Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Vegna þess að þetta er fimmta og
síðasta bókin ákvað ég að byrja bara
með látum,“ segir rithöfundurinn
Ævar Þór Benediktsson um hraðan
og viðburðaríkan söguþráð nýútgef-
innar bókar sinnar Óvænt endalok.
„Venjulega hafa ævintýri Ævars
byrjað frekar rólega en ég hugsaði
með mér að byrja bara með látum og
skrifaði hana þannig að mig langaði
að toppa hvern kafla alveg til enda,“
segir Ævar en hann bendir á að það
hafi verið auðvelt að leyfa sögunni að
fara hratt af stað vegna þess að bókin
kemur í kjölfar fjögurra annarra.
Söguþráður þeirra er kynntur stutt-
lega í upphafi Óvæntra endaloka.
„Í einhverjum tilfellum er ég að
vinna með persónur sem við höfum
hitt áður og því gat ég eytt minni
tíma í að kynna þær til sögunnar.
Eins og ég hef sagt þegar ég hef farið
í skóla að lesa þá er þetta svolítið eins
og Marvel gerir myndirnar sínar,
hver og einn fær sína mynd fyrst en
svo hittast allir í Avengers og þá get-
ur ballið byrjað um leið.“
Bókin er sum sé sú síðasta í bóka-
flokki Ævars sem ber yfirskriftina
„Bernskubrek Ævars vísinda-
manns“. Þar gengur hinn ungi Ævar
inn í unglingsárin og þar með er
bernskubrekunum lokið.
Ævar hefur síðustu fimm ár haldið
lestrarátök fyrir ungmenni og eru
nokkur þeirra sem taka þátt dregin
út á hverju ári og fá að vera persónur
í bókum Ævars. Þetta árið voru það
sex stelpur og eitt par af foreldrum.
Stúlkurnar í bókinni eru allar með
sterk persónueinkenni og eru mjög
ólíkar. Ævar segir að hann hafi skap-
að þær á þann hátt af ásettu ráði.
„Þetta er í fyrsta skipti sem það
gerist að eru allir krakkarnir sem
dregnir eru út eru af sama kyninu.
Það er algerlega Guðna forseta og
Lilju mennta- og menningarmála-
ráðherra að þakka, þau sáu um að
draga úr lestrarátakspottinum.
Ég vildi auðvitað skilja persón-
urnar að svo þær rynnu ekki allar
saman í einn og sama karakterinn og
að sama skapi vildi ég gefa þeim kosti
og galla eftir því hvernig þær nýtast
best inn í söguna.“
Bók sem stendur undir nafni
Eins og alþjóð veit er erfitt að
segja eitthvað um endalok bókar án
þess að spilla henni algjörlega. Þó má
segja að endalokin séu heldur betur
óvenjuleg.
„Ef þú ætlar að kalla bók Óvænt
endalok er eins gott að hún standi
undir nafni. Ég gerði mitt besta til
þess og tel mig hafa náð því. Enda-
lokin eru meira að segja svo óvænt að
prentsmiðjan hafði samband við For-
lagið og spurði hvort þetta ætti að
vera svona,“ segir Ævar.
Útgáfa Óvæntra endaloka markar
tvenn tímamót í lífi Ævars en með
henni lokar hann bæði bókaflokknum
um bernskubrekin og lestrarátök-
unum sem hann hefur staðið fyrir
síðastliðin fimm ár. Aldrei hafa fleiri
bækur verið lesnar í lestrarátaki
hans en í ár voru þær tæplega hundr-
að þúsund. Alls hafa íslenskir krakk-
ar lesið hátt í 330 þúsund bækur á
þessum fimm árum. Ævar er þó
hvergi nærri hættur að hvetja til lest-
urs og uppörvar lesendur til að halda
sín eigin lestrarátök í hálfgerðum
eftirmála Óvæntra endaloka.
„Lestrarátak þarf ekki að vera yf-
irlýst á landsvísu með plakati í hverj-
um skóla. Allir geta haldið sitt eigið
lestrarátak. Það eina sem þú þarft að
gera er að setja þér markmið, eins og
til dæmis að í sumar ætlir þú að
reyna að lesa þrjár bækur. Ef það
tekst ekki þá er það allt í lagi en
reyndu og fáðu foreldrana með, þau
eru langmikilvægustu fyrirmynd-
irnar þegar kemur að lestri,“ segir
Ævar sem bendir börnum gjarnan á
að sumarið sé einmitt tíminn til að
lesa þar sem þá geti þau lesið hvað
sem þau vilji. Mikil gróska sé í bók-
um fyrir ungmenni þessa dagana og
eiginlega sannkallað vorbókaflóð
barnabóka.
Fimm bækur og tvö leikrit
Þrjár bækur eru nú þegar komnar
út eftir Ævar þetta árið og tvær til
viðbótar eru væntanlegar. Leikritið
hans, Þitt eigið leikrit – Goðsaga,
sem tilnefnt var til tvennra Grímu-
verðlauna, er nýhætt í sýningum en
annað leikrit, Þitt eigið leikrit 2 –
Tímaferðalag, er væntanlegt á fjalir
Þjóðleikhússins um miðjan næsta
vetur.
„Í ágúst kemur út bókin Stór-
hættulega stafrófið sem er fyndin,
skrýtin og auðvitað stórhættuleg
stafrófsbók fyrir þá sem eru að byrja
að læra stafina. Þetta er hugmynd
sem ég er búinn að vera með í mag-
anum í tíu ár og fann loks fullkominn
teiknara í verkefnið, hana Bergrúnu
Írisi Sævarsdóttur.
Í nóvember kemur svo út sjötta
„Þín eigin-“ bókin, Þinn eigin tölvu-
leikur. Það er mikil eftirvænting eftir
þeirri bók og þegar ég hef sagt frá
henni þá rignir yfir mig spurningum
um það hvort hinn og þessi leikur sé
ekki þarna. Þannig að sumarið hjá
mér fer svolítið í að stúdera hvernig
Fortnite og Minecraft virka því ég er
rosalega mikið bara Mario Bros og
Pacman.“
Tilbúinn að byrja að hjóla
Hvað leikritið varðar þá segir Æv-
ar að nýja sýningin verði allt öðruvísi
en sú fyrri. „Við lærðum mikið á
þessu fyrsta ferli og vorum svolítið að
finna upp hjólið. Nú getum við byrjað
að hjóla. Tímaferðalagið verður
lengra, stærra og ennþá skemmti-
legra.“
Sköpunarkraftur Ævars er því
augljóslega mikill og hann samsinnir
því að barnið í honum sé sprelllifandi.
„Ég myndi hvergi annars staðar vilja
vera heldur en hér að búa til efni fyr-
ir ungt fólk.“
Barnið er farið að smita út frá sér
en tveir strákar í Melaskóla báðu
Ævar um leyfi á dögunum til þess að
fá að skapa „Þinn eigin tölvuleik“ á
tölvuleikjaformi. „Ég sagði að sjálf-
sögðu að það væri í lagi svo lengi sem
ég fengi að prófa. Ég bíð spenntur
eftir því að þessir ungu forritarar búi
til Þinn eigin tölvuleik,“ segir Ævar.
Einnig var „Þitt eigið-“ form Æv-
ars, sem gengur út á það að lesand-
inn ræður ferðinni á ákveðinn hátt,
notað til kennslu í Hlíðaskóla í skap-
andi skrifum og upplestri. Þar fengu
ungir höfundar allir sömu sögubyrj-
unina en tóku svo við keflinu og
sömdu sínar eigin sögur, hver ann-
arri skemmtilegri, að sögn Ævars.
,,Möguleikarnir fyrir þetta form eru
margir og það er æðislegt að kenn-
arar séu svona sniðugir að nota það.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afkastamikill Ævar með nýjustu bók sína, Óvænt endalok, sem hann segir bæði hraða og viðburðaríka.
„Avengers“ bernskubreka Ævars
Fimmta og síðasta bókin í seríu bernskubreka Ævars komin út Síðasta lestrarátakinu lauk með
tæplega 100.000 lesnum bókum Tvær bækur í smíðum og leikrit á leið á fjalir Þjóðleikhússins
Helstu skáld breskra samtímabók-
mennta, hin ensku Lavinia Greenlaw
og Simon Armitage og Írinn Paul
Muldoon, sækja Ísland heim í næstu
viku, 21. og 22. júní, og taka þátt í
tveimur viðburðum í Reykjavík en
Armitage er nýskipað lárviðarskáld
Bretlands. Reykjavík bókmennta-
borg UNESCO, Háskóli Íslands/
Bókmennta- og listfræðastofnun og
bókaútgáfan Dimma standa að dag-
skránni en aðalskipuleggjendur eru
Ástráður Eysteinsson prófessor og
rithöfundurinn Sjón.
„Í þessari heimsókn er lögð
áhersla á tengsl Bretlandseyja og Ís-
lands, og þá einkum á Ísland og
norðrið sem viðfangsefni og áfanga-
stað Bretlandseyjaskálda, bæði val-
inkunnra skálda á fyrri tíð s.s. Willi-
am Morris, W.H. Auden, Louis
MacNeice og Seamus Heaney og
gestanna þriggja sem eru með
þekktustu ljóðskáldum samtímans á
Bretlandseyjum og er þeim boðið til
landsins af þessu tilefni,“ segir í til-
kynningu og að skáldin þrjú séu
einnig kennarar í ritlist við virta há-
skóla.
Á föstudaginn kl. 16 verður haldið
málþing í Veröld þar sem tengsl
Bretlandseyja og Íslands í gegnum
skáldskap verða rædd og ferðir Bret-
landseyjaskálda norður á bóginn fyrr
og síðar. Sveinn Yngvi Egilsson ræð-
ir við Armitage um ljóð hans og Ís-
landstengsl Audens og MacNeice og
skáldskap sem af þeim tengslum
spratt; Kristín Svava Tómasdóttir
ræðir við Greenlaw um ljóðlist henn-
ar og um tengsl Williams Morris við
Ísland og Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson ræðir við Muldoon um norð-
ursýn hans og landa hans Seamus
Heaney. Á laugardag kl. 15 verður
upplestur og spjall í Norræna húsinu
í tilefni útgáfu ljóðakversins Bréf til
Íslands / Letters to Iceland sem
Dimma gefur út í tilefni komu skáld-
anna hingað. Ljóðabækurnar eru tví-
mála og er hver bók tileinkuð einu
skáldi. Skáldin og íslenskir þýðendur
þeirra munu ræða saman um ljóðin
og lesa upp. Sjón stýrir viðburðinum.
Lárviðarskáld Breta
sækir Ísland heim
AFP
Heiður Armitage með Elísabetu II.
Englandsdrottningu sem sæmdi
hann nafnbót lárviðarskálds í maí.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
Verð 6.990
Verð 6.990 Verð 5.990
Kjólar
Jakki Jakki
Stútfull búð af
Nýjum
vörum