Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
Það sem þjálfunin færir:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin
getu
• Hugrekki til að spyrja spurninga og taka þátt í
umræðum
• Koma hugmyndum sínum betur á framfæri og auka
áhrif sín
• Kynnast nýjum krökkum, bæta samskipti og styrkja
sambönd
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvæðara viðhorf og minni kvíði
Undirbúningstímabilið er aðhefjast
Mætir barnið þitt í toppformi í skólann í haust?
Copyright©2019DaleCarnegie&Associates, Inc. All rights reserved. Gennext_070519_iceland
Námskeið hefjast:
10 til 12 ára 7. ágúst 9.00 til 12.30 8 virka daga í röð
10 til 12 ára 23. sept. 17.00 til 20.00 8 skipti með viku millibili
13 til 15 ára 7. ágúst 14.00 til 17.30 8 virka daga í röð
13 til 15 ára 19. sept. 17.00 til 20.30 8 skipti með viku millibili
16 til 19 ára 7. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
16 til 19 ára 18. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili
20 til 25 ára 6. ágúst 18.00 til 22.00 tvisvar í viku
20 til 25 ára 17. sept. 18.00 til 22.00 8 skipti með viku millibili
Skráning í kynningartíma fyrir börnog foreldra á
dale.is/ungtfolk eða í síma5557080
fólk upp og erta.“ Ritin sem Marín hefur
skoðað eru frá 19. og 20. öld og sögurnar ná
sumar aftur til 18. aldar. Þegar líður á
seinni hluta 20. aldar eru færri bækur með
skemmtisögum af þessu tagi gefnar út að
sögn Marínar.
Hún bendir á að sjónarmiðið sem kemur
fram í rannsókninni, að þarna sé um einelti
að ræða, sé tiltölulega ný sýn á hlutina.
Sagan af Jóni „kis kis“
Hún nefnir blaðamanni sögudæmi um
„sérkennilegan“ einstakling sem var aðal-
efniviður skemmtisögu: Jón Gizursson,
vinnumann hjá Bernhöft bakara, sem uppi
var á 19. öld í Reykjavík. Jón virðist hafa
verið seinfær að einhverju leyti og sam-
kvæmt sögunni varð hann aldrei almenni-
lega talandi eða teljandi. Þegar Jón átti að
lóga ketti og tókst það ekki varð hann að
hlátursefni bæjarbúa.
„Eftir það var hann alltaf kallaður Jón
„kis kis“. Og hvort sem það var úti á götu
eða í búðum mátti hann heyra hvarvetna
kallað á sig „kis kis“ eða mjálmað á hann.
Þótt hann hafi nánast þurft að heyra það
daglega tók hann það alltaf nærri sér og
virtist fara í mjög mikið uppnám,“ segir
Marín og bætir við að þetta hafi ekki verið
eina áreitið sem Jón virðist hafa þurft að
þola. Mörg dæmi í frásögninni sýni hvernig
Jón hafi verið espaður upp á ýmsan hátt og
hafður að háði og spotti af svokölluðum
gárungum í bænum.
„Þessir gárungar koma oft fyrir í frá-
sögnunum og það má segja að það sé nokk-
urs konar samheiti yfir þá sem spiluðu með
einstaklinga sem voru á einhvern hátt öðru-
vísi en aðrir,“ sagði Marín.
Annað sögudæmi er sagan af Stuttu-
Siggu en hún er nokkuð frábrugðin sögu
Jóns „kis kis“. Höfundur virðist hafa samúð
með þolandanum og skýrir hvernig fortíð
Sigríðar Benediktsdóttur, sem var einungis
125 sentímetrar á hæð, mótaði persónu
hennar til lengri tíma. Marín segir að saga
Stuttu-Siggu innihaldi gífurlegt ofbeldi sem
hún varð fyrir, aðallega af hendi föður síns:
„Það ofbeldi virðist hafa átt þátt í skerð-
ingu hennar og þeim eiginleikum sem gerðu
hana óvenjulega á lífsleiðinni. Því er til
dæmis lýst hvernig faðir hennar refsaði
henni með því að henda henni út í snjóskafl
í fáum klæðum á meðan það var stórhríð
úti. Hana kól á höndum og hafði hún
kreppta fingur upp frá því,“ sagði Marín.
„Það sem er kannski öðruvísi við þessa
frásögn miðað við margar aðrar frásagnir
sem ég hef fundið er að maður finnur fyrir
því hvað höfundurinn finnur til með Siggu.
Það er ekki verið að gera grín að henni en
hins vegar er sagan rituð niður og gefin út
í bók ásamt öðrum svipuðum sögum því
fólki finnst áhugavert að heyra um ein-
hvern einstakling sem var skrítinn í augum
annarra, eins og Siggu. Uppeldið og ofbeld-
ið sem hún varð fyrir var það sem gerði
hana óvenjulega og sérkennilega.“ Marín
segir þessi dæmi, ásamt mörgum fleirum,
eiga það sameiginlegt að í þeim kemur
fram ofbeldi og einelti í garð einstaklinga
sem voru óvenjulegir á einhvern hátt.
Marín vinnur nú að því að rannsaka ein-
eltisleg samskiptamunstur í skemmtisögum
til forna og stendur til að gefa út niður-
stöður rannsóknarinnar í bók í ritröðinni
Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar á
næsta ári. Marín vonar að niðurstöðurnar
geti aukið skilning á birtingarmyndum ein-
eltis til forna, sem og í nútímanum.
Eineltismenning frá örófi alda
Skemmtisögur af jaðarsettum Íslendingum vinsælar á 19. og 20. öld Marín Árnadóttir, meistara-
nemi í sagnfræði, segir nýjan heim blasa við í frásögnunum Grín gert að jaðarsettu fólki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rannsókn Marín Árnadóttir hefur kannað samskiptamunstur í yfir 100 frásögnum.
VIÐTAL
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Skemmtisögur af jaðarsettu og sér-
kennilegu fólki nutu vinsælda á Íslandi á
fyrri öldum. Tilgáta Marínar Árnadóttur,
sagnfræðinema við Háskóla Íslands, er að
ákveðin „eineltismenning“ eða „menning of-
beldis“ hafi þrifist á Íslandi í fyrri tíð og
það komi fram í sögum af „sérkennilegu“
fólki sem finna má í þjóðlegum fróðleik og
sagnaþáttum. Þessir einstaklingar skáru sig
úr í íslensku samfélagi á sínum tíma, m.a.
vegna andlegra eða líkamlegra skerðinga og
óhefðbundinna lífshátta, og voru oftar en
ekki jaðarsettir í sínu nærumhverfi.
Marín hlaut styrk úr Styrktarsjóði Marg-
aretar og Bents Schevings Thorsteinssonar
til rannsóknarverkefnis sem fjallar um
þessar sögur með tilliti til eineltis og of-
beldis sem birtist í þeim.
„Þegar ég fór að líta á allar þessar frá-
sagnir í heild sinni fannst mér blasa við
þarna ákveðinn heimur. Ég fór að taka eftir
því hvað háðslýsingar á þessum ein-
staklingum voru áberandi í sumum sög-
unum og það sem vakti sérstaka athygli
mína var ofbeldið sem beindist gegn jaðar-
settu fólki,“ sagði Marín.
Sögur og lýsingar á sérkennilegu fólki,
ævintýrum þess og óförum voru forðum
sagðar til skemmtunar. Í þeim var oft gert
grín að sérkennilegu fólki þar sem hlegið
var að því, en ekki með því, að sögn Mar-
ínar.
„En þegar þessum létta og skoplega blæ
er svipt af sumum sögunum finnst mér
standa eftir skýr vitnisburður um hreint og
beint einelti eða ofbeldi,“ sagði Marín.
Espuðu fólk upp
Heimildirnar sýna samskiptamunstur sem
virðist hafa verið sterkur hluti íslenskrar
alþýðumenningar á fyrri tíð. Í því fólst að
einstaklingar, oftar en ekki svokallaðir gár-
ungar bæjarins eða sveitarinnar, espuðu
gjarnan jaðarsetta einstaklinga upp og ýttu
af stað vissri atburðarás. Ofbeldið og einelt-
ið er grunnskemmtanagildi sumra sagnanna
að sögn Marínar:
„Ég hef safnað saman yfir hundrað frá-
sögnum og mér finnst áberandi hvað and-
legt ofbeldi kemur oft fyrir – það að espa
Á byrjunarstigi rannóknarinnar kynnti Marín
sér bókina Á mörkum mennskunnar: Viðhorf
til förufólks í söfnum og samfélagi, eftir Jón
Jónsson þjóðfræðing, sem út kom síðasta
haust. Bókin reyndist nytsamleg heimild en í
henni er fjallað um flakkara og förufólk í ís-
lensku samfélagi, sem margt var talið ein-
kennilegt. Marín studdist við heimildaskrá
bókarinnar sem reyndist mjög hjálpleg að
hennar sögn.
Grein um niðurstöður úr rannsókn Mar-
ínar mun birtast í bókaflokknum Sýnisbók
íslenskrar alþýðumenningar, sem gefin verð-
ur út á næsta ári, en Á mörkum mennsk-
unnar tilheyrir einnig þeirri bókaröð.
Á mörkum
mennskunnar
HEIMILDIR