Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 30
30 VIÐSKIPTIViðskipti | Avinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nokkrir kaupmenn á Íslandi eru í til-
raunaskyni byrjaðir að nota nýja
greiðslumiðlunarlausn frá Valitor.
Tækið kallast PAX og er með Andro-
id-stýrikerfi. Segir Pétur Pétursson,
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Valitor á Íslandi, í samtali við Morg-
unblaðið að tækið bjóði upp á nýja
nálgun í greiðslumiðlun. Það komi í
stað hefðbundinna posa og geri Val-
itor kleift að taka upp samstarf við
fjártæknifyrirtæki, hugbúnaðarhús
og aðra aðila sem vinna að nýjum
leiðum í greiðslumiðlun, afgreiðslu-
hugbúnaði og vildarkerfum m.a.
Til reynslu víða í Evrópu
Lausnin hefur verið notuð af hálfu
Valitor til reynslu víða í Evrópu
undanfarna mánuði að sögn Péturs,
en nú um síðustu helgi var hún notuð
á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku
með nýstárlegum hætti. Þannig
fengu tónleikagestir aðgangsarm-
bönd með NFC-örgjörva sem nýtt-
ust þar með einnig sem snertilaus
greiðslumiðill.
Alls tóku 115 PAX-snjalltæki Vali-
tors á svæðinu við greiðslum á með-
an hátíðin stóð yfir, en 130 þúsund
gestir hátíðarinnar gátu tengt
greiðslukortin sín við armbandið og
fylgst með notkun í sérstöku appi í
símanum sínum. Upphæðir sem
verslað var fyrir skuldfærðust svo
beint af greiðslukorti notenda.
„PAX-lausnin mun á næstu miss-
erum taka við af gömlu posunum og
hafa þjónað greiðslumiðlun í meira
en 25 ár. Við erum með nokkra kaup-
menn á Íslandi sem eru að nota þetta
í tilraunaskyni, þar sem PAX-lausn-
in er byggð inn í posa. Þessa dagana
erum við að vinna með hugbúnaðar-
fyrirtækinu SalesCloud, sem hefur
þróað íslenskan viðskiptahugbúnað
fyrir veitingastaði, að því að innleiða
þeirra app í posana. Þegar þeirri inn-
leiðingu lýkur þá býðst þjónum á
veitingastöðum að taka við pöntun
og ganga frá greiðslu í einu og sama
tækinu – PAX-snjalltæki. Hægt
verður að senda pantanir þráðlaust í
prentara í eldhúsinu og í sama tæk-
inu getur þjónninn skipt reikningi
við borð viðskiptavinar. Við erum dá-
lítið að koma pöntunum á veitinga-
stöðum inn í 21. öldina,“ segir Pétur
til útskýringar.
Samið við stór erlend fyrirtæki
Hann segir að unnið sé hörðum
höndum að því þessa dagana að
klára smáforritaverslun (App Store)
þar sem þróunaraðilar geta boðið
forrit sem vinna á móti PAX-lausn-
inni.
Pétur segir að von sé á fleiri frétt-
um af PAX á næstu vikum. Unnið sé
að því að klára mjög spennandi verk-
efni með stórum erlendum þjónustu-
fyrirtækjum. Þá standa yfir viðræð-
ur við fjölda aðila hér á Íslandi.
Spurður að því hvort í framtíðinni
geti aðilar notað eigin snjalltæki fyr-
ir lausnina, segir Pétur að slíkt gæti
verið mögulegt þegar framleiðendur
snjalltækja og kortafyrirtækin hafi
náð saman um öryggisstaðla. Staðan
í dag sé hins vegar sú að vegna
strangs vottunarferlis kortasamtak-
anna, þá þurfi að nota sérstök tæki
sem Valitor útvegi. „Þess vegna höf-
um við leigt fyrirtækjum þessi tæki,
til að þau uppfærist reglulega með
öryggisuppfærslum.“
Hentar AliPay
og WeChat Pay
Pétur bendir á að PAX-lausnin
gæti verið grunnur fyrir margskon-
ar greiðslulausnir. Þannig sé fyrir-
sjáanlegt að kaupmenn geti tekið við
mörgum tegundum af greiðslu í
sömu lausninni í náinni framtíð.
Nefnir hann sem dæmi lausnir sem
vinsælar eru hjá kínveskum ferða-
mönnum, AliPay og WeChat Pay.
„Það er fátt sem stendur í vegi fyrir
því að þessum öppum sé hlaðið í
PAX-lausnina, þannig að kaupmenn
geti tekið á móti slíkum greiðslum.
Þetta á einnig við um aðrar greiðslu-
lausnir sem hafa reynt að ná fótfestu
hér á landi, en átt erfitt með það.“
Kaupmenn prófa nýja
greiðslumiðlunarlausn
Ný lausn Hugbúnaður frá SalesCloud fyrir veitingastaði fer í PAX-lausnina.
Tengt við armband á Hróarskelduhátíðinni Leysir gömlu posana af hólmi
að hafði verið með, og Icelandair
hafi því uppfært flugáætlun sína til
loka október nk., sé ekki send af því
að félagið búist við að þá ljúki kyrr-
setningu vélanna. Hún sé einungis
send út vegna þess að í október
renni leigusamningar annarra véla
félagsins út. „Nú styttist í vetrar-
tímann hjá félaginu og Icelandair
þarf að nota næstu mánuði til að
meta bókunarflæðið. Félagið gæti
þurft að taka ákvarðanir mjög
snögglega með tilliti til þess,“ segir
Sveinn.
Spurður um fjárhagslega þýð-
ingu fyrir félagið ef svartsýnar
spár ganga eftir, og Icelandair geti
ekki hafið notkun MAX-véla næsta
vetur, segir Sveinn að stærsta
óvissan liggi í því hvað Boeing muni
borga í bætur vegna kyrrsetningar
vélanna og frestunar á afhendingu.
„Forsvarsmenn Icelandair verða
spurðir ítarlega út í þetta á fjár-
festakynningu í lok júlí.“
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í
greiningardeild Landsbankans,
segir að það myndi koma honum á
óvart ef Icelandair myndi geta haf-
ið notkun á Boeing 737 MAX-
flugvélum á þessu ári. Hann segir
að tilkynning sem Icelandair sendi
frá sér í gær, þar sem fram kemur
m.a. að útlit sé fyrir að kyrrsetning
vélanna muni vara lengur en reikn-
MAX fyrir áramót kæmi á óvart
Tilkynnt um lengri kyrrsetningu
Bókunarflæðið metið á næstunni
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Flug Gengið lækkaði um 4,69%.
● Greiningardeild Arion banka gerir ráð
fyrir því að vísitala neysluverðs haldist
óbreytt í þessum mánuði en Hagstofan
birtir mælingu sína þann 22. júlí næst-
komandi. Gangi spáin eftir mun árs-
verðbólgan haldast óbreytt í 3,3%.
Bendir bankinn á að flugfargjöld muni
að öllum líkindum hækka um 24% í
mánuðinum sem er talsvert yfir með-
altalshækkun þeirra í júlímánuði síð-
ustu fimm ár sem er 21,3%.
Ef ekki kæmi til hinnar miklu hækk-
unar flugfargjalda segir bankinn að í
raun myndi mælast verðhjöðnun og
ræður þar mestu að sumarútsölur eru
nú í fullum gangi. Þá hefur einnig orðið
smávægileg lækkun eldsneytisverðs frá
maímánuði.
Telja flugfargjöld hækka
um 24% í júnímánuði
11. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.33 126.93 126.63
Sterlingspund 157.48 158.24 157.86
Kanadadalur 96.26 96.82 96.54
Dönsk króna 18.957 19.067 19.012
Norsk króna 14.586 14.672 14.629
Sænsk króna 13.308 13.386 13.347
Svissn. franki 126.97 127.67 127.32
Japanskt jen 1.1604 1.1672 1.1638
SDR 174.24 175.28 174.76
Evra 141.5 142.3 141.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.8667
Hrávöruverð
Gull 1387.9 ($/únsa)
Ál 1782.5 ($/tonn) LME
Hráolía 63.81 ($/fatið) Brent
● Jón Þór Gunn-
arsson hefur
ákveðið að láta af
starfi forstjóra Arc-
tic Adventures.
Styrmir Þór
Bragason, sem
fram til þessa hef-
ur verið fram-
kvæmdastjóri sölu-
og markaðsmála
fyrirtækisins, mun
taka við starfinu af honum. Báðir eiga
þeir um 14% hlut í fyrirtækinu og
hyggst Jón Þór áfram vera hluthafi þar.
Fyrirtækið er eitt hið umsvifamesta í af-
þreyingarferðaþjónustu hér á landi.
Tekur við keflinu hjá
Arctic Adventures
Jón Þór
Gunnarsson
STUTT
Apple Pay er nú komið í notkun hjá
Íslandsbanka. Hann er síðastur
stóru viðskiptabankanna þriggja til
að taka kerfið í notkun. Viðskiptavin-
ir bankans geta nú tengt greiðslu-
kort sín við Apple Pay með því að
skanna kortin inn í snjallforritið
„wallet“ sem finna má í öllum Apple-
tækjum. Svokallað rafrænt veski
Apple býður notendum IOS-stýri-
kerfisins upp á rafrænar greiðslu-
miðlunarlausnir. Með því geta eig-
endur Apple-vara á borð við iPhone,
Apple watch eða iPad greitt fyrir
vörur með tækjum fyrirtækisins.
Rúmir tveir mánuðir eru frá því að
Arion banki og Landsbanki hófu að
bjóða viðskiptavinum sínum upp á
greiðslumiðlunarlausnir tækni-
risans. Frá þeim tíma hafa tugþús-
undir korta bankanna verið skráðar í
rafræn veski Apple og fjölgar á degi
hverjum. Þá segja forsvarsmenn
beggja banka að mikil ánægja hafi
verið með lausnina. Veskin bjóði við-
skiptavinum jafnframt öruggan og
handhægan geymslustað fyrir
greiðslukort. Þess utan haldist fríð-
indi og tryggingar kortanna óbreytt
þegar greitt er með Apple Pay.
Íslandsbanki hefur legið undir
talsverðri gagnrýni sökum hægrar
innleiðingar þjónustunnar. Nú er
hins vegar ljóst að viðskiptavinir Ís-
landsbanka geta andað léttar og
munu framvegis geta greitt með
snjalltækjum Apple.
aronthordur@mbl.is
Apple Pay í boði fyrir við-
skiptavini Íslandsbanka
Snjallsími Nú geta viðskiptavinir
bankans greitt með símanum.