Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Styrmir Gunnarsson telur sig sjáað það séu „vísbendingar hér og
þar um að þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins standi ekki alveg á sama
vegna stöðunnar
varðandi orkupakka
3 innan flokksins.
Það er alla vegajákvætt.
Ein vísbendingum þetta er
grein Haraldar
Benediktssonar,
alþingismanns, í
Morgunblaðinu fyrir
helgi, þar sem hann
viðrar hugmyndir
um þjóðaratkvæða-
greiðslu um sæstreng.
Önnur er að fregnir herma, aðeinstakir þingmenn flokksins
hafi leitað eftir samtölum við virka
flokksmenn í hverfafélögunum í
Reykjavík um málið.
Það er líka jákvætt.
En orðin ein duga ekki til.Vonandi nota þingmennirnir
sumarið vel til þess að átta sig á
stöðunni.
Hún er alvarleg.“
Þetta er rétt hjá Styrmi. Haraldurhefur löngum sýnt að hann er
góður og gegn þingmaður sem tekur
starf sitt alvarlega.
Og það er gott að hann vill eigaþátt í að leiða flokkinn sinn út
úr ógöngunum. En hann er fjarri því
að vera kominn á leiðarenda með því
sem hann orðar sem lausn. En fyrsta
skref er upphaf allra góðra ferða.
Fyrsta skref en
fjarri leiðarenda
STAKSTEINAR
Styrmir
Gunnarsson
Haraldur
Benediktsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tilboð vegna uppsteypu nýbyggingar Landsbank-
ans við Austurbakka 2 voru opnuð þriðjudaginn 9.
júlí. Fimm tilboð bárust og voru þau frá 95% til
110% af kostnaðaráætlun. Tilboð Þ.G. Verk ehf.
var lægst, eða 2.782 milljónir króna, en kostnaðar-
áætlun verksins er 2.935 m.kr. Tilboðin eru nú í yf-
irferð hjá umsjónaraðila verkkaupa, VSB verk-
fræðistofu, samkvæmt upplýsingum Elínborgar
V. Kvaran hjá Landsbankanum.
ÞG Verk hefur á síðustu árum byggt hundruð
íbúða fyrir almennan íbúðamarkað auk þess að
þróa og byggja fjölbreytt atvinnuhúsnæði. Fyrir-
tækið, sem kennt við stofnandann og forstjórann
Þorvald Gissurarson (ÞG), byggði meðal annars
upp Hafnartorgið, sem nú er risið í Kvosinni, í ná-
munda við nýbyggingu Landsbankans.
Hið nýja Landsbankahús, sem rísa mun við hlið
tónlistarhússins Hörpu, verður steinsteypt fimm
hæða verslunar- og skrifstofuhús. Heildarstærð
með bílakjallara verður 21.497 fermetrar. Húsið
sjálft verður 16.500 fermetrar. Bankinn hyggst
nýta um 10.000 fermetra. Byggingarkostnaður er
áætlaður tæpir níu milljarðar, að lóðarverði með-
töldu . sisi@mbl.is
ÞG Verk bauð lægst í uppsteypu
Tilboð í nýjan Lands-
banka 2,8 milljarðar
Mynd/Arkþing ehf. og C.F. Møller
Kletturinn Vinningstillagan að nýjum höfuð-
stöðvum Landsbankans við hlið Hörpu.
Byggingafulltrúinn í Reykjavík
hefur samþykkt beiðni Alþingis um
leyfi til að byggja skrifstofuhús fyr-
ir starfsemi þingsins á Alþingisreit,
með aðstöðu fyrir fundahöld, mót-
tökur og ráðstefnur.
Nú þegar byggingaleyfið liggur
fyrir verður byrjað að undirbúa út-
boð á jarðvinnu, að sögn Helga
Bernódussonar, skrifstofurstjóra
Alþingis. Reiknar hann með að út-
boðið verði auglýst strax í haust.
Þegar framkvæmdir hefjast á
reitnum má búast við einhverri
röskun umferðar í Vonarstræti.
Gjöld vegna umsóknarinnar eru
tiltekin í bréfi byggingafulltrúans
og nema þau samtals nálægt 117
milljónum. Þyngst vegur viðbótar
gatnagerðargjald rúmar 113 millj-
ónir og byggingaleyfi 2,8 milljónir.
Nýbygging Alþingis mun standa
á horni Vonarstrætis, Tjarnargötu
og Kirkjustrætis. Hún verður alls
tæpir 6.300 fermetrar. Húsinu er
ætlað að sameina alla starfsemi Al-
þingis, sem nú er á mörgum stöðum
í miðborginni.
Árið 2016 var efnt til hönnunar-
samkeppni um nýbyggingu á Al-
þingisreitnum. Alls bárust 22 til-
lögur. Höfundar verðlaunatillög-
unnar voru arkitektar Studio
Granda og höfundur listskreyt-
ingar Kristinn E. Hrafnsson.
sisi@mbl.is
Alþingi fær leyfi til að
byggja skrifstofuhús
Tölvumynd/Studio Grandi
Alþingisreitur Hið nýja skrifstofuhús mun setja mikinn svip á miðborgina.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán.–Fös. 09–17
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins