Morgunblaðið - 11.07.2019, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 53
Tálknafjarðarskóli
Tvær stöður umsjónarkennara á yngsta stigi og unglingastigi (50-100%
starf). Fjölbreytt og skemmtileg störf sem fela m.a. mögulega í sér list- og
verkgreinakennslu.
Stöður stundakennara (10–40% starfshlutfall). List- og verkgreinar og
kennsla/umsjón í upplýsingatækni. Áhersla lögð á samþætt verkefni
þvert á námsgreinar.
Nánar um menntunar- og hæfniskröfur á talknafjardarskoli.is. Senda skal
umsókn og ferilskrá á netfangið skolastjori@talknafjordur.is.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2019.
Tálknafjarðarhreppur
Hlutastarf við heimaþjónustu, 6–8 tímar á viku. Í starfinu felst þrif og
aðstoð á heimilinum eldri borgara.
Starfsmaður til að sinna félagsmiðstöð unglinga u.þ.b. tvö kvöld í viku.
Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Jónsdóttir félagsmálastjóri í síma
450 2300
Umsóknum er hægt að skila í netfangið arnheidur@vesturbyggd.is eða
á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps. Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2019
Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar
Starfsfólk í sundlaugarvörslu á dag-, kvöld- og helgarvöktum frá og
með 20. ágúst nk.
Starfið felst í almennri afgreiðslu og þrifum auk eftirlits með sundlaug og
íþróttahúsi. Æskilegt er að viðkomandi tali a.m.k eitt erlent tungumál, sé
þjónustulundaður og ekki er verra að hafa dálítið frumkvæði.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 846 4713 eða í
sundlaug@talknafjordur.is. Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2019.
Arctic Fish
Við leitum að vélstjóra til starfa við sjóeldið okkar í Patreksfirði og
Tálknafirði. Aðalverkefni eru viðhald og umsjón véla í bátum okkar
sem og fóðurprömmum ásamt daglegum störfum öðrum tilfallandi
verkefnum þegar þess gerist þörf. Vinnudagurinn er að jafnaði frá kl
7–16 en umsækjendur þurfa að vera sveigjanlegir varðandi
vinnufyrirkomulagið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vélstjórnarréttindi að lágmarki 750kW og <24m
- Stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og
metnaður
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Við leitum líka að starfsmönnum til að starfa við sjóeldi. Starfið felur í
sér ýmis verkefni, s.s. fóðrun, daglegt eftirlit og önnur verkefni við
kvíahringi og fóðurpramma. Umsækjendur þurfa að geta verið
sveigjanlegir varðandi skipulag vakta og vinnutíma, en miðað er við að
vinna á sjö daga vöktum og frí í sjö daga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stundvísi, frumkvæði og metnaður í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi
eru æskileg
- Reynsla úr fiskeldi er kostur
- Þekking eða reynsla á uppsetningu verkferla og
vinnuferla í sjókvíaeldi er kostur
- Góð tölvukunnátta og þekking á eldishugbúnaði
er æskileg
- Áhugi á líffræði, búskap og dýravelferð og skilningur
á mikilvægi heilbrigðs umhverfis í fiskeldi
Við hvetjum konur jafnt sem karla að sækja um! Umsóknir sendist til
Kristínar Hálfdánsdóttur, skrifstofustjóra Arctic Fish á kh@afish.is.
Umsókn skal innihalda stutta starfsferilskrá auk kynningarbréfs.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2019.
– fjölbreytt mannlíf og blómstrandi atvinnulíf
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar
Tálknafjarðarhreppur - sími: 450 2500 - talknafjordur@talknafjordur.is
Tálknafjörður
Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir eru miklir íþrótta-
álfar og þorpið státar af glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m sundlaug og ótal skipulögðum íþrótta-
tímum. Atvinnulífið er í miklum blóma og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á svæðinu býður upp á
mikil tækifæri. Næg leikskólapláss og sérlega hagstæð leikskólagjöld.
Atvinnuauglýsingar 569 1100