Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili var tekið í notkun á Sólvangi í Hafnar- firði í gær og er gert ráð fyrir að fyrstu íbúarnir flytji inn í byrjun ágúst. Sóltún öldrunarþjónusta mun sjá um rekstur nýja heimilisins. Gamli Sólvangur mun áfram gegna hlutverki í þágu aldraðra en þar verða 33 hjúkrunarrými og 14 dag- dvalarrými. Fjöldi hjúkrunarrýma á nýja og gamla Sólvangi verður 93 í stað 59, sem er fjölgun um 34 rými. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra sagði daginn í gær stóran fyrir Hafnfirðinga og nærsveitunga og gleðidag fyrir alla sem brynnu fyrir bættri þjónustu og aðbúnaði aldraðra. Heilbrigðisráðherra hefur einnig veitt Hafnarfjarðarbæ rekstrarheimild fyrir 12 nýjum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fagnaði því að áform um öldrunarmiðstöð sem hýst yrði á Sólvangi yrði að veru- leika. Samkvæmt upplýsingum frá heil- brigðisráðuneytinu er mikill skortur á hjúkrunarrýmum á höfuðborgar- svæðinu sem draga mun úr þegar 99 hjúkrunarrými verða opnuð við Sléttuveg í Fossvogi. Þar til heimilið við Sléttuveg verður tekið í notkun mun Sóltún reka 38 hjúkrunarrými tímabundið á Sólvangi. Samkvæmt gagnagrunni land- læknis biðu 395 einstaklingar eftir varanlegri búsetu í hjúkrunarrými 1. janúar 2019 en það jafngildir 31,7 á hverja 1.000 íbúa 80 ára og eldri. 875 einstaklingar fengu hjúkrunar- rými í fyrra en af þeim þurftu 502 að bíða lengur en í 90 daga eftir plássi. Nýtt hjúkrunarheimili  Öldrunarmið- stöð rís á Sólvangi í Hafnarfirði Morgunblaðið/Hari Gleði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, klippa á borða við afhendingu nýs hjúkrunarheimilis á Sólvangi. Hjúkrunarrýmum fjölgar um 34 með nýja heimilinu. Varanleg búseta í hjúkrunarrými 2014-2019 Fjöldi á biðlista 40 30 20 10 0 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Heimild: Embætti landlæknis Fjöldi einstaklinga á biðlista Á hverja 1.000 aldraða íbúa 80 ára og eldri Á hverja 1.000 aldraða íbúa 67 ára og eldri 31,7 9,0 6,1 19,1 226 á biðlista árið 2014 395 á biðlista árið 2018 Útigangsfólk hefur búið sér svefn- stað á Laugarnestanga í Reykjavík og heldur sig þar um nætur. Þessi mynd var tekin í Laugarnesi nú í vikunni. Þessir næturstaðir í borg- inni hafa reyndar verið fleiri, má þar nefna rjóður við Klambratún, Öskjuhlíðina og Örfirisey. Reynt er eftir föngum að koma til móts við þennan hóp en hann er gjarnan í alvarlegum vímuvanda og þarfnast stuðnings, að sögn Regínu Ásvaldsdóttur, sviðstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. „Við erum með vettvangshóp; átta manns á okkar vegum sinna þeim sem eiga í vanda og eru að fóta sig í búsetu eða eru á göt- unni,“ segir Regína. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hve margt þetta fólk er nú. Í byrj- un árs 2017 höfðust, skv. úttekt, 76 manns við á götunni, 118 voru í gistiskýlum, 153 kváðust búa við ótryggar aðstæður og 58 hafði ver- ið tryggð búseta til lengri tíma. Ljóst er þó að tölurnar hafa breyst síðan fyrrgreint manntal var tekið. Reykjavíkurborg er þegar með pláss í gistiskýlum fyrir 35-40 manns, 65 eru í húsnæði fyrir fólk í vímuefnavanda og nýlega hefur borgin keypt húsnæði fyrir þriðja gistiskýlið og nýtt heimili fyrir konur með vímuefnavanda. Þá verða 25 smáhýsi sett upp víð sveg- ar um borgina á næstunni. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Laugarnes Föt í fjörukambi þar sem fólk liggur gjarnan við á næturnar. Eiga svefnstað á Laugarnestanga  Margir eru á götunni í Reykjavík Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Við munum beita okkur af öllum krafti á móti þessu,“ segir Kristinn Þórðarson, formaður Sambands ís- lenskra kvikmyndaframleiðenda, um tillögur að breytingu á lögum um endurgreiðslu ríkisins á kostnaði við kvikmyndagerð hér á landi. „Þetta er ein stór þversögn,“ segir hann. Upphaflegt markmið laganna var að efla ís- lenskan kvik- myndaiðnað og laða hingað til lands erlenda kvikmynda- gerðarmenn. Nú er m.a. lagt til að spjall-, raunveruleika- og skemmti- þættir fái ekki endurgreiðslu. Byggt er á skýrslu starfshóps sem fjallaði um málefnið, en þar er m.a. lagt til þak á greiðslur til einstakra verk- efna. Margir gætu farið á hausinn „Það er talað um að laða að er- lenda kvikmyndagerðarmenn, en samt er verið að skera niður. Með því að setja þak á endurgreiðslurnar er möguleiki á því að stærri verkefni þurfi að bíða í tvö til þrjú ár eftir að fá endurgreiðsluna,“ segir Kristinn, en undanfarin ár hafa endur- greiðslur kostnaðar numið um og yf- ir milljarði króna og gerð grein fyrir aukaútgjöldum í fjáraukalögum, hafi svo borið undir. „Þótt stóru mynd- verin í Hollywood ráði við þetta eru mjög margir sem eru ekki þaðan sem koma til landsins. Þú getur samt ímyndað þér fjármagnskostnaðinn við að bíða í tvö til þrjú ár eftir fjár- magninu til baka,“ segir Kristinn, en endurgreiðslukerfið sé beggja hagur (e. win-win) að hans sögn. „Ef enginn kemur til Íslands að taka upp kostar það ríkið ekki neitt. Ef einhver kemur hingað og eyðir milljón dölum fær hann 25% endur- greidd, en ríkið er þá búið að fá inn miklu meira, t.d. í formi skatta,“ segir Kristinn og bætir því við að 20% allra ferðamanna komi til Ís- lands vegna þess að þeir hafi séð ís- lenska bíómynd eða erlenda bíó- mynd sem tekin var upp á Íslandi. Kristinn kveðst óánægður með að til standi að fella spjall-, raunveru- leika- og skemmtiefni út úr kerfinu. „Kvikmyndagerðarmenn lifa á því að erlend verkefni komi hingað. Í bland við innlendu verkefnin gera þau það að verkum að við höfum um 1.500 manns hér, allt árið um kring, innan- lands. Eitt af því sem fólk vinnur við er það sem kalla má „skemmtiefni“ sem ekki byggist á handritum. Það má skoða breytingar á þessu, en ef þetta er þurrkað út í einu lagi er hætt við að mörg fyrirtæki fari ein- faldlega á hausinn,“ segir Kristinn. Ósætti vegna breytinga á endurgreiðslukerfinu  Tillögurnar „ein stór þversögn“ að mati formanns SÍK Morgunblaðið/Árni Sæberg Tökustaður Formaður SÍK segir félagið munu beita sér gegn breytingum. Kristinn Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.