Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 46
Óskum eftir að ráða sérfræðing í fjármálateymi Eignaumsjónar hf.
Helstu verkefni eru:
● Stýring fjármuna viðskiptavina Eignaumsjónar í samvinnu við fjármálastjóra
● Gerð kostnaðar- og innheimtuáætlana fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
● Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi reikninga, innheimtu og áætlanir
● Stýring greiðslu reikninga fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
● Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
● Framkvæmdauppgjör ásamt fjármálagreiningum fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar
● Önnur fjölbreytt dagleg störf
Hæfniskröfur: Menntun á sviði fjármála-/viðskiptafræði eða sambærileg menntun. Marktæk starfsreynsla af sam-
bærilegum störfum er skilyrði. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Viðkomandi þarf
einnig að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí nk. Um framtíðarstarf er að ræða og verður gengið frá ráðningu
sem fyrst.
Óskum eftir að ráða bókara hjá Eignaumsjón hf.
Helstu verkefni eru:
● Færsla bókhalds og reikningagerð fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
● Ýmis uppgjör, afstemmingar og almenn bókhaldsstörf
● Önnur störf með fjármálateymi Eignaumsjónar við úrlausn fjölbreyttra verkefna
Hæfniskröfur: Marktæk starfsreynsla af sambærilegum störfum er skilyrði. Þekking af DK hugbúnaði ásamt góðri
almennri tölvukunnáttu. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Viðkomandi þarf
einnig að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt, sem og í hópi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí nk. Um framtíðarstarf er að ræða og verður gengið frá ráðningu
sem fyrst.
Sérfræðingur hjá
Eignaumsjón
Bókari hjá
Eignaumsjón
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ veitir frekari upplýsingar um starfið í síma: 588 3031. Símaviðtalstími er frá kl.13-15
alla virka daga meðan á umsóknarferlinu stendur. Vinsamlega sendið umsóknir og meðfylgjandi gögn til stra@stra.
is. Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi geta hringt eða sent rafpóst og tilkynnt þátttöku. Unnið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
Eignaumsjón er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög húseigna og býður heildarlausnir
í rekstri fjöleignarhúsa, bæði íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Félagið hefur umsjón með daglegum
rekstri um
470 hús- og rekstrarfélaga. Áhersla okkar til framtíðar er að mæta vaxandi þörfum eigenda fasteigna með
góðri þjónustu og skilvirkum lausnum sem byggja á gagnsæi upplýsinga og umhverfisvænum gildum.
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391