Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Út er komin önnur hljóm-plata þremenninganna íGróu, einungis tæpu árieftir að sú fyrsta, sam-
nefnd sveitinni, leit dagsins ljós.
Platan er margslungin og erfiðari að
nálgast en fyrsta plata Gróu, sem
var að mörgu leyti mjög heilsteypt
verk með lögum sem töluðu saman
sín á milli og voru
meitluð og mót-
uð. Að öllum lík-
indum voru það
lögin sem liðs-
menn Gróu höfðu
samið fyrst og
legið svolítið yfir,
en þær tóku þátt í Músíktilraunum
með sum af þeim lögum. Nýja plat-
an, Í glimmerheimi, er svo það sem
gerist næst, hin erfiða önnur plata.
Ég veit ekki hvort ég var búin að
hlusta svona mikið á fyrstu plötu
Gróu, en mér finnst hljómurinn á
nýju plötunni aðeins lokaðri, sér í
lagi gítarar og söngur. Trommur og
bassar ná nefnilega upp ansi góðu
grúvi og maður finnur vel fyrir því
góða samspili og stemningu sem lög-
in hafa orðið til í. Hljómborð og pí-
anó spila einnig mun stærri rullu í
tilraunamennsku en áður. Radd-
irnar eru frjálsari og fylgja þannig
lagasmíðunum. Vel má vera að hér
sé Gróa að fá útrás fyrir meiri leik-
gleði og tilraunamennsku, eftir að
hafa haldið fastar utan um útsetn-
ingar á fyrstu plötunni. Bassaleikur-
inn er svona í heildina það sem límir
allt saman svo að langflestar þessara
tilrauna ganga alveg upp, en tilfinn-
ingin um að ef til vill hefði platan
getað orðið betri ef aðeins hefði ver-
ið nostrað meira við hana kemur upp
í kollinn. Á sama tíma detta mér
reyndar stundum í hug hljómsveitir
á borð við Can, þegar gólfpákur og
grúví bassar mæta undarlegum
hrópum og köllum söngkvennanna.
Þannig eru fyrstu lögin tvö á plöt-
unni, „Fullkomið“ og „Tralalalala“,
og eru prýðis lagasmíðar. Svo taka
við nokkur krefjandi lög þar sem
virkilega þarf að leggja við hlustir og
melta. Besta lagið að mínu mati er
svo „María“, það fimmta í röðinni,
með hljómborðsenda sem er alveg
frábær!
Það er tvímælalaust erfitt að gera
allar plötur ef maður á að vera sam-
kvæmur sjálfum sér. Þess vegna er
ég til dæmis mjög fegin að önnur
platan er ekki eins og fyrsta platan,
því þá væri ekki nein þróun að eiga
sér stað. Að sama skapi finnst mér
eins og næsta plata hljóti að verða
algjör snilld því það er svo margt að
gerjast og alls kyns breytingar í píp-
unum sem maður verður var við í
tónsmíðum og tilraunum. Ég man í
augnablikinu eftir einni plötu númer
tvö í röðinni sem var mikil kúvend-
ing frá fyrstu plötu hljómsveitar-
innar og bar með sér hvað í vændum
var hjá bandinu. Þarna er ég að tala
um plötuna Seventeen Seconds, aðra
plötu hljómsveitarinnar The Cure,
en sú plata er afskaplega frjó, fersk
og full leikgleði. Þannig er oft með
„erfiðu plöturnar“ að þær eldast líka
ótrúlega vel, og raunin er sú að
Seventeen Seconds er ein uppáhalds
Cure-platan mín í dag. Gróa hljómar
þó ekkert eins og Cure, og í raun
heldur ekkert eins og Can. Gróa er
með sitt eigið sánd og sinn eigin stíl
og þarf ekkert að breyta því. Hitt
sem hefur lítið breyst á milli þessara
tveggja platna Gróu er textar sem
eru í senn bull, snilld og súrrealismi,
og það er svo greinilegt að það er
gaman að leika sér og semja þá að ég
er hálffegin að þetta er eins. Það
þarf nefnilega ekki alltaf að taka sig
neitt svakalega alvarlega og leysa öll
heimsins vandamál. Stundum er
góður súrrealismi alveg jafn góður.
Erfiða önnur platan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hljómplata
Gróa – Í glimmerheimi bbbmn
Önnur hljómplata Gróu er komin út hjá
útgáfufyrirtækinu Post-dreifing og inni-
heldur hún átta lög. Útgáfudagur var 1.
apríl 2019. Um upptöku og hljóð-
blöndun sá Már Jóhannsson. Um hönn-
un á kápu sáu Atli Finnsson og Gróa. Í
Gróu eru Fríða Björg Pétursdóttir,
Hrafnhildur Einarsdóttir og Karólína
Einarsdóttir.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Súrrealismi „Gróa er með
sitt eigið sánd og sinn eigin
stíl og þarf ekkert að breyta
því,“ segir í rýni um nýjustu
plötu hljómsveitarinnar.
VÍKURVAGNAR EHF.
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Hjólastandar á bíla og í bílskúrinn.
Hver standur er fyrir 2-3 hjól.
Vönduð evrópsk framleiðsla.
Dráttabeisli á allar gerðir bíla ásamt ásetningu.
Fastar kúlur, smellukúlur og prófílbeisli.
Ásetning á staðnum. nnanmál
YFIR 30 ÁRA REYNSLA Í AÐ ÞJÓNUSTA VIÐSKIPAVINI
- MIKIL ÞEKKINGOGVÖNDUÐVINNUBRÖGÐ - farangursbox á allar gerðir bíla.Stærðir 360 - 500 lítra
Vönduð evrópsk framleiðsla.