Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 59

Morgunblaðið - 11.07.2019, Síða 59
Sveitin Systkinin þrjú sátt í sveitasælunni ásamt ferfættum félaga, Káti. Herdís Ómarsdóttir Auður Ingimarsdóttir þjónustufulltrúi hjá Icelandair, í Garðabæ Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja í Hallanda Geir Vigfússon bóndi í Hallanda í Hraungerðishreppi Sólveig Geirsdóttir húsfreyja í Garðabæ Vigdís Hauksdóttir lögfræðingur og borgarfulltrúi. Býr í Reykjavík Sigurbjörg Geirsdóttir húsfreyja á Stóru-Reykjum Ingimar Ingimarsson fl ugumsjónarmaður í Garðabæ Herborg Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ingimar Brynjólfsson stórkaupmaður í Reykjavík Bogi Ingimarsson hæstaréttarlögmaður, búsettur í Reykjavík Benedikt Bogason hæstaréttardómari. Býr í Reykjavík Katrín Ísleifsdóttir húsfreyja í Grindavík Jón Þórarinsson útgerðarmaður í Grindavík Valgerður Þórunn Jónsdóttir húsfreyja í Ytri-Njarðvík Hafsteinn Einarsson byggingarmeistari í Ytri-Njarðvík Sigríður Sesselja Hafl iðadóttir húsfreyja í Ytri-Njarðvík Einar Ögmundsson vélstjóri í Ytri-Njarðvík Úr frændgarði Herdísar Ómarsdóttur Ómar Hafsteinsson háloftamaður hjá Veðurstofunni, í Garðabæ DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ 2019 „ÉG VAR AÐ VONAST TIL ÞESS AÐ DÁLEIÐSLA EÐA EITTHVAÐ MYNDI HJÁLPA MÉR AÐ MUNA HVAR ÉG GRÓF PENINGANA.” „GET ÉG SKIPT ÞESSU FYRIR HUNDAMAT?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sofa út saman á sunnudagsmorgnum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Í DAG ER ALÞJÓÐLEGUR DAGUR KATTARINS ER ÞAÐ? VÓ… ÉG HÉLT AÐ ALLIR DAGAR VÆRU ÞAÐ ÉG ER ÁSTFANGINN! RÁDDU MÉR HEILT! VERTU SVALUR! HALTU HENNI Á TÁNUM! GETTU Í HVORRI HENDI HRINGURINN ER! Sigurlín Hermannsdóttir segir áLeir að eftir næturblundinn hafi þessi fæðst: Eitt sinn var agnarsmátt lúsmý sem auðvitað kallað var Lúsý. Við sumarhús dvaldi þar saug fólk og kvaldi því barbekjú-blóð er svo djúsí. Það má lengi finna ný afbrigði rímnahátta og hér kemur eitt slíkt, – lipurt og skemmtilegt. Sigurlín er höfundurinn og gefur þessa skýr- greiningu á afbrigðinu: „Þar sem afdráttarháttur er bara á færi snill- inga bjó ég til einfaldari útgáfu af honum; afdráttarrím. Vísan verður að vera samhend því fremsti stafurinn er dreginn af þrisvar sinnum“: Ég heyrði í gær um fjögur fljóð sem föndra við að yrkja ljóð. Samtals eiga sautján jóð sem sögð eru vera trítilóð. Í vísu undir afdráttarhætti finnst seinni parturinn með því að taka fremsta stafinn framan af hverju orði í fyrri partinum. Hér er þing- vísa eftir Skúla Guðmundsson und- ir þessum hætti. Magnús Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var oft kallaður Dósi: Margir skollar fljótir fljúga flækir Dósinn krata; argir kollar ljótir ljúga lækir ósinn rata. „Hægist um“ segir Ármann Þor- grímsson og yrkir: Er að verða andlaust flak orka hugans stöðugt dvínar finnst mér Braga fótatak fjarlægjast nú dyrnar mínar. Sigmundur Benediktsson svaraði Ármanni og sagði „smá þrusk“ við dyrnar hans: Stæli Bragi stefjagrín stuðlahaga veiti sýn. Lýsi dag er lötrar mín litla baga heim til þín. Sigmundur sagðist stundum hafa að orðtaki þegar ellin væri að stríða honum: Okkar lífsins fagra fley flýtur á meðan það sekkur ei. Anton Helgi Jónsson yrkir við fallega mynd af biðukollu á Boðnar- miði: Biðukollu nauðung núna nálgast óðum. Hún með blæ og bænum góðum brátt mun dreifa sínum ljóðum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Angursmátt lúsmý og afdráttarrím Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is Aldrei haft jafn þykkt hár „Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að hætta að taka þetta bætiefni inn.“ Edda Dungal Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra. Er hárlos eða þunnt hár að plaga þig?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.