Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Frábært úrval af sundfatnaði Jón Axel fór í laxveiði í vikunni en lét það ekki stoppa sig heldur tók morg- unþáttinn Ísland vaknar með og sendi út beint frá árbakkanum. Tæknin í dag er orðin svo fullkomin að þetta var gerlegt og mátti vart heyra hvort hann væri við árbakk- ann eða í stúdíóinu með félögum sín- um í morgunþættinum ef ekki hefði verið fyrir árniðinn og fuglasönginn sem heyrðist í bakgrunni. Ellý Ár- manns kíkti í heimsókn og spáði í framtíð hlustenda. Svo vinsælt var að fá spá frá Ellý að símkerfi stöðv- arinnar lagðist nánast á hliðina. Það er í nægu að snúast hjá henni þessa dagana en hún er fengin víða til þess að spá í framtíð fólks og svo er eft- irspurn eftir málverkunum hennar alltaf að aukast. Meðlimir Ísland vaknar lásu fréttir af því að Lands- net telji ekki næga í orku til í landinu til þess að knýja rafbílaflotann. Sem einstakt áhugafólk um rafbíla létu þau sig málið varða og heyrðu í Jóni Trausta, framkvæmdastjóra Öskju bílaumboðs, en hann er þeirrar skoð- unar að nægt framboð verði á raf- magni eftir því sem rafbílaflotinn stækkar. 15% bifreiða á landinu eru knúin áfram eingöngu af rafmagni og ljóst er að eftirspurnin eftir slík- um bílum fer vaxandi. Gísli Marteinn var einnig á línunni og sagði frá áhuga sínum á að fá nákvæmari veð- urspá fyrir höfuðborgarsvæðið. Þ.e. veðurstöðvar sem segja til um veðrið í einstaka hverfum enda getur það verið mismunandi milli hverfa. Bein útsending frá Akureyri Siggi Gunnars skellti sér norður í heimabæinn sinn Akureyri á föstu- daginn og sendi þáttinn sinn, Sum- arsíðdegi, út frá nýjum veitingastað þar í bæ sem heitir Verksmiðjan. Siggi tók góða gesti tali en bauð hlustendum einnig upp á glæsilega vinninga. Til þess að næla sér í þá þurftu hlustendur að taka þátt í Ak- ureyrsku spurningakeppninni. Hlustendur sem komust í beina út- sendingu þurftu því að reyna á þekk- ingu sína á höfuðstað Norðurlands. Gekk það nokkuð vel. Nú gefst þér tækifæri til að athuga þína þekkingu á Akureyri en hér til hliðar eru dæmi um spurningar sem Siggi spurði hlustendur um. Eins var einn helsti lúsmýs-sérfræðingur landsins á lín- unni, Steinunn Ósk, sem hefur reynt ýmislegt til þess að forðast bit og hefur það tekist glimrandi vel. La- vender er uppstaðan í vörum gegn lúsmýinu. „Ég er búin að vera eins og herforingi með lavender-spreyið og er farin að spreyja tjöld í kringum mig,“ sagði hún í samtali við Sigga Gunnars. Steinunn lætur ekki nægja að spreyja allt í lavander heldur þvær hún hún sængurfötin upp úr lavander. Að loknum þvotti straujar hún þau einnig og notar lavander- spreyið með því. Róandi áhrif laven- der eru fyrir löngu þekkt og verður hún vör við þau. „Sonurinn sefur bara í tíu til tólf tíma sko,“ segir Steinunn. Vikan á K100 Það er aldrei lognmolla hjá K100 en þar streyma inn góðir gestir alla daga sem gera stöðina okkar að því sem hún er, persónulega og stórskemmti- lega. Engin undantekning var þar á þessa vikuna en stöðin fékk til sín frábæra viðmælendur sem fræddu hlustendur um eitt og annað ásamt því að senda beint út frá Akureyri í tengslum við stóru fótboltamótin þar, Pollamótið og N1 mótið. K100 er sumarstöðin. Stilltu inn og hækkaðu í gleðinni! Framtíðarspá Ellý Ármanns var vin- sæl meðal hlustenda K100 í vikunni sem vildu ólmir fá spá um framtíðina. 1. Jónsi í svörtum fötum er frá Akureyri. Jónsi, eða Jón, er með millinafn en hvert er það? A. Halldór B. Jósep C. Jósteinn 2. Hvað heitir fjörðurinn sem Akureyri liggur við? 3. Hvað eru íbúar Akureyrar um það bil margir? A. 10.000 B. 18.000 C. 25.000 4. Pylsa með öllu er yfirleitt með tómatsósu, sinnepi, remúl- aði, steiktum lauk og hráum lauk. En á Akureyri hefur lengið verið einskonar þjóðsaga um að menn bæti við einu öðru á pyls- una. Er það gjarnan borðað með sunnudagslærinu eða á jólunum. En hvað er það? 5. Tvær eyjar tilheyra Ak- ureyri. Hvað heita þær? Svör: 1. Jósep 2. Eyjafjörður 3. 18.000 4. Rauðkál 5. Hríseyja og Grímsey Morgunblaðið/Ómar Akureyrska spurningakeppnin Hversu vel þekkir þú höfuðstað Norðurlands? Hér eru nokkrar spurningar sem Siggi Gunnars lagði fyrir hlustendur í akureyrsku spurn- ingakeppninni í vikunni. Svörin eru á hvolfi, fyrir neðan spurningarnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.