Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 58
land og stóðu foreldrar okkar
beggja við bakið á okkur þegar kom
að því að passa krakkana þegar
þurfti,“ segir Herdís og ætli ánægj-
an af því hafi ekki verið gagnkvæm.
Herdís leitar mikið í sveitina,
bæði í bústað foreldra sinna í Mjóa-
nesi við Þingvallavatn og sömuleiðis
eiga tengdaforeldrar hennar hús
nærri Flúðum, þar sem þau fara
stundum með börnin. Það er ekki
síst veiðin sem togar og aðstæður
við Mjóanes eru ekki verri. Þar tók
Herdís til dæmis 19 punda urriða
fyrir þremur árum. „Ætli það sé
ekki mitt mesta afrek á þessu
og það er ljóst. „Námið krafðist
þess oft að ég var að læra langt
fram á kvöld eftir að krakkarnir
voru sofnaðir. En ég fékk mikinn
stuðning frá manninum mínum.“ Og
hún kvartar ekki, þó að hún hafi
fagnað ærlega í sumar eftir langan
aðdraganda að útskriftinni. „Mér
fannst í raun þægilegt að eiga börn-
in mín í námi. HR er frábær skóli
og tekur tillit til þess að nemendur
eigi börn á meðan þeir eru í námi.
Ég gat því haldið áfram þar sem frá
var horfið eftir fæðingarorlof. Gæti
ekki verið ánægðari með skólann.
Við maðurinn minn höfum gott bak-
H
erdís Ómarsdóttir er
þrítug í dag. Hún
kom úr túr til Seattle
rétt í gærmorgun,
lagði sig í snatri og
hélt svo beinustu leið af stað í
Mjóanes við Þingvallavatn, þar sem
hún nýtur dagsins og helgarinnar
framundan í faðmi fjölskyldunnar.
Ekki ólíklega við veiðar. Hún fellst
á að vera kölluð ágætlega mikið af-
mælisbarn en samt „ekki mikið
gjafabarn. Mér finnst bara
skemmtilegra að fá vini og fjöl-
skyldu í heimsókn og njóta fé-
lagsskaparins“, segir hún. Svoleiðis
verður það um helgina og á laug-
ardaginn eiga gestir leið um bæinn
og þá verður einhver minniháttar
fögnuður.
Það væri hins vegar of mikið af
því góða að halda stóra veislu því
Herdís hélt eina slíka við ærið til-
efni fyrir ekki svo löngu, nefnilega
22. júní, þegar hún útskrifaðist úr
Háskólanum í Reykjavík með BS-
gráðu í rekstrarverkfræði eftir 8
ára nám. Og önnin í vor var vægast
sagt áskorun, rétt eins og námið
var krefjandi fram að þessu: frá því
að Herdís hóf nám við háskólann
hefur hún fætt þrjú börn. Hún er
síðan flugfreyja í sumarstarfi hjá
Icelandair í sumar, en var hún ekki
beint með hugann við að smíða um-
sóknir um framtíðarstörf í vor, enda
í 6 áföngum í skólanum til að reka
loks smiðshöggið á gráðuna.
Herdís hóf nám við HR haustið
2011. Vorið áður hafði hún verið
ásamt unnusta sínum, Margeiri Ás-
geirssyni, í háskólabænum Durham
í Norður-Karólínu, þar sem hann
nam rekstrarverkfræði í Duke Uni-
versity. Þar bjó hún eina önn og
kynntist menningu sem hún fellst á
að svipi til þess sem þekkist í
bandarískum bíómyndum. Að lok-
inni þessari reynslu ákvað Herdís
að skella sér í rekstrarverkfræði
sjálf í háskólanum en þegar hún hóf
nám árið 2011 var hún þegar orðin
ólétt að dóttur sinni.
Dóttir hennar fæddist svo árið
2012. Sonur hennar 2014. Og annar
sonur hennar 2016. „Þetta krafðist
mikillar skipulagningar,“ segir hún
sviði,“ segir hún og hlær en hún er
ekki ný í sportinu: faðir hennar er
mikill veiðimaður og henni er þetta
í blóð borið. „Ég var mikið í sveit-
inni sem barn og þar fékk ég veiði-
bakteríuna, ef svo má segja. Og hún
er held ég bara að aukast með ár-
unum,“ segir Herdís. Hún nýtir
hvert tækifæri sem gefst til að
skjótast út á land með manni og
börnum.
Annars búa þau í Garðabæ, þar
keyptu þau íbúð árið 2015 í Ása-
hverfinu og eru hæstánægð. Íbúðin
er á jarðhæð í fjölbýlishúsi og fyrir
utan er stór garður með leikvelli og
öllu sem þarf til, til að geta leyft
börnunum að hlaupa inn og út eins
og þau vilja. Það er öryggi. Margeir
maðurinn hennar vinnur hjá Marel
sem rekstrarverkfræðingur og með
haustinu fer Herdís sjálf að leita
sér að vinnu til frambúðar, helst
einhverju sem fer saman við það
sem hún hefur lært í námi sínu í há-
skólanum. „Ég hefði mikinn áhuga
á að vinna við flugrekstur í ein-
hverri mynd, enda er ég sér-
staklega áhugasöm um það. Annars
bara eitthvað tengt skipulagi og
rekstri almennt,“ segir Herdís.
Fjölskylda
Herdís er Garðbæingur, dóttir
Ómars Hafsteinssonar, f. 29. mars
1958, háloftamanns hjá Veðurstofu
Íslands, og Auðar Ingimarsdóttur,
f. 10. september 1959, þjónustufull-
trúa hjá Icelandair. Þau búa í
Garðabæ.
Maki Herdísar er Margeir Ás-
geirsson, f. 15. janúar 1986. Hann
er sem segir verkfræðingur hjá
Marel. Foreldrar hans eru hjónin
Ásgeir Margeirsson, f. 1961, verk-
fræðingur og forstjóri HS Orku, og
Sveinbjörg Einarsdóttir, f. 1955,
hjúkrunarfræðingur. Þau búa í
Garðabæ.
Börn Herdísar og Margeirs eru
Valdís Eva, f. 2012, Ásgeir, f. 2014,
og Ómar Atli, f. 2016.
Systkini Herdísar eru Pétur Geir
Ómarsson, f. 1990, fótboltaþjálfari í
Hveragerði, og Ingimar Daði Óm-
arsson, f. 1997, nemi og þjónustu-
fulltrúi í Garðabæ.
Herdís Ómarsdóttir, flugfreyja og rekstrarverkfræðingur – 30 ára
Ung fjölskylda Herdís og Margeir áttu Valdísi Evu árið 2012. Drengirnir
komu til sögunnar eftir á, Ásgeir árið 2014 og Ómar Atli 2016.
Átti þrjú börn í verkfræðinni
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
60 ára Grétar er fædd-
ur og uppalinn á Höfn í
Hornafirði og flutti á
höfuðborgarsvæðið
1980.
Þar hefur hann búið æ
síðan, mestmegnis í
Kópavogi. Hann er
þjóðþekktur, söngvari og hljómborðsleik-
ari Stjórnarinnar, en hefur starfað meira
og minna í fullu starfi við tónlist frá 1988.
Börn: Kristján, f. 1977, Guðrún Inga, f.
1978, Gréta Karen, f. 1983, Eva, f. 1987,
og Karen, f. 1993.
Foreldrar: Örvar Kristjánsson harm-
onikkuleikari, f. 1937, d. 2014, og Karen
Karlsdóttir, f. 1937, d. 2016. Þau eru
bæði fædd og uppalin á Höfn en fluttust
síðar burt.
Grétar
Örvarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu þér í léttu rúmi liggja gagn-
rýni annarra, þú veist hvað þú stendur fyr-
ir og það skiptir öllu. Dustaðu rykið af
trommusettinu og farðu að æfa þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Gamall vinur eða ættingi ber upp
við þig mál sem mun koma þér verulega á
óvart. Einhver þér náinn fór öfugum meg-
in fram úr rúminu í morgun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki dæma aðra of hart og af
fljótfærni í dag. Lofaðu fjölskyldunni að
hafa einhvern atkvæðisrétt í ákvörðunum
sem teknar eru.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt í innri baráttu og veist ekki
í hvorn fótinn þú átt að stíga. Þér leiðist
ekki þótt þú sért ein/n einhvers staðar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sestu niður, farðu í gegnum málin og
settu þér markmið. Klæddu þig í þín bestu
föt í dag, til hvers að spara þau?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu þær hugmyndir sem þú hef-
ur um heimili þitt verða að veruleika.
Leggðu drög að því að komast í gott
ferðalag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt húsverkin séu ekki í uppáhaldi
hjá þér þarftu að gefa þér tíma til að sinna
þeim. Einhver er ekki að segja sannleik-
ann.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að vita hvað þú vilt
áður en þú reynir að höndla það. Einhver
ýfir upp gömul sár, gefðu þér tíma til að
jafna þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Mundu að þú ert ekki ein/n í
heiminum og það á ekki síst við um vinnu-
stað þinn. Þú átt fullt af góðum og traust-
um vinum sem vilja aðstoða þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu draumórana ekki ná
þannig tökum á þér að þú hafir ekki hug-
ann við vinnuna. Láttu aðra sanna sig áð-
ur en þú hleypir þeim að þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt það freisti að láta berast
með straumnum skaltu íhuga hvað er í
húfi hverju sinni. Þú vilt skemmta þér í
dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eins og það er gott þegar menn
hjálpast að getur það stundum orðið til
trafala þegar of margir koma að verki.
Skelltu þér á tilboð sem þér líst vel á.
30 ára Annie Marín er
Reykvíkingur. Hún út-
skrifast næsta vor úr
lögfræði í Háskól-
anum í Reykjavík og
hefur þar komist á
forsetalista fyrir góð-
an námsárangur. Hún
er nýkjörinn forseti evrópskra samtaka
lögfræðinema, ELSA. Annie er mikill fem-
ínisti og hefur verið virk á vettvangi þeirr-
ar baráttu. Hún stofnaði femínistafélagið
Veru og var formaður þess um skeið.
Börn: Hrafn Óðinn Vestfjörð, f. 2009, og
Kolbeinn Valur Vestfjörð, f. 2015.
Foreldrar: María J. Hrafnsdóttir, f. 1968,
grunnskólakennari, og Guðmundur H.
Jóhannsson, f. 1970, pípulagningameist-
ari.
Annie Marín
Vestfjörð G.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Oliver Thor Marto
Þrastarson fæddist á Landspítalanum
2. nóvember 2018. Hann vó 3.560 g og
var 49 cm að lengd. Foreldrar hans eru
Þröstur Jónsson og Mayeth Marto
Jónsson.
Nýr borgari
SKECHERS D´LITES DÖMUSKÓR. STÆRÐIR 36-41.
DÖMUSKÓR
8.397
VERÐ ÁÐUR 11.995
ÚTSALA
40%
AFSLÁTTUR
>> >>