Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 36
Vísindamaður Glæsilegur vísindalegur ferill dr. Peter
Landau, f. 26. febrúar 1935, d. 23. maí 2019, er aðgengi-
legur á vefnum. Síðustu ár sín kenndi hann réttarsögu
við Ludwigs-Maximilians-háskólann í München og var
meðlimur í Bæversku vísindaakademíunni.
Ljósmynd/Þórarinn Stefánsson
Minnisvarði Við afhjúpun minnisvarða um Konrad Mau-
rer á leiði hans í München; Árni Björnsson, Björn Bjarna-
son, Kurt Shier, Rut Ingólfsdóttir, Valgerður Valsdóttir,
Ingimundur Sigfússon og Jóhann J. Ólafsson.
Hinn 23. maí 2019 lést í Münc-
hen í Þýskalandi prófessor Dr.
jur can h.c. mult Peter Landau,
84 ára að aldri. Hann var fæddur
í Berlín 26. febrúar 1935. Ekki er
þörf á að ræða hinn glæsilega vís-
indalega feril hans hér enda að-
gengilegur á vefnum, en síðustu
ár sín kenndi hann réttarsögu við
Ludwigs-Maximilians-háskólann í
München og var meðlimur í Bæ-
versku vísindaakademíunni eins
og Konrad Maurer og Jón Sig-
urðsson forseti á undan honum.
Það eru afskipti Peters Landaus
af málum Íslandsvinarins Kon-
rads Maurers sem ég ætla að
minnast á hér.
Á 175 ára afmæli Konrads
Maurers 29. apríl 1998 voru vígð-
ar í Alten Südlichen Friedhof
þrjár íslenskar basaltsúlur á gröf
hans með áletrun á íslensku og
þýsku. Prófessor Peter Landau
hélt aðalræðuna klæddur emb-
ættisskrúða. Þessi frábæra ræða
er prentuð í þýsku útgáfu ferða-
sögu Maurers, sem kom út á
þýsku 2017.
Eftir athöfnina var móttaka í
boði sendiherra Íslands, Ingi-
mundar Sigfússonar, á nálægum
veitingastað. Einnig voru mættir
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, dr. Kurt Schier, Árni
Björnsson, undirritaður o.fl.
Það vildi svo til að ég sat til
borðs með þeim hjónum Angeliku
og Peter Landau.
Þá hafði árið áður Ferðabók
Konrad Maurer komið út á ís-
lensku í þýðingu Baldurs Hafstað
og dreifði ég henni á staðnum.
Við þetta tækifæri lýsti ég þeim
draumi mínum að eiga íslenska
útgáfu ferðasögunnar og hinnar
þýsku á frummálinu hlið við hlið í
bókaskáp mínum.
„Þá látum við þann draum ræt-
ast,“ sagði Peter Landau „og gef-
um ferðasöguna út á þýsku í
Þýskalandi.“ Tuttugu ár liðu áður
en þessi draumur rættist. Margt
varð til að tefja verkið. Við Peter
Landau áttum marga fundi vegna
þessa máls, tvo í bæversku vís-
indaakademíunni og fleiri með
Kurt Schier, Martin Maurer,
Wolfgang Maurer föður Martins
og Ragnari Finnbogasyni.
Ritnefndin fundaði tvisvar
heima hjá Peter Landau og
Angeliku konu hans. Peter Land-
au gafst aldrei upp á því sem
hann nefndi „unser Ziel“, mark-
mið okkar. Loks fann Kurt
Schier norrænufræðing af ítölsku
bergi brotinn, dr. Alessiu Bauer,
sem margoft hefur komið til Ís-
lands. Hún vann verkið ásamt dr.
Kurt Schier, á vegum norrænu-
deildar Ludwigs-Maximilians há-
skólans í München þar sem
margir viðkomandi höfðu lært,
kennt og starfað.
Þegar forseti Þýskalands,
Frank-Walter Steinmeier, kom
hingað í opinbera heimsókn 12.-
13. júní sl. ákvað Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti vor, að gefa
honum ferðasögu Maurers í
þýsku útgáfunni, „Reise nach Is-
land 1858“.
Þetta var vel til fundið og „sló í
gegn“ eins og Guðni orðaði það.
Forseti Þýskalands er doktor í
lögum.
Eftir Jóhann
J. Ólafsson
Höfundur er stórkaupmaður.
Peter Landau studdi útgáfu ferðasögu Konrads Maurer
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Afhending Við afhendingu ferðasögu Konrads Maurers
á Bessastöðum; Eliza Reid, Elke Büdenbender, Frank-
Walter Steinmeier og Guðni Th. Jóhannesson.
Ritnefnd þýsku útgáfunnar F.v.: greinarhöfundur Jó-
hann J. Ólafsson, Peter Landau, Alissia Mauer, Kurt
Shier og Martin Maurer.
Ljósmynd/Angelika Landau
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FRÁBÆR
HREINSI- OG SMUREFNI
FYRIR BÍLINN ÞINN
FYRIR BÍLINN