Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 ✝ Sveiney Sverr-isdóttir fæddist í Reykjavík 4. des- ember 1951. Hún lést á Rigshospit- alet í Kaupmanna- höfn 15. júní 2019. Hún var dóttir Sverris Jónssonar, flugstjóra, f. 16. ágúst 1924, d. 18. janúar 1966, og Sólveigar Þor- steinsdóttur húsmóður, f. 4. mars 1931. Systur Sveineyjar eru Olga Sverrisdóttir, f. 16. maí 1953, Kristín Sverrisdóttir, f. 10. október 1957, og Þórhildur Sverrisdóttir, f. 14. október 1961. Samfeðra er Björn Sverr- isson, f. 15. nóvember 1943. Eiginmaður Sveineyjar var Jens Marius Dalsgaard, f. 23. mars 1948, d. 22. nóvember 2015. Börn þeirra eru 1) Sverrir Jensson Dalsgaard, f. 23. nóv- ember 1974, uppeldisdóttir Sverris er Chloe, f. 12. desem- ber 2010. 2) Sigrid Jensdóttir Dals- gaard, f. 1. maí 1977, börn hennar Tórur, f. 30. júní 2005, og Bryndis, f. 22. apríl 2010, eig- inmaður Sigridar er Oddmar Dam, f. 14. október 1973, dóttir hans er Sandra, f. 8. sept- ember 2008. Sveiney lauk prófi frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1970, prófi frá Gymnastikinstitut Lis Burmes- ters, Kaupmannahöfn, í fim- leikum. Fimleikakennari hjá fimleikafélaginu Stökk í Runa- vík Færeyjum. Kennari í menntaskólanum í Götu. Ritari hjá FKF og síðar fulltrúi hjá Kommunufélaginu (Samband færeyskra sveitarfélaga). Sveiney var jarðsungin frá Glyvra-kirkju í Saltangará í Færeyjum 22. júní 2019. Hún þurfti að segja nafnið sitt þrisvar áður en ég náði því að hún héti Sveiney. Við kynntumst þegar við komum á Íþróttakennaraskól- ann á Laugarvatni haustið 1970. Hún var best í fimleikum, hún fór í splitt á ólympíuslánni og allra best var hún í djassballett. Hún reykti. Í skólanum reykti hún í laumi, að sjálfsögðu. Það varð brottrekstr- arsök ef það uppgötvaðist að ein- hver nemandinn reykti. Ég reykti með henni, ekki vegna tóbakslöng- unar heldur vegna þess að það var bannað. Það forboðna er jú best. Við urðum bestu vinkonur. Árið eftir að við útskrifuðumst fórum við í ferðina miklu. Við sigldum með Gullfossi til Edinborgar, það- an með lestum og rútum niður að Ermarsundi. Yfir það svifum við á svifnökkva til Frakklands. Þar keyptum við okkur hjól og hjóluð- um niður til Barselóna á Spáni. Sveiney var fararstjórinn og ég fylgdi henni eftir eins og lambið ánni, án þess að skeyta neitt um hvar í veröldinni við vorum stadd- ar hverju sinni, leið bara um í mín- um draumaheimi og trúði á að allt myndi reddast sem það gerði þeg- ar ég hafði Sveineyju. En svo allt í einu hafði ég hana ekki. Hún var horfin og ég rammvillt í ókunnri borg, ég leitaði að henni allan dag- inn, vissi ekki mitt rjúkandi ráð, hafði enga ferðaáætlun og næstum enga peninga. Sveiney komst fljót- lega að því að það yrði mér fyrir bestu að hún geymdi peningana mína. Það reyndist rétt, þeir hættu að týnast. Við vorum búnar að fara eins langt suður og við ætl- uðum okkur og vorum á norður- leið, ég á leiðinni heim til Íslands en hún í framhaldsnám til Kaup- mannahafnar þar sem hún síðar hitti hann Jens og gerðist með því Færeyingur. Þegar ég að var orð- in úrkula vonar að finna Sveineyju fyrir myrkur, hitti ég sænska krakka á aldur við okkur sem voru á „interrail“ ferðalagi. Þau voru að leita að náttstað. Ég slóst í för með þeim. Við fórum niður í fjöru og sváfum þar á milli stórra steina. Daginn eftir ætluðu þau að halda til München á Ólympíuleikana og buðu mér að slást í hópinn. En rétt áður en lestin átti að fara sá ég Sveineyju sitjandi á bekk. Ég hef aldrei á ævi minni orðið eins glöð að sjá nokkra manneskju! En af hverju við urðum viðskila minnt- umst við aldrei á. Við urðum svo glaðar að sjá hvor aðra aftur að það var nóg. Síðast þegar við hittumst fórum við að rifja þetta atvik upp í fyrsta skiptið. Þá sagði Sveiney að hún hefði leitað að mér allan daginn og þegar hún var orðin úrkula vonar að finna mig, hitti hún sænska krakka sem voru á leiðinni á Ól- ympíuleikana í München og að hún hefði farið með þeim niður í fjöru og sofið þar á milli stórra steina! Mér finnst gott að hugsa til þess núna, daginn sem besta vinkona mín er jörðuð í Glyvra Kirkju í Færeyjum, að eiga þessa sameig- inlegu minningu. Hún er táknræn fyrir vináttu okkar. Þó við yrðum viðskila þá urðum við það í raun- inni ekki. Í minningunni upplifðum við báðar að hafa leitað hvor að annarri allan daginn og farið síðan með sænsku krökkunum niður í fjöru og sofið þar um nóttina milli stórra steina. Ingibjörg Hjartardóttir. Meira: mbl.is/minningar Sveiney var elst okkar systra, fædd 4. desember 1951. Stóra syst- ir. Minningarnar streyma fram. Hún var alltaf að sauma og skapa frá því hún var smástelpa. Upp í hugann kemur ljósblár silfraður kjóll sem hún fór í á skólaball,, lík- lega 14 ára. Silfraðir sokkar við og ljósbláir skór. Dásamleg minning. Það var mikið líf og fjör á Dyngjuveginum, fjórar systur og fullt af frænkum og vinkonum. Við dönsuðum uppi í stofu við bítla- músík og Sveiney og Olga fóru snemma í djassballet og steppdans hjá Sigvalda. Dansáhuginn varð líklegast til þess að Sveiney valdi íþróttakennaranám á Laugarvatni. Árið 1971 fór hún til Kaupmanna- hafnar að læra fimleikakennslu hjá Lis Burmeister Gymnastikinstitut. Í Kaupmannahöfn kynntist hún Jensa sínum, Jens Maríusi Dals- gaard, Færeyingnum góða, en hann var að læra þjóðhagfræði þar. Þar bjuggu þau í tíu ár og eignuðust börnin Sverri og Sigrid. Hugurinn stóð þó alltaf heim og urðu Færeyjar fyrir valinu en þar fékk Jens vinnu hjá Sambandi sveitarfélaganna í Rúnavík og þau bjuggu sér fallegt heimili. Sveiney undi hag sínum vel og kenndi fim- leika í fimleikafélaginu Stökk og íþróttir við menntaskóla. Seinna hóf hún að vinna með Jens á skrif- stofu FKF. 1992 varð kreppan í Færeyjum til þess að Jens færði sig til Íslands og starfaði hjá Vestnorræna sjóðn- um í sex ár. Á þessu tímabili sá Sveiney um rekstur FKF og varð sú vinna hennar ævistarf. Jens snéri aftur til Færeyja 1998 og vann áfram hjá Vestnorræna sjóðnum og fyrir samtök lista- manna. Sveiney hafði gott orð á sér fyrir mikla þekkingu á málefnum sveit- arfélaganna. Hún naut sín í sér- stökum verkefnum varðandi aldr- aða og eins umhverfismálum þar sem hún kom nýjum hugmyndum áfram. Jens lést í nóvember 2015 eftir erfiða baráttu við krabbamein en rúmlega þrítugur greinist hann með ólæknandi ónæmissjúkdóm. Sveiney var alla tíð meðvituð um að fara sínar eigin leiðir og að hver fengi að njóta sinna hæfi- leika. Hún smitaði þessum við- horfum vel til barna sinna og þau njóta þess í dag. Hún var alltaf lágstemmdari en við hinar syst- urnar, engin læti eða óþarfa galsi. Vissi hvað hún vildi og lá ekki á skoðunum sínum. Gaf ráð á róleg- um nótum og var með sinn skemmtilega hráa húmor. En hún var líka viðkvæmt blóm. Það var ekki auðvelt að missa föður sinn á unglingsaldri og horfa upp á móð- ur sína langveika þegar hún var sjálf að verða móðir. Við systur ræddum þessi mál oft seinni árin og sóttum styrk hvor í aðra. Við sitjum hér við gluggann í Grannatúni og horfum út á fjörð- inn sem systir okkar hafði fyrir augunum stóran hluta ævinnar. Fegurðin er ævintýraleg. Hér kaus hún að vera. Hún bjó sér fal- legt heimili með Jens sínum og börnunum, var listfeng, skapandi, elskaði góðar bækur og að elda góðan mat. Barnabörnin voru henni og Jens allt. Sár er missir þeirra Tór- ur og Bryndísar, að sjá á bak ömmu sinni aðeins fjórum árum eftir að afi þeirra deyr. Sveiney greindist með illvígt krabbamein í lok apríl og lést þann 15. júní eftir stutta en harða baráttu. Við söknum þín, elsku stóra systir. Olga, Kristín og Þórhildur. Elsku hjartans Sveiney. Nú ertu búin að kveðja okkur og farin í sumarlandið til Jens. Við vorum systkinabörn og ól- umst upp í samrýndri og eld- hressri fjölskyldu þar sem allir unnu eða tengdust Flugfélagi Ís- lands. Þú varst elst og leiðtoginn í barnahópnum, ég var í miðið svo samskipti okkar einskorðuðust aðallega af aðdáun og virðingu af minni hálfu. Það var alltaf hist í kaffi hjá ömmu og afa í Heiðargerðinu á sunnudögum og svo þegar tók að vora, þá færðist sunnudagshitt- ingurinn upp í bústað við Rauða- vatn. Jóladagur í Heiðagerðinu og áramót á Dyngjuveginum voru æðislegustu partí fyrr og síðar. Börn og fullorðnir, allir sem jafningjar. Skíðaferðir í skíðaskál- ann í Hveradölum og Jósefsdal, fræg ferð í sumarbústað í Dan- mörku. Jónsmessubrennur og siglingar á Rauðavatni, allt skemmtilegar minningar frá æskuárum okkar. Svo kom reiðarslagið. Pabbi þinn ferst í flugslysi og fjölskyldan varð aldrei söm eftir það. Ég sótti mikið í að koma á Dyngjuveginn til ykkar, því það var sannkallað ævintýrahús. Þar var alltaf fullt af allskonar fólki, vinum, ættingjum og ná- grönnum á öllum aldri. Skærasta minningin er um þig í stóra eldhúsinu með allt undirlagt af efnum og skrjáfpappír svo bein í baki að sníða og sauma hippaföt. Þú fórst til Kaupmannahafnar í nám og ílengdist þar um stund. Hittir stóru ástina, hann Jens. Ég var hrikalega spennt þegar þú boðaðir komu þína með hann í jólaboðið. Ég bjóst náttúrulega við „Ken“ en Jens var ekkert líkur Ken, en skemmtilegri og fyndnari manni hef ég ekki kynnst. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að gista hjá ykkur Jens á stofugólfinu í nokkrar nætur ásamt Rúnari á leið okkar til Spánar. Jens þá í námi en þú að sjá um Sverri. Þú fékkst lánuð hjól og fórst með okkur um alla merk- ustu staði í nágrenninu. Kristjan- íu, Ráðhústorgið og Strikið o.s.frv. Þarna náðum við að kynnast sem fullorðnar og jafningjar og upp frá því spjölluðum við mikið saman þegar þú komst til Íslands. Ég votta ykkur innilega samúð mína, elsku Sverrir og Sigrid, mikil er sorg ykkar að missa báða foreldrana með svo stuttu millibili. Kveðja, Elsa. Sveiney Sverrisdóttir ✝ Guðfríður Her-mannsdóttir (alltaf kölluð Fríða) fæddist í Litla- Skarði í Stafholt- stungum í Borg- arfirði 2. apríl 1931. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 26. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Hermann Guðmundsson, bóndi og síðan starfsmaður Ofnasmiðjunnar, f. 27. apríl 1902, d. 31. mars 1994, og Guðlaug Jónína Klemenz- dóttir, húsmóðir og húshjálp, f. 28. nóvember 1906, d. 16. mars 1994. Systkini Fríðu eru Kristín Margrét Hermannsdóttir, f. 29. október 1933, d. 20. nóvember 2017, Klemens Guðjón Her- mannsson, f. 7. desember 1935, Guðbjörg Hermannsdóttir, f. 8. mars 1944, og Pétur Ólafur Hermannsson, f. 21. febrúar 1953. Fríða giftist 17. júní 1954 Þóri J.W. Bjarnarson málara, f. 2. febrúar 1927, d. 14. mars 1993. Börn þeirra eru: 1) Skarphéðinn Guðmundur Þór- isson, f. 20. júní 1954. Eig- 1993. 3) Hermann Þórisson, f. 14. september 1960, sambýlis- kona Michéle Klein, f. 16. nóv- ember 1963, hans börn með Hallfríði Eysteinsdóttur, f. 22. nóvember 1961: a) Guðfríður Hermannsdóttir, f. 8. nóvember 1982, sambýlismaður Daníel Bjarni Ingólfsson, f. 20. janúar 1982, b) Íris Arna Hermanns- dóttir, f. 8. febrúar 1988, c) Steinar Þór Hermannsson, f. 1. janúar 1990. Barn hans með Madara Sudare, f. 25. maí 1979: Eldar Hermannsson, f. 31. maí 2013. 4) Þórir Örn Þórisson, f. 4. desember 1967. Sambýlis- kona Virgine Larue, f. 23. mars 1972, stjúpbörn: Rémi Devin, f. 12. mars 2000, og Noémie De- vin, f. 26. júlí 2002. Fríða var í sambúð með Gunnari Sigurðssyni, f. 19. apríl 1943, síðan 1998. Börn hans eru: 1) Sveinn Sigurður Gunn- arsson, f. 11. ágúst 1962, 2) Sig- rún Pedersen, f. 22. ágúst 1972, og 3) Gunnar Ingi Gunnarsson, f. 15. nóvember 1974. Barnabarnabörn Fríðu eru ellefu talsins. Fríða var með gagnfræða- próf úr Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar og fór síðan í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur. Hún vann við ýmis verslunarstörf á sínum yngri árum og sá seinna um kaffistofu Frímúrara og safnaðarheimili Áskirkju. Útför Fríðu fer fram frá Digraneskirkju í dag, 11. júlí 2019, klukkan 11. inkona Ragnhildur Rós Indriðadóttir, f. 11. ágúst 1956, og þeirra börn: a) Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, f. 15. október 1990, sambýlismaður Þorfinnur Hannes- son, f. 26. október 1990, b) Indriði Skarphéðinsson, f. 18. ágúst 1992, sambýliskona Kolbrún Þóra Sverrisdóttir, f. 6. febrúar 1996, c) Þuríður Skarphéðinsdóttir, f. 18. ágúst 1992. Barn úr fyrra hjónabandi með Unni Dóru Norðfjörð, f. 15. nóvember 1955: Árni Valur Skarphéðins- son, f. 14. febrúar 1977, eigin- kona Iðunn Ólafsdóttir, f. 31. janúar 1974. 2) Elsa Þuríður Þórisdóttir, f. 3. október 1955. Eiginmaður Höskuldur Borgar Ásgeirsson, f. 29. mars 1952, og þeirra börn: a) Ásgeir Leifur Höskuldsson, f. 24. mars 1978, sambýliskona Lára Rán Sverr- isdóttir, f. 11. október 1989, b) Inga Rós Höskuldsdóttir, f. 18. desember 1988, eiginmaður Luke Pommersheim, f. 14. sept- ember 1988, c) Þórir Freyr Höskuldsson, f. 2. desember Elsku mamma, nú þegar komið er að leiðarlokum er margs að minnast, og mikið þakklæti er mér efst í huga. Þú varst einstök kona og móðir. Aldrei hef ég þakkað þér nægj- anlega fyrir þína fórnfýsi, um- hyggju og ást sem þú gafst mér og mínu fólki. Þú varst alltaf til staðar og það var alls ekki sjálf- gefið. Ófáar voru ferðir þínar til okkar þegar við bjuggum er- lendis til að létta undir með okkur. Barnabörnin tala um það hvað gott var að leita til þín með alla skapaða hluti. Þú varst mjög bóngóð og útsjónarsöm, og leituðu bæði vinir mínir og nágrannar til þín, sérstaklega á okkar unglingsárum, þegar eng- inn skildi þau heima fyrir. Í Miðtúninu bjó stórfjölskyld- an: mamma þín og pabbi, systk- ini þín og svo bættumst við systkinin eitt af öðru við og dreifðumst um allt húsið. Að- dáðunarvert er líka minningin um hve vel þú hugsaðir um for- eldra þína. Það var mikið áfall fyrir okkur öll þegar pabbi féll frá eftir stutt veikindi og svo ári seinna þegar foreldrar þínir féllu einnig frá. Þú fluttir á Austurbrún og bjóst þér fallegt heimili þar. Þar kynntist þú honum Gunnari þínum, og áttuð þið saman góða ævi, bæði hér og á Kanaríeyj- um. Þar dvölduð þið vetrarlangt í mörg ár, og nutuð þess með góðum vinum. Mamma þreyttist aldrei á að segja mér hvað Gunnar væri góður við hana og sagði ég þá við hana að ég þakkaði nú bara Guði fyrir hann á degi hverjum. Góðar minningar lifa með mér. Elsa. Kynni okkar Guðfríðar (Fríðu) hófust fyrir tæpum 45 árum síðan þegar leiðir okkar Guðfríður Hermannsdóttir ✝ Yngvild Svend-sen fæddist í Drammen, Noregi, 20. apríl 1956, en ólst upp í Spikkes- tad. Hún lést á heimili sínu í Ósló 26. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Lillemor Svendsen, f. 18.3. 1920, d. 4.12. 2006, og Bernt Svendsen, f. 30.10. 1915, d. 1.4. 2001. Yngvild átti fjög- ur systkini: Siri Randers- Pehrson, f. 6.11. 1944, Ragn- hild Hofgaard, f. 17.5. 1946, Torill Gro Eriksen, f. 9.7. 1947, d. 21.10. 1975, og Olav Svendsen, f. 17.5. 1949, d. 28.5. 1975. ar áttu tvo syni, Sindre Ein- arsson, f. 18. febrúar 1986, og Frey Einarsson, f. 6. janúar 1988. Yngvild hóf nám við lýðhá- skólann í Skjeberg 1976. Þar kynntust þau Jón Einar. Þau fluttu til Íslands 1977 þar sem Yngvild lærði íslensku sam- hliða vinnu. Árið 1978 fluttu þau aftur til Noregs og bjuggu sér heimili í Ósló, Nor- egi. Yngvild starfaði lengi sem iðjuþjálfi á Hjemmet for döve í Ósló þar sem hún vann með heyrnar- og sjónskert fólk. Fyrir nokkrum árum settist Yngvild aftur á skóla- bekk og útskrifaðist sem fé- lagsráðgjafi frá Høgskolen í Ósló og starfaði sem félags- ráðgjafi á NAV, Sagene í Ósló. Útför Yngvildar fer fram frá Nordstrand kirkju í Ósló í dag, 11. júlí 2019, klukkan 12. Yngvild giftist 13.8. 1983 Jóni Einari Guðjóns- syni, blaðamanni, f. 1.1. 1954, d. 24.11. 1994. For- eldrar hans voru Guðjón Einarsson, f. 16. apríl 1904, d. 5. júlí 1981, og Halldóra S. Jóns- dóttir, f. 13.11. 1928, d. 4.5. 1958. Eftir lát móður sinnar ólst Jón Einar upp hjá móður- ömmu og -afa og hjá móður- systur sinni, Sigríði A. Jóns- dóttur, f. 13.11. 1928, d. 23.2. 2012, og manni hennar, Kol- beini Helgasyni, f. 1.8. 1928, d. 15.6. 2015, og tveim uppeld- issystrum. Yngvild og Jón Ein- Yngvild ólst upp í stórum systkinahópi. Árið sem hún fædd- ist var Siri 12 ára, Ragnhild 10, Torill 9 og Olav 7 ára. Hún var litla systir okkar og mikill gleði- gjafi fyrir okkur þessi stóru. Eftir menntaskóla lærði hún við lýðháskólann í Skjeberg. Þar kynntist hún Jóni Einari og með honum flutti hún í eitt ár til Ís- lands og lærði íslensku. Það var mikil gleði þegar þau giftust árið 1983 og mikill spenningur og gleði meðal systkinabarnanna þegar litlu frændurnir fæddust, Sindre árið 1986 og Freyr árið 1988. Yngvild þótti vænt um Ísland og deildi gjarnan gleði sinni og áhuga á landinu með öðrum. Hún fór ekki bara með synina til Ís- lands heldur líka marga aðra fjöl- skyldumeðlimi frá Noregi, til að þeir gætu líka kynnst landinu og ættingjum Jóns Einars. Ég er ekki sérstaklega hrifin af að ferðast, svo að lokum var ég kannski sú eina af okkar stóru fjölskyldu, sem ekki hafði komið til Íslands. Sem betur fer fékk ég tækifæri til þess í ágúst 2014, Per-Henning og ég fórum til Ís- lands með Yngvild. Hún var full- kominn fararstjóri. Hún talaði ís- lensku, vissi hvað við áttum að sjá og gera. En best af öllu var að við fengum að kynnast fjöldskyldu Jóns Einars, sem hún var orðin hluti af. Okkur var vel fagnað, með veitingum og gistingu og notalegum samtölum. Jafnvel veðrið sýndi sitt besta, þannig að betri kynni af Íslandi hefðum við varla geta fengið. Ragnhild, systir Yngvildar. Í dag kveð ég kæra mágkonu mína, Yngvild Svendsen, svo allt- of fljótt. Ég kynntist Yngvild fyrst þegar ég var um sjö ára. Hún kom til Íslands með Nonna og hér bjuggu þau í um eitt ár. Yngvild var fljót að læra íslensku og hélt henni við alla tíð. Eftir að Yngvild og Nonni fluttu aftur út til Noregs heimsóttum við fjöl- skyldan þau oft til Osló og nutum þess að gista hjá þeim, fyrst í íbúðinni á Ensjö og seinna í nota- lega raðhúsinu þeirra í Lam- bertseter. Þá kynntumst við einn- ig fjölskyldu Yngvildar, sem tók okkur opnum örmum og bauð okkur velkomin í norsku fjöl- skylduna. Þetta var mikið ævin- týri fyrir okkur litlar stelpur að kynnast öllu norska fólkinu og líf- inu í Noregi og alltaf svo gaman Yngvild Svendsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.