara og var meðal annars trúnaðar- maður um margra ára skeið. Þau Sigrún og Úlfar eign- uðust einn dreng saman, Eyþór Árna. Systkini Sigrúnar eru Soffía, Þorvaldur, Hafdís, Helga Soffía, Stefán, Kristinn Jósef, Edda, Óli Þór, Estíva. Þorvald- ur, Stefán og Edda eru látin. Föðurmegin átti hún bræðurna Sigurð, Ólaf og Björn. Afkom- endur Sigrúnar eru Eyjólfur, f. 1965, ókvæntur, og á hann eina dóttur. Sigríður Stefanía, f. 1970, búsett í Danmörku, gift Gunnari Hans Konráðssyni og eiga þau fimm börn og fjögur barnabörn. Eyþór Árni, f. 1979, fráskilinn, og á hann eina dótt- ur. Úlfar átti tvær dætur frá fyrra hjónabandi, Helgu Sigríði og Ólöfu Marín, Helga er gift Helga Kárasyni og eiga þau þrjá syni, Ólöf á þrjú börn og eitt barnabarn, hún er fráskilin. Útför Sigrúnar verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 14. júní 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Sigrún útskrif- aðist frá Kennara- skóla Íslands vorið 1973 og hóf kennslu í Fella- skóla í Reykjavík það sama ár og starfaði þar í 14 ár. Haustið 1973 kynntist Sigrún eftirlifandi eigin- manni sínum Úlfari Hermannssyni, lög- regluþjóni í Reykjavík, þau kvæntust í desember 1974. 1987 fluttu þau til Keflavíkur og hóf Sigrún kennslu í Myllu- bakkaskóla. Eftir tveggja ára starf í Myllubakkaskóla flutti hún sig í Njarðvíkurskóla og var þar í 10 ár en fór þá í Heið- arskóla, nýjan skóla og var þar um nokkurra ár bil. Sigrún fór svo aftur í Njarðvíkurskóla og starfaði þar, þar til hún hætti formlega störfum. Þá hefur Sigrún vinkona mín kvatt eftir margra ára baráttu við krabbamein sem tókst að sigra hana í fjórðu tilraun. Hún barðist eins og hetja öll þessi ár með léttleikann og lífsviljann að vopni. Við Sigrún kynntumst haustið 1966 þegar við hófum nám í Kennaraskóla Íslands. Við urðum ekki vinkonur strax en eftir gönguferð niður Laugaveg- inn í september það ár ófum við okkar vináttuband sem aldrei slitnaði þó það trosnaði um ára- bil. Fyrir 12 árum ákváðum við að laga vinabandið okkar og bæta í það sterkum þráðum. Samband okkar síðan þá hef- ur styrkst með hverju árinu og við urðum sömu trúnaðarvinkon- urnar og áður. Við vorum um margt ólíkar, hún tveimur árum eldri en ég, hávaxin, glæsileg og alltaf vel til- höfð. Sannkölluð borgardama. Svo átti hún lítinn dreng. Hún var einkabarn foreldra sinna en ég kom utan af landi til borg- arinnar í fyrsta sinn, elst af sjö systkinum og reynslulítil. Það breytti þó engu. Áttum margar ánægjustundir og gengum sam- an í gegnum súrt og sætt í mörg ár. Við gerðum báðar kennara- starfið að okkar ævistarfi og var hún mjög farsæll kennari. Það varð Sigrúnu mikið áfall þegar hún greindist með krabbamein öðru sinni tæplega 60 ára, hélt að hún myndi aldrei framar kenna og gerði starfslokasamn- ing. Þegar hún náði heilsu á ný fór hún aftur að kenna í afleys- ingum meðan kraftar leyfðu. Gafst aldrei upp. Sigrún var mikil fjölskyldu- manneskja, eignaðist þrjú börn sem hún elskaði skilyrðislaust og vildi allt fyrir þau gera. Barna- börnin eru sjö og hvert og eitt átti sér stað í hjarta hennar svo og litlu langömmubörnin fjögur. Var dugleg að prjóna á þau með- an hún gat og passaði upp á að þau skorti ekki neitt. Í ágúst 2015 greindist Sigrún með krabbamein í þriðja sinn. Við tók erfið meðferð sem skerti mjög krafta hennar en aldrei kvartaði hún. Var alltaf með bros á vör svo að það er ekki ör- grannt um að margir hafi ekki gert sér grein fyrir hversu veik hún í rauninni var. Við hjónin ætluðum að fara til Kanarí með Sigrúnu og manni hennar Úlfari í janúar 2017 en þá hafði minn maður veikst af sama sjúkdómi og hún svo við gátum ekki farið. Studdi hún vel við mig í lokabaráttu hans þó að hún sjálf væri veik og hefði að mér fannst nóg með sig. En svona var Sigrún. Hugsaði um aðra en gerði lítið úr sínu. Þau fóru út og nutu ferðarinn- ar en stuttu eftir heimkomuna barði krabbinn aftur á dyr og hún gerði sér grein fyrir að ekki yrðu árin mörg í viðbót. Þvílíkt æðruleysi sem hún bjó yfir og tók bara hverjum degi eins og hann kom. Þau hjón voru höfðingjar heim að sækja og dugleg að bjóða fólki heim. Átti Úlfar mikinn þátt í þeim veislum og lagði gjörva hönd á undirbúning og framkvæmd. Úlfar gerði allt sem hann gat til að hjálpa Sigrúnu í barátt- unni, sem ekki var alltaf auðvelt. Ég var glöð að geta aðeins létt henni lífið og halda í höndina á henni þegar hún kvaddi. Farin er sterk kona og góð vinkona. Kæra fjölskylda. Mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi ykk- ur takast að vinna saman úr þessum mikla missi. Sofðu rótt, elsku Sigrún mín. Minning þín lifir. Þín vinkona, Bergþóra. Kveðja frá Njarðvíkurskóla Okkur barst sú sorgarfrétt núna undir lok skólaársins að Sigrún Eyjólfsdóttir, fyrrum kennari skólans, væri látin. Sig- rún vann við kennslustörf mest alla starfsævi sína, bæði hér í Reykjanesbæ sem og í grunn- skólum í Reykjavík. Sigrún hóf störf við Njarðvík- urskóla árið 1991 og starfaði við skólann nær óslitið þar til hún lét alveg af störfum vegna heilsubrests árið 2012. Hún færði sig um set tímabundið inn- an skóla bæjarfélagsins þegar hún réð sig til starfa við Heið- arskóla þegar hann var stofn- aður, henni fannst það áskorun að taka þátt í að móta nýjan skóla. Á starfsferli sínum við skól- ann tók hún að sér ýmis störf og verkefni og vék sér ekki undan ábyrgð ef til hennar var leitað. Má þar nefna að hún var um tíma trúnaðarmaður kennara enda hafði hún mikla stéttarvit- und og vildi virðingu kennara- stéttarinnar sem mesta. Sigrún var afar farsæll kenn- ari og nálgaðist starf sitt af mik- illi virðingu og lagði metnað í kennslu sína og samskipti sín við nemendur. Samskipti hennar við samferðafólk og nemendur ein- kenndust ávallt af virðingu og hlýju. Hún var vandvirk í öllum sínum vinnubrögðum og hafði einstaklega fallega rithönd svo eftir var tekið og lagði hún mik- inn metnað í skriftarkennslu og að frágangur á vinnu nemenda væri til fyrirmyndar. Sigrún bar hag skólans fyrir brjósti alla tíð og var hér tíður gestur eftir að hún lét af störfum á meðan heilsa leyfði. Hún vildi fylgjast með og fá fréttir úr skólastarfinu. Njarðvíkurskóli stendur í þakkarskuld við Sigrúnu fyrir farsæla og gefandi samleið og vottar aðstandendum hennar innilega samúð. Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla. Sigrún Rut Eyjólfsdóttir kennari er látin. Hún lést á Sjúkrahúsinu í Keflavík þann 6. júní sl. Hún háði mjög erfiða og harða baráttu við illvígan sjúk- dóm, krabbamein. Ég kynntist Sigrúnu fyrst þegar við unnum bæði við Njarð- víkurskóla. Síðan þá hefur Sigrún verið vinur minn alla tíð. Það var gott að eiga hana að vini. Hún var góður kennari, sam- viskusöm og vandvirk í hvívetna, lipur og sérlega ljúf í starfi. Nemendum þótti vænt um hana. Í bókinni „Kyrrðin talar“ eftir Eckhart Tolle segir: „Við meg- um aldrei gleyma því að við get- um fundið tilgang í lífinu, jafnvel þótt við séum í vonlausri aðstöðu gagnvart örlögum sem ekki verða umflúin. Þá ríður á að bera vitni því besta sem manninum einum er gefið, þ.e. að geta snúið persónu- legum harmleik í sigur, þreng- ingum upp í mannleg afrek.“ Hann sagði einnig: „Með því að taka þeirri áskorun að þjást með reisn, hefur lífið tilgang til síð- ustu stundar.“ Sigrún barðist hetjulega við sinn sjúkdóm og dáðist ég að dugnaði hennar. Við eigum öll eftir okkar för um dalinn dimma. Ef til vill er vitundin um það eitt af því sem gerir okkur mannleg. Við erum í fylgd hins eilífa samtímamanns allra manna á öllum tímum. Ég geri mér grein fyrir þeirri tilfinningu sem grípur hjartað er sá tapast sem alls ekki má missa, þegar sá hverfur sem gefið hefur lífinu stóran hluta af tilgangi sínum. Ég votta fjölskyldu Sigrúnar einlæga samúð mína, börnum hennar og fjölskyldum þeirra og alveg sérstaklega Úlfari Her- mannssyni eiginmanni hennar. Gylfi Guðmundsson. Sigrún Rut Eyjólfsdóttir Einstakur dreng- ur er okkur horfinn. Baldvin var traustur og góður vinur. Við vorum skóla- og bekkjarbræður á menntaskólaár- um okkar á Akureyri og vinabönd okkur héldust sterk þrátt fyrir að leiðir okkar hafi alltof sjaldan leg- ið saman eftir brautskráningu. Hann hafði gott lag á því að vingast við fólk og var smitandi bros hans og hlátur þar sterkur faktor. Baldvin kom til dyranna eins og hann var klæddur og fljót- lega eftir að við kynntumst fór hann að leyfa sér að tala við mig eins og rótgróinn vin. Það líkaði mér og renndi þetta stoðum undir vinskap okkur það sem eftir lifði. Baldvin sýndi vinum sínum áhuga og stuðning og hafði skoð- anir á hegðun þeirra. Þó að grínið hafi verið hans sýnilegasta ein- kenni var ekki djúpt á velvild hans og hjartahlýju. Hann var alltaf til staðar fyrir vini sína og traustur hlekkur í ólíkum vinakeðjum. Mér er minnisstætt þegar Baldvin tók mig ásamt einum eða tveimur öðrum á eintal inni á bað- herbergi í busapartíi í fjórða bekk til að tilkynna okkur um veikindi sín. Ég var sleginn en dáðist að því að hann skyldi koma og skemmta sér með okkur þrátt fyrir þessar Baldvin Rúnarsson ✝ Baldvin Rún-arsson fæddist 15. janúar 1994. Hann lést 31. maí 2019 Útför Baldvins fór fram 12. júní 2019. erfiðu fregnir sem hann hafði fengið mjög stuttu áður. Þessi auðmýkt og þrautseigja gagnvart sjúkdómnum fylgdu honum allt til loka. Þegar ég kom heim þetta kvöld réðst hugsunin um veik- indi Baldvins á huga minn og ég gat ekki haldið aftur af tárun- um. Eftir helgina – þegar hann frétti af grát mínum – sagði hann mér að vorkunn væri ekki í boði. Hann benti á að sumir fengju bara erfiðari spil á hendi en aðrir og að ég sjálfur vissi hvernig það væri. Ég geymi margar góðar minn- ingar um Baldvin sem ég rifja ekki upp hér en varðveiti og nota sem lífskraft. Baldvin var alúðleg- ur og góður drengur sem ég mun sakna alla tíð. Engin orð milda sorg þá sem læsir sér um fjölskyldu og vini nú. En Baldvin er floginn í átt til sólar með glampa í augum og þakklæti í hjarta fyrir líf sitt. Og á fluginu er honum litið niður á blíða sjávar- sængina þar sem allar okkar minningar með honum speglast um tíma og eilífð. Þá er stutt í freknótt brosið. Guð blessi fjölskyldu Baldvins og vini og veiti þeim styrk til að halda lífinu áfram með bros á vör þegar myrkasta hríðin er gengin yfir. Því það er það sem Baldvin vill. Vertu sæll, minn kæri og trausti vinur. Við hittumst að nýju. Bjartur Aðalbjörnsson. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR KARLSDÓTTIR, Rúrí, Mosabarði 8, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 9. júní. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. júní klukkan 13. Árni Rosenkjær Karl Rosenkjær Selma Guðnadóttir Guðrún Hildur Rosenkjær Ásmundur Kristjánsson Ágústa Ýr Rosenkjær Jóhann Viðarsson Guðný Birna Rosenkjær Sigurjón Einarsson ömmubörn og langömmubörn Kær vinkona okkar og frænka, SIGURLAUG MAGNÚSDÓTTIR, Vesturbrún 17, lést þriðjudaginn 21 maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd vina og vandamanna, Margrét Ýr Valgarðsdóttir Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HERDÍS MARÍA JÓHANNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 11. júní. Guðný Harðardóttir Guðjón Ármann Jónsson Guðrún Auður Harðardóttir Erla Ruth Harðardóttir barnabörn og langömmubörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og falleg orð við andlát MAGNÚSAR HELGA ÓLAFSSONAR, Sóleyjarima 23, Reykjavík, sem lést 20. maí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki HERU heimahlynningar og Líknardeildarinnar fyrir nærgætni og hlýja nánd. Hildur Bergþórsdóttir Ólafur Magnússon Sæbjörg Richardsdóttir Lára Magnúsdóttir Tim Miller Rúnar Þór Magnússon Gerda Klotz Kristinn Þeyr Magnússon og barnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, RAGNAR FRANZSON fyrrverandi skipstjóri, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 6. júní. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju föstudaginn 21. júní klukkan 13. Hannes Þ. Ragnarsson Ólöf Stefánsdóttir Bergþór Ragnarsson Þórdís Friðfinnsdóttir Eiríkur Ragnarsson Jakobína H. Gröndal Rannveig S. Ragnarsdóttir Aðalsteinn Sverrisson Helga M. Ragnarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn og aðrir aðstandendur Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.