Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 34
1. DEILD
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Úrslitin í 1. deild karla í knattspyrnu í
gærkvöldi voru þess eðlis að nánast
var eins og stigataflan hefði verið
pressuð saman í bílapressu. Einungis
þremur stigum munar á efsta sætinu
og því sjöunda eftir sjö umferðir.
Fimm leikir fóru fram í sjöundu um-
ferðinni og fjórir þeirra unnust á úti-
velli. Leiknir R. og Þór munu ljúka
umferðinni á morgun. Þá geta Þórs-
arar náð toppsætinu.
Víkingur Ólafsvík fór upp að hlið
Fjölnis á toppi deildarinnar með 3:1
sigri þegar liðin mættust í Graf-
arvogi. Ólsarar eiga leik til góða og
hafa spilað sex leiki en þeir taka á
móti Keflvíkingum í þjóðhátíðarleik í
Ólafsvík á mánudaginn.
Sigurmark í uppbótartíma
Grótta fór upp að hlið Fram með 11
stig en þessi lið eru í 4. og 5. sæti.
Grótta hafði betur gegn Fram 3:2 eft-
ir að hafa lent 2:1 undir í sveiflu-
kenndum leik. Pétur Theódór Árna-
son og Axel Freyr Harðarson
tryggðu Gróttu sigur með mörkum á
84. mínútu og í uppbótartíma. Nýlið-
arnir af Seltjarnarnesi spjara sig vel í
deildinni sem af er og hafa aðeins tap-
að tveimur leikjum af fyrstu sjö.
Þróttarar létu vita af sér með 3:1
sigri í Keflavík þrátt fyrir að Keflvík-
ingar kæmust yfir snemma leiks.
Þróttur er nú með 50% árangur og tíu
stig. Keflvíkingar eru einnig með 10
stig en eiga leik til góða.
Galopin deild sem stendur
Ekki varð einungis samþjöppun í
efri hluta deildarinnar því bæði
Magni og Haukar náðu í sína fyrstu
sigra í deildinni í sumar.
Gunnar Örvar Stefánsson stal sen-
unni og skoraði öll mörk Magna í 3:2
sigri gegn Njarðvík, spútníkliði bik-
arkeppninnar.
Magni er nú með 5 stig og er stigi á
eftir Aftureldingu og Haukum sem
mættust í Mosfellsbæ. Haukar sigr-
uðu 2:1 og komust í 2:0 í fyrri hálfleik.
Njarðvíkingar eru rétt fyrir ofan með
sín 7 stig. Ef eitthvað er að marka
stöðuna eins og hún er núna þá gæti
verið gífurlega spennandi sumar fram
undan í 1. deildinni. Ekkert lið hefur
slitið sig frá í efsta sæti og ekkert lið
er í áberandi mestum vandræðum á
botninum. Framhaldið ætti því að
vera mjög forvitnilegt og getumun-
urinn á liðunum virðist ekki mikill.
Fjórir útisigrar í 1. deildinni
Deildin þjappaðist verulega saman Fyrstu sigrarnir hjá Magna og Haukum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Grafarvogi Albert Ingason skoraði fyrir Fjölni en það dugði skammt.
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019
Inkasso-deild karla
Magni – Njarðvík..................................... 3:2
Gunnar Örvar Stefánsson 45. (víti), 50., 69.
– Andri Fannar Freysson 37. (víti), Andri
Gíslason 75.
Fjölnir – Víkingur Ó................................ 1:3
Albert Ingason 51. (víti). – Sallieu Tarawal-
lie 14., Martin Kuittinen 34., Ívar Örn
Árnason 76.
Fram – Grótta .......................................... 2:3
Fred Saraiva 32., 35. – Sölvi Björnsson 4.,
Pétur Theódór Árnason 84., Axel Freyr
Harðarson 90.
Keflavík – Þróttur R ............................... 1:3
Adam Ægir Pálsson 6. – Daði Bergsson 53.,
Rafael Victor 58., Aron Þórður Albertsson
63.
Afturelding – Haukar ............................. 1:2
Djorde Panic 70. – Þórður Jón Jóhannes-
son 4., Arnar Aðalgeirsson 37.
Staðan:
Víkingur Ó. 6 4 1 1 9:4 13
Fjölnir 7 4 1 2 13:9 13
Þór 6 4 0 2 12:6 12
Fram 7 3 2 2 12:10 11
Grótta 7 3 2 2 12:12 11
Keflavík 6 3 1 2 12:7 10
Þróttur R. 7 3 1 3 15:12 10
Leiknir R. 6 3 0 3 11:10 9
Njarðvík 7 2 1 4 7:10 7
Haukar 7 1 3 3 7:12 6
Afturelding 7 2 0 5 10:18 6
Magni 7 1 2 4 9:19 5
HM kvenna í Frakklandi
B-RIÐILL:
Suður-Afríka – Kína................................ 0:1
Li Ying 40.
Staðan:
Þýskaland 2 2 0 0 2:0 6
Spánn 2 1 0 1 3:2 3
Kína 2 1 0 1 1:1 3
Suður-Afríka 2 0 0 2 1:4 0
Í lokaumferðinni leikur Þýskaland við
Suður-Afríku og Spánn við Kína.
C-RIÐILL:
Ástralía – Brasilía ................................... 3:2
Caitlin Foord 45., Chloe Logarzo 58., sjálfs-
mark 66. – Marta 27.(víti), Cristinae 38.
Staðan:
Brasilía 2 1 0 1 5:3 3
Ítalía 1 1 0 0 2:1 3
Ástralía 2 1 0 1 4:4 3
Jamaíka 1 0 0 1 0:3 0
Ítalía og Jamaíka mætast í dag.
Vináttulandsleikur kvenna
Finnland – Ísland ..................................... 0:0
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – Stjarnan .................. 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik ...... 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – HK ........ 19.15
3. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – KV................ 20
Bessastaðav.: Álftanes – Vængir J .......... 20
Í KVÖLD!
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
heldur áfram að spila vel í Nordic-
mótaröðinni og lék fyrsta hringinn
í Österlens í Svíþjóð í gær á 67
höggum. Er hann á fjórum undir
pari vallarins en skorið á fyrsta
hring var reyndar mjög gott og er
Guðmundur aðeins í 6. - 12. sæti á
þessu skori.
Andri Þór Björnsson og Har-
aldur Franklín Magnús voru báðir á
69 höggum í 17. - 17. sæti. Axel
Bóasson sem vann í þessari móta-
röð fyrir tveimur árum var á 73
höggum í gær. kris@mbl.is
Guðmundur á 67
höggum í Svíþjóð
Ljósmynd/GSÍ
Heitur Guðmundur Ágúst hefur
leikið afar vel á árinu.
St. Louis Blues varð NHL-meistari í
íshokkí í fyrsta skipti í sögu félags-
ins aðfaranótt fimmtudagsins og
gífurleg fagnaðarlæti brutust út í
borginni. Eftir 52 ár í deildinni
tókst liðinu að landa hinum sögu-
fræga Stanley-bikar eftir úrslita-
rimmu gegn Boston Bruins.
Oddaleik þurfti til að knýja fram
úrslit og fór hann fram á heimavelli
Boston. St. Louis vann oddaleikinn
4:1 og rimmuna 4:3. Boston vann
tvo leiki í rimmunni mjög stórt, 7:2
og 5:1, en það sló leikmenn St. Lou-
is ekki út af laginu.
Nýtt nafn letrað á
Stanley-bikarinn
AFP
Fyrirliðinn Alex Pietrangelo með
Stanley-bikarinn á lofti.
Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler
byrjaði mjög vel á Opna bandaríska
meistaramótinu í golfi í gær. Fow-
ler er einn sterkasti kylfingurinn
sem ekki hefur náð að sigra á risa-
móti en virðist líklegur til að blanda
sér í baráttuna á Pebble Beach um
helgina. Fowler var einn þriggja
sem höfðu skilað inn besta skorinu
þegar blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi en hann lék á 66 höggum
eins og Xander Schauffele og Louis
Oosthuizen. Schauffele hefur leikið
vel á risamótunum á síðustu miss-
erum en hefur heldur ekki sigrað á
einu slíku. Ooshuizen sigraði á
Opna breska meistaramótinu árið
2010.
Meistari síðustu tveggja ára, Bro-
oks Koepka, byrjaði með látum í
gær og var á þremur undir eftir
fyrstu átta holurnar. Tiger Woods
var á höggi undir pari eftir sjö hol-
ur en hann sigraði á Opna banda-
ríska á þessum velli árið 2000.
Rory McIlroy skilaði inn skori
upp á 68 högg en par vallarins er 71
högg. kris@mbl.is
AFP
66 Rickie Fowler á 18. teignum á Pebble Beach í Kaliforníu í gær.
Þrír kylfingar höfðu
spilað á 66 höggum