Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 6

Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Höskuldur Þór Jónsson, 21 árs gam- all leikstjóri og handritshöfundur nýs söngleiks, Ðe lonlí blú bojs, seg- ist hafa verið að hlusta á útvarpið þegar hann uppgötvaði hljómsveit- ina Ðe lónlí blú bojs. Hljómsveitina hafði hann ekki heyrt um áður en segist hafa orðið heillaður af henni eftir kynningu á sögu hennar. Urðu þessi kynni Höskuldar kveikjan að því að hann skrifaði samnefndan söngleik sem frumsýndur verður í Bæjarbíói í Hafnarfirði 26. júlí og inniheldur einungis lög Ðe Lónlí blú bojs. Er söguþráðurinn í söng- leiknum skáldskapur, að sögn Hösk- uldar, en hann er lauslega innblásinn af ferli hljómsveitarinnar skammlífu sem starfaði á árunum 1974 til 1976. Hljómsveitina skipuðu Rúnar Júl- íusson, Gunnar Þórðarson, Eng- ilbert Jensen og Björgvin Hall- dórsson en Þorsteinn Eggertsson var aðaltextasmiður sveitarinnar. „Þeir voru svo stórir á sínum tíma en það veit eiginlega enginn af minni kynslóð hverjir þetta eru. Það finnst mér smá sorglegt,“ segir Höskuldur og bætir við að hann vilji vekja áhuga yngri kynslóðarinnar á tón- listinni og fá hana til að líta til baka. Nota raunverulegu dulnefnin „Þetta er geggjuð tónlist. Það finnst mér allavega. Það hafa allir gaman af þessu um leið og þeir setja þetta á fóninn,“ staðhæfir Hösk- uldur. Segir hann að ýmis smáatriði í söguþræðinum megi beintengja við feril upprunalegu hljómsveitarinnar og bendir á að nöfn hljómsveitar- meðlimanna í söngleiknum, Njáll, Páll, Valdimar og Sörli, séu raun- veruleg dulnefni meðlima sveitar- innar sem upphaflega vildu leyna raunverulegum nöfnum sínum. „Ðe lonlí blú bojs átti fyrst að vera svona leynihljómsveit og enginn átti að vita hverjir þetta voru. Þess vegna skálduðu þeir nöfn á alla með- limina en það entist ekki lengi enda þekktu allir þessa gaura. Þeir voru orðnir þjóðþekktir í gegnum hljóm- sveitina Hljóma. Þannig að við not- um leyninöfnin þeirra í söng- leiknum,“ segir Höskuldur. Hann segir að undirbúningurinn fyrir sýninguna hafi gengið frá- bærlega og segist vera fullur eft- irvæntingar fyrir frumsýningunni. „Þetta er mjög góður hópur sem er með hjartað á réttum stað,“ segir hann. Kynntust í Verzlunarskólanum Máni Huginsson, framleiðslustjóri sýningarinnar tekur undir með Höskuldi og segir leikhópinn vera frábæran og bætir við að öll hafi þau kynnst við uppsetningu söngleikja í Verzlunarskóla Íslands, þaðan sem þau útskrifuðust. Hann segir ungan aldur þeirra sem koma að sýning- unni auk þess vekja eftirtekt en allir nema einn í hópnum eru í kringum tvítugsaldurinn. Máni segir að hópurinn hafi fengið mikil og góð viðbrögð við söng- leiknum og bendir á að aðdáendur hljómsveitarinnar Ðe lónlí blú bojs hafi sýnt sýningunni sérstakan áhuga og að margir bíði spenntir eft- ir frumsýningunni. Ljósmynd/Stefanía Elín Linnet Flottir Ingi, Mímir, Styr og Vilberg leika hljómsveitarmeðlimi Ðe lónlí blú bojs og flytja lög sem margir þekkja. Setja upp söngleik með lögum Ðe lónlí blú bojs  Leikstjóri segir fáa af sinni kynslóð þekkja hljómsveitina Hæfileikar Flestir sem koma að sýningu Ðe lónlí blú bojs eru ungir að aldri. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Ólögleg fæðubótarefni og lyf ganga kaupum og sölu á vefsíðum og í hóp- um á Facebook. Eftirlitsaðilum gengur oft erfiðlega að stöðva slík viðskipti og dæmi eru um að sumir söluaðilar hafi fengið að athafna sig áhyggjulausir árum saman. Þannig er til að mynda með sölusíðuna Mala- tonin & 5htp á Íslandi sem starfrækt hefur verið í óbreyttri mynd á Fa- cebook frá því í ársbyrjun 2016 hið minnsta. Á umræddri síðu er hægt að kaupa melatónín sem skilgreint er sem ólöglegt fæðubótarefni hér á landi. Sá sem rekur síðuna gefur gjarnan upp símanúmer sitt þegar hann auglýsir nýjar sendingar. „Með litlum og/eða slitnum svefni er maður að skerða lífsgæðin sín verulega. Lík- aminn þarf á góðri hvíld að halda til að starfa eðlilega og halda heilsu, lík- amlegri og andlegri. Ef þú átt erfitt með svefn er auðveldlega hægt að gera eitthvað í málunum, í dag – próf- aðu melatonin. Þú sérð ekki eftir því,“ segir í nýlegri auglýsingu á síð- unni. „Lyfjastofnun hefur orðið vör við sölu á melatóníni á netinu og sam- félagsmiðlum. Hins vegar hefur það sem við höfum orðið vör við verið framleitt sem fæðubótarefni. Það sama gildir um þessa síðu sem þú bendir á, en þar er tekið fram að efnið sem til sölu er sé fæðubótarefni,“ segir í svari Lyfjastofnunar við fyr- irspurn Morgunblaðsins. „Melatónín er flokkað sem lyf hér á landi eins og í öðrum Evrópulöndum. Hins vegar hefur innflutningur á efninu aukist mjög frá þeim löndum þar sem mela- tónín er skilgreint sem fæðubótar- efni, sem og sala í gegnum netið og á samfélagsmiðlum. Slíkt er ólöglegt þar sem fæðubótarefni sem innihalda lyf skilgreinast sem ólögleg fæðubót- arefni,“ segir þar ennfremur. Zulema Sullca Porta, fagsviðs- stjóri hjá Matvælastofnun, bendir á að melatónín sé innihaldsefni í tveim- ur lyfjum sem fást í apótekum hér á landi. Stofnunin fylgist hins vegar með innflutningi á melatóníni sem fæðubótarefni. „Við höfum orðið vör við aukinn innflutning á þessu efni,“ segir Zulema sem segir tollayfirvöld stöðva sendingar með efninu. „En ekki er til neitt sem heitir 100% eft- irlit, heldur ekki hjá okkur.“ Hún segir að erfitt sé að eiga við dreifingu á ólöglegum efnum í gegn- um Facebook-síður. Þær séu yfirleitt lokaðar og Matvælastofnun sem slík fái ekki aðgang. Matvælastofnun hafi heldur ekki reynt að fá aðgang að lokuðum hópum á Facebook eða sam- bærilegum síðum. Hún rifjar upp tilfelli þar sem reynt var að stöðva dreifingu á ólög- legu fæðubótarefni sem selt var á Fa- cebook. Ekki reyndist unnt að hafa hendur í hári sölumannsins því við- komandi var ekki skráður undir réttu nafni og svaraði ekki pósti frá heil- brigðiseftirlitinu. Síðar var nafn hans horfið af Facebook. „Við höfum ekki möguleika til að stöðva og/eða grípa til aðgerða ef viðkomandi neitar að hafa samband við okkur og það virð- ist vera mjög einfalt á Facebook, þar sem ekki alltaf er um réttar upplýs- ingar að ræða,“ segir Zulema sem játar því fúslega að stofnunin þurfi ef til vill að skoða aðrar aðferðir til að sporna við þessari þróun. Selja ólögleg efni óáreittir á netinu  Aukinn innflutningur á melatóníni sem skilgreint er sem ólöglegt fæðubótarefni hér  Lyfið er selt á síðum á Facebook  Eftirlitsaðilar varnarlausir gagnvart þessari þróun  Skoða þarf nýjar aðferðir Ljósmynd/Thinkstock Lyf Melatónín er víða skilgreint sem fæðubótarefni en flokkað sem lyf hér. Hin árlega flughátíð á Hellu hófst í fyrradag og stendur fram á sunnu- daginn. Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, seg- ir mikið um dýrðir á hátíðinni að þessu sinni, en meðal annars hefur verið keppt í Íslandsmótinu í flugi. „Það eru lagðar fimm flugþrautir fyrir flugmenn, allt frá því að taka á loft og lenda og að reyna á ratvísi manna og flugtækni,“ segir Matt- hías. Hann segir að rætur hátíð- arinnar megi rekja í einhverri mynd nokkra áratugi aftur í tím- ann, en hún hafi undir núverandi formerkjum verið haldin í nærri tvo áratugi. „Hún hefur farið vax- andi á hverju einasta ári,“ segir Matthías, en allt stefnir í að hátíðin í ár verði sú fjölmennasta sem hald- in hafi verið til þessa. Þá verði mik- ið um að vera um helgina á bæði föstudag og laugardag. Allir flug- áhugamenn ættu að geta fengið eitthvað fyrir sinn snúð. „Ef það tekst á loft, þá er það hérna, og núna er meira að segja flug- drekasýning!“ segir Matthías. Allt sem getur flog- ið á flughátíðinni  Stefnir í mikið fjölmenni á Hellu Ljósmynd/Halldór Kr. Jónsson Flughátið Alls kyns flugvélar og flygildi má finna á Hellu þessa dagana. GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.