Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 30

Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 75 ára Monika er fædd í Langewiesen í Thür- ingen í Þýskalandi. Hún stundaði tónlistarnám í Essen og varð síðan hörpuleikari með sin- fóníuhljómsveitinni í Koblenz. Hún flutti til Íslands 1976 og starfaði með Sinfóníu- hljómsveit Íslands til 2012. Hún gaf út einn hljómdisk með hugleiðslutónlist og tvo með Páli Óskari Hjálmtýssyni auk fjölda diska með SÍ. Dóttir: Anna Gyða Pétursdóttir, f. 1982. Barnabörn: Ari Fritz og Jökull Nói. Foreldrar: Fritz Abendroth, f. 1908, d. 2001, kennari, og Annelise Abendroth, f. 1913, d. 1997, kennari. Þau voru búsett í Essen og München. Monika Abendroth Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér hefur gengið vel í öllum fram- kvæmdum undanfarið og engin fyr- irsjáanleg hindrun í vegi. Þér verður fyr- irvaralaust kippt í frí, njóttu þess. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef eitthvað hvílir þungt á þér þá er gott að leita uppi aðra sem hafa lent í ein- hverju svipuðu. Settu punktinn yfir i-ið í sambandi sem gerir þér ekki gott. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki tilfinningarnar byrgja þér sýn í ágreiningi þínum við aðra. Þú færð hugmyndir á færibandi og ættir að skrifa þær niður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Freistingarnar eru margar en þú sýnir kjark með því að vísa þeim á bug. Gömul íþróttameiðsl skjóta upp kollinum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hugsaðu þig vandlega um áður en þú segir af eða á um tilboð sem þér berst. Þú færð góðar fréttir af vini eða ættingja. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gefstu ekki upp þótt í móti blási. Þér verður hælt á hvert reipi og þú átt það svo sannarlega skilið. Sumrinu eyðir þú líklega á landinu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er kjörinn dagur til framtíð- aráforma. Þú hefur setið með sveittan skallann við skipulagningu og nú er komið að því að hætta því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þú sinnir mikilvægu ábyrgðarstarfi er óþarfi að taka sjálfa/n sig of hátíðlega. Rómantíkin svífur yfir vötnum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er góður tími til að end- urskoða líf þitt og samband þitt við þína nánustu. Líttu í kringum þig og skoðaðu þá hluti sem þú hefur talið sjálfsagða til þessa og lærðu að meta þá. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það væri indælt ef sambönd væru nákvæmlega eins og mann dreymir um. Leyfðu þér að slaka á og sletta úr klaufunum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft svo sannarlega á auk- inni einveru að halda til að hvíla sig og ná áttum. Þú ættir að sinna áhugamáli þínu betur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver í fortíð þinni hefur enn mikil áhrif á þig. Gættu þess að fara ekki yfir strikið og eyða of miklu. gerður Gísladóttir, f. 28.9. 1952, d. 1.2. 2007, þjóðháttafræðingur og sviðsstjóri á Þjóðminjasafni Íslands. Börn Árna og Hallgerðar: 1) Sig- ríður Árnadóttir, f. 27.7. 1975, d. 1.12. 1998; 2) Guðlaugur Jón Árnason, f. 19.4. 1979, forstöðumaður á frí- að bögglast við að semja lög og texta en veit ekki hvað úr því verður.“ Fjölskylda Maki Árna er Hrund Ólafsdóttir, f. 17.1. 1959, bókmenntafræðingur og leikskáld. Fyrri maki Árna var Hall- Á rni Hjartarson fæddist 14. júní 1949 á Hótel KEA á Akureyri og er alinn upp á Tjörn í Svarfaðardal. Þar er hann með lögheimili en á annað heimili í Reykjavík. Árni gekk í Húsabakkaskóla og Gagnfræðaskóla Dalvíkur, varð stúdent frá MA, eðlisfræðideild, 1969, lauk BS-prófi í jarðfræði frá HÍ 1973, MS-prófi í vatnajarðfræði frá HÍ 1994 og doktorsprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 2004 í jarðlagafræði og jarðsögu. Hann starfaði lengi fyrir Orku- stofnun og síðan Íslenskar orkurann- sóknir. Þar hefur hann unnið að kortagerð, hafsbotnsjarðfræði og rannsóknum á jarðhita og grunn- vatni bæði hérlendis og erlendis. Hann sinnti um árabil kennslu við Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur skrifað nokkrar bækur og fjölda greina um jarðfræði og tengd efni í íslensk og erlend tímarit og er höfundur að allmörgum jarðfræðikortum. Árni hefur verið virkur í hags- munasamtökum náttúrufræðinga og var formaður Félags íslenskra nátt- úrufræðinga (FÍN) 1991-1995 og síð- ar formaður Hins íslenska nátt- úrufræðifélags (HÍN) 2010-2018. Hann er baráttumaður í Samtökum hernaðarandstæðinga og var for- maður miðnefndar SHA 1982-1985 og sat einnig í stjórn Hagþenkis 1997-2000. Árni hefur lengi starfað með Leik- félaginu Hugleik, mest í tengslum við leikritaskrif, textagerð og tónlist. Nokkur leikrit eftir hann hafa verið sett á svið, bæði innan Hugleiks og utan. Árið 2006 gaf hann út hljóm- diskinn Villifé með með lögum og textum sem flest eru úr leikritum. Lög eftir hann hafa komið út víðar bæði á hljóm- og mynddiskum. Hann er einnig virkur félagi í Gangna- mannafélagi Sveinsstaðaafréttar og hefur stundað smalamennsku, ljóða- gerð og sönglist á þeim vettvangi. „Ég sinni enn þá jarðfræðikorta- gerð og skrifa fræðigreinar; starfið og tómstundirnar eru í einum graut og greinast illa að. Ég er síðan aðeins stundaheimilum Reykjavíkurborgar, bús. á Seltjarnarnesi. Maki: Karen Inga Einarsdóttir, viðskiptafræð- ingur og flugfreyja. Barnabörn: Eld- járn Steinn, f. 2014, og Elín Sigríður, f. 1918; 3) Eldjárn Árnason, f. 28.10. 1983, lögmaður, bús. í Hafnarfirði. Árni Hjartarson jarðfræðingur (PhD) – 70 ára Á Hótel KEA Árni staddur á fæðingarstað sínum ásamt Sigríði Hafstað, móður sinni, og sonum sínum, Eldjárni og Guðlaugi Jóni. Náttúrugrúskari eins og allir frá Tjörn Í réttum Árni og Hrund í Tungurétt í Svarfardal, en þær eru fastur liður með Gangnamannafélaginu. Jarðfræðingur Árni sinnir jarð- fræðikortagerð og greinaskrifum. 50 ára Oddur er úr Breiðholtinu en býr í Hafnarfirði. Hann er margmiðlunarfræð- ingur frá Tækniskól- anum og er verk- efnastjóri tölvumála hjá Landsbjörgu. Maki: Sigurbjörg Fjölnisdóttir, f. 1975, sálfræðingur og vinnur hjá Mosfellsbæ. Börn: Hrafnhildur Lára Hafþórsdóttir, f. 1992, Steinunn Lóa Hafþórsdóttir, f. 1996, og Dagur Már Oddsson, f. 2003. Foreldrar: Kristinn Oddsson, f. 1933, d. 2011, bifreiðarstjóri og starfsmaður Málningarverksmiðjunnar Hörpu, og Hansína Bjarnadóttir, f. 1948, fyrrv. ræst- ingastjóri á Borgarspítalanum. Hún er búsett í Reykjavík. Oddur Einar Kristinsson Til hamingju með daginn Þau mistök voru gerð í blaðinu í gær í dálkinum Til hamingju með daginn um Guðmund Bjarnar Sig- urðsson að mynd birtist af öðrum Guðmundi Sigurðssyni. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Rétt mynd er hér til hliðar. Leiðrétting

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.