Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 36
Vísindamaður Glæsilegur vísindalegur ferill dr. Peter Landau, f. 26. febrúar 1935, d. 23. maí 2019, er aðgengi- legur á vefnum. Síðustu ár sín kenndi hann réttarsögu við Ludwigs-Maximilians-háskólann í München og var meðlimur í Bæversku vísindaakademíunni. Ljósmynd/Þórarinn Stefánsson Minnisvarði Við afhjúpun minnisvarða um Konrad Mau- rer á leiði hans í München; Árni Björnsson, Björn Bjarna- son, Kurt Shier, Rut Ingólfsdóttir, Valgerður Valsdóttir, Ingimundur Sigfússon og Jóhann J. Ólafsson. Hinn 23. maí 2019 lést í Münc- hen í Þýskalandi prófessor Dr. jur can h.c. mult Peter Landau, 84 ára að aldri. Hann var fæddur í Berlín 26. febrúar 1935. Ekki er þörf á að ræða hinn glæsilega vís- indalega feril hans hér enda að- gengilegur á vefnum, en síðustu ár sín kenndi hann réttarsögu við Ludwigs-Maximilians-háskólann í München og var meðlimur í Bæ- versku vísindaakademíunni eins og Konrad Maurer og Jón Sig- urðsson forseti á undan honum. Það eru afskipti Peters Landaus af málum Íslandsvinarins Kon- rads Maurers sem ég ætla að minnast á hér. Á 175 ára afmæli Konrads Maurers 29. apríl 1998 voru vígð- ar í Alten Südlichen Friedhof þrjár íslenskar basaltsúlur á gröf hans með áletrun á íslensku og þýsku. Prófessor Peter Landau hélt aðalræðuna klæddur emb- ættisskrúða. Þessi frábæra ræða er prentuð í þýsku útgáfu ferða- sögu Maurers, sem kom út á þýsku 2017. Eftir athöfnina var móttaka í boði sendiherra Íslands, Ingi- mundar Sigfússonar, á nálægum veitingastað. Einnig voru mættir Björn Bjarnason menntamála- ráðherra, dr. Kurt Schier, Árni Björnsson, undirritaður o.fl. Það vildi svo til að ég sat til borðs með þeim hjónum Angeliku og Peter Landau. Þá hafði árið áður Ferðabók Konrad Maurer komið út á ís- lensku í þýðingu Baldurs Hafstað og dreifði ég henni á staðnum. Við þetta tækifæri lýsti ég þeim draumi mínum að eiga íslenska útgáfu ferðasögunnar og hinnar þýsku á frummálinu hlið við hlið í bókaskáp mínum. „Þá látum við þann draum ræt- ast,“ sagði Peter Landau „og gef- um ferðasöguna út á þýsku í Þýskalandi.“ Tuttugu ár liðu áður en þessi draumur rættist. Margt varð til að tefja verkið. Við Peter Landau áttum marga fundi vegna þessa máls, tvo í bæversku vís- indaakademíunni og fleiri með Kurt Schier, Martin Maurer, Wolfgang Maurer föður Martins og Ragnari Finnbogasyni. Ritnefndin fundaði tvisvar heima hjá Peter Landau og Angeliku konu hans. Peter Land- au gafst aldrei upp á því sem hann nefndi „unser Ziel“, mark- mið okkar. Loks fann Kurt Schier norrænufræðing af ítölsku bergi brotinn, dr. Alessiu Bauer, sem margoft hefur komið til Ís- lands. Hún vann verkið ásamt dr. Kurt Schier, á vegum norrænu- deildar Ludwigs-Maximilians há- skólans í München þar sem margir viðkomandi höfðu lært, kennt og starfað. Þegar forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, kom hingað í opinbera heimsókn 12.- 13. júní sl. ákvað Guðni Th. Jó- hannesson, forseti vor, að gefa honum ferðasögu Maurers í þýsku útgáfunni, „Reise nach Is- land 1858“. Þetta var vel til fundið og „sló í gegn“ eins og Guðni orðaði það. Forseti Þýskalands er doktor í lögum. Eftir Jóhann J. Ólafsson Höfundur er stórkaupmaður. Peter Landau studdi útgáfu ferðasögu Konrads Maurer Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon Afhending Við afhendingu ferðasögu Konrads Maurers á Bessastöðum; Eliza Reid, Elke Büdenbender, Frank- Walter Steinmeier og Guðni Th. Jóhannesson. Ritnefnd þýsku útgáfunnar F.v.: greinarhöfundur Jó- hann J. Ólafsson, Peter Landau, Alissia Mauer, Kurt Shier og Martin Maurer. Ljósmynd/Angelika Landau 36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FRÁBÆR HREINSI- OG SMUREFNI FYRIR BÍLINN ÞINN FYRIR BÍLINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.