Morgunblaðið - 11.07.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Rannsókn yfirvalda í Lúxemborg á
stjórnendum og starfsmönnum Kaup-
þings banka hf. og Kaupthing Bank
Luxembourg S.A. vegna kaupa Lind-
sor Holding á skuldabréfum í Kaup-
þingi skömmu fyrir fall bankans árið
2008 er að ljúka. Þetta staðfestir fjöl-
miðlafulltrúi rannsóknardómarans í
Lúxemborg við Morgunblaðið.
Að sögn embættisins mun rann-
sóknardómarinn, Ernest Nilles, bráð-
lega skila málinu til ríkissaksóknara,
sem tekur ákvörðun um hvort gefin
verður út ákæra í málinu og þá gegn
hverjum.
Rannsóknardómarar sjá um rann-
sókn sakamála í Lúxemborg og hafa
þeir það hlutverk að leggja fyrir lög-
reglu hvernig rannsókn sé fram-
kvæmd og hvað eigi að reyna að upp-
lýsa. Rannsóknargögn eru síðan send
aftur til dómarans frá lögreglu. Rann-
sóknardómarinn í Lindsor-málinu var
meðal þriggja manna sem lögreglu-
yfirvöld í Lúxemborg sendu til Íslands
við lok árs 2016 til að yfirheyra Íslend-
inga í tengslum við málið.
Áratugar löng rannsókn á enda
Lindsor-málið hefur verið til rann-
sóknar hérlendis og erlendis í yfir ára-
tug. Að sögn Ólafs Þór Haukssonar
héraðssaksóknara var byrjað að skoða
Lindsor-málið árið 2009 á Íslandi.
Samskipti milli Fjármálaeftirlitsins á
Íslandi og Fjármálaeftirlitsins í Lúx-
emborg, CSSF, „kveikir á málinu úti,“
að sögn Ólafs. Í ljósi reglna um tvö-
falda refsingu var verkaskipting
ákveðin á fundi milli landanna tveggja.
„Við tókum þann hluta sem var kall-
aður Marple-málið og fórum með það
fyrir dóm og þeir tóku Lindsor-
legginn vegna þess að ráðstafanir í því
voru flestar gerðar úti í Lúxemborg,“
segir Ólafur.
Rannsókn málsins snýr að kaupum
félagsins Lindsor Holding Corpora-
tion, sem er skráð á eyjunni Tortóla,
einni af Bresku Jómfrúareyjum, á
skuldabréfum Kaupþings með láni frá
bankanum sjálfum en sama dag
keypti Kaupthing í Lúxemborg
skuldabréf af m.a. starfsmönnum
bankans.
Lindsor fékk 171 milljónar evra
peningamarkaðslán frá Kaupþingi
þann 6. október 2008. Að mati Fjár-
málaeftirlitsins var Lindsor í reynd í
eigu Kaupþings.
Þann sama dag, 6. október 2008,
keypti Lindsor skuldabréf útgefin af
Kaupþingi að upphæð 84 milljónir
evra og 95,1 milljón dala ásamt
skuldabréfum útgefnum af Kaupþingi
í japönskum jenum og krónum á 15,2
milljónir evra. Kaupthing bank í
Lúxemborg var seljandi skuldabréf-
anna en bankinn hafði keypt skulda-
bréf sama dag m.a. af fjórum starfs-
mönnum bankans og félaginu Marple
Holdings S.A., sem var skráð á Skúla
Þorvaldsson.
„Það er mat Fjármálaeftirlitsins að
Lindsor hafi hugsanlega verið notað
til að koma peningum frá Kaupþingi
til tengdra aðila í þeim tilgangi að losa
þá við skuldabréf útgefin af Kaup-
þingi, þar sem ljóst var að staða bank-
ans var orðin grafalvarleg, ásamt því
að halda Kaupthing Luxembourg
rekstrarhæfu,“ segir í vísun Fjár-
málaeftirlitsins til embættis sérstaks
saksóknara frá árinu 2010, sem
Morgunblaðið hefur undir höndum.
Rannsókn sérstaks saksóknara hér
heima sneri að umboðssvikum, þar
sem talið var að með þessum gerningi
hefði bankanum verið stefnt í stór-
fellda hættu.
Þremur dögum eftir að Lindsor
keypti skuldabréfin, 9. október 2008,
tók íslenska ríkið yfir Kaupþing
banka. Hinn 31. október kom lán
Lindsor til greiðslu en félagið greiddi
það ekki enda átti það nánast ekkert
annað en nær verðlaus skuldabréf í
Kaupþingi. Samkvæmt verðmati sóttu
úr Kaupthing banka í Lúxemborg 17.
desember 2008, var verðmæti eigna-
safns Lindsor búið að lækka um 94% á
rúmum tveimur mánuðum.
Skjalafals skoðað í Lúxemborg
Skoðunarnefnd skilanefndar Kaup-
þings sendi árið 2009 ábendingu til
sérstaks saksóknara vegna gruns um
mögulega refsiábyrgð er varðaði
skjalafals stjórnenda og starfsmanna
Kaupþings í tengslum við kaupin á
skuldabréfunum.
„Skoðunarnefnd skilanefndar vill
benda Sérstökum saksóknara á
hugsanlega refsiábyrgð stjórnenda
bankans þar sem pappírar varðandi
yfirtöku KB [Kaupþing] á Lindsor,
ákvörðun eiganda Lindsor um að taka
lán hjá KB EUR 171m og fleiri papp-
írarar virðast ekki undirritaðir fyrr en
í desember 2008 af meðal annars
Hreiðari Má Sigurðssyni, en hann
hætti hjá bankanum 21. október 2008.
Umræddir pappírar eru allir dagsettir
24. september 2008. Ekki hefur fund-
ist samþykki lánanefndar KB fyrir
umræddri lánveitingu,“ segir í bréfi
skilanefndarinnar til sérstaks sak-
sóknara. Í vísun Fjármálaeftirlitsins
til sérstaks saksóknara segir að „í
Lúxemborg snertir hugsanlegt skjala-
fals þá Magnús Guðmundsson [...]
Eggert Hilmarsson [...] Doriane Ros-
signol [...] og Andra Sigurðsson“.
Fjármálaeftirlitið vísaði nöfnum
þeirra og aðild til Fjármálaeftirlitsins í
Lúxemborg.
Ákvörðunar um ákæru brátt að vænta
Rannsókn yfirvalda í Lúxemborg á stjórnendum og starfsmönnum Kaupþings í Lindsor-málinu að
ljúka Ríkissaksóknari í Lúxemborg tekur við málinu Rannsókn málsins hófst hérlendis árið 2009
Lindsor-fl éttan 6. október 2008
6. október 2008
Kaupþing Banki hf. lánar
Lindsor Holding Corp., skráð
á Tortóla, 171 milljón evra.
Tortóla
Ísland
Lúxemborg
9. október 2008
Íslenska ríkið tekur
yfi r Kaupþing
banka hf.
Gjalddagi lánsins til
Lindsor rennur upp
en félagið getur ekki
greitt lánið til baka.
31. október 2008
Neyðarlög sett á
Alþingi kl. 23:18.
Kaupþing fær 500
milljóna evra neyðarlán frá
Seðlabanka Íslands.
Lánsféð kemur
samdægurs inn á
evru-reikning Lindsor
hjá Kaup thing í
Lúxemborg.
Kaupthing í Lúxemborg kaupir skuldabréf
af m.a fjórum starfsmönnum og Marple
holding. Lindsor kaupir skuldabréfi n svo
af Kaupthing í Lúxemborg.