Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Frábært úrval af sundfatnaði Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það þarf að endurskoða kerfið al- veg frá grunni,“ sagði Charlotta Oddsdóttir, formaður Dýralækna- félags Íslands, um þjónustusamn- inga Matvælastofnunar (MAST) við dýralækna í dreifðum byggðum. Hún sagði að Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir hefði haft forgöngu um að Matvælastofnun og Dýra- læknafélagið leituðu lausna á vand- anum. Hugmyndir sem urðu til í þeirri vinnu voru lagðar fyrir Krist- ján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þegar dýra- læknar gengu nýlega á hans fund. Ráðherrann ákvað í fyrradag að skipa starfshóp um þjónustu dýra- lækna í dreifðum byggðum og vakt- þjónustu dýralækna. Hópurinn á að skila tillögum í október. Einn sinnir allri þjónustu MAST gerir þjónustusamninga við dýralækna um þjónustu á tíu þjónustusvæðum frá Eyja- og Mikl- holtshreppi í vestri og áfram norður, austur og suður um land að Mýrdals- hreppi. Höfuðborgarsvæðið, Eyja- fjörður og Suðurland eru utan þess- ara þjónustusvæða. Svæðin eru misjafnlega stór og strjálbýl. „Það gildir um þau öll að ein manneskja skuldbindur sig með þjónustusamningi til að sinna allri þjónustu við dýr á hverju svæði,“ sagði Charlotta. Sami dýralæknir tekur einnig allar bakvaktir. Ætli hann í sumarfrí, slasist eða veikist er hann skuldbundinn til að útvega af- leysingamann. Charlotta sagði að Dýralæknafélagið hefði gert miklar athugasemdir þegar samningurinn var gerður en ekkert orðið ágengt við að fá hann lagaðan. Dýralæknarnir á þjónustusvæð- unum starfa sem verktakar og fá verktakagreiðslur. Þeir þurfa því að semja við þá sem leysa þá af um launagreiðslur. „Laun dýralækna á þjónustusvæðum samsvara kannski helmingi launa sem læknir í sam- bærilegri stöðu fær af því að hann er ríkisstarfsmaður. Læknirinn fær auk þess afleysingar, vaktafrí og fleira sem dýralæknirinn fær ekki,“ sagði Charlotta. Hún kvaðst binda vonir við að starfshópurinn fyndi ásættanlega lausn á málinu. Tveir geti haft samstarf „Það þarf að breyta kerfinu því það virkar ekki. Kerfið er afsprengi þess þegar matvælalöggjöf Evrópu- sambandsins var tekin hér upp. Þá var ákveðið að skilja að eftirlit og þjónustu,“ sagði Charlotta. Hún sagði að Matvælastofnun mætti ekki sinna þjónustu en ekkert bannaði að einn og sami dýralæknir gæti sinnt bæði eftirliti og þjónustu í hluta- störfum. Tveir dýralæknar gætu einnig haft samstarf og skipt með sér eftirliti og þjónustu og vöktum. Eftirlitið felst m.a. í eftirliti með dýravelferð og matvælaframleiðslu. Þar má t.d. nefna heimsóknir á sveitabæi þar sem athugað er hvort allt er samkvæmt settum reglum. Hún nefndi einnig að fiskeldi færðist í vöxt til dæmis á Vestfjörðum og það krefðist eftirlits dýralækna. „Við sjáum fyrir okkur að tveir dýralæknar geti starfað saman á einhverjum af þessum svæðum og sinnt hvoru tveggja, eftirliti og þjón- ustu,“ sagði Charlotta. Einkareknar dýralæknastofur Nokkuð er um einkareknar dýra- læknastofur t.d. á höfuðborgarsvæð- inu, Suðurlandi og í Eyjafirði. Dýra- læknar sem þar starfa hafa stundum sinnt eftirliti í sláturhúsum í afleys- ingum eða þegar mikið er að gera. Charlotta taldi mögulegt að auka samstarfið við einkareknu dýra- læknastofurnar um ýmsa þjónustu og eftirlit dýralækna. Skortur er á dýralæknum hér á landi og hefur oft reynst erfitt að manna stöður héraðsdýralækna og eftirlitsdýralækna. Charlotta sagði að átta íslenskir dýralæknar út- skrifuðust erlendis á hverju ári að jafnaði. Dýralækningar eru ekki kenndar hér á landi. Ein- ungis um helmingur ný- útskrifaðra dýralækna kemur heim til starfa. Talsverður hópur er- lendra dýralækna starfar einnig hér á landi. Endurskoða þarf kerfið frá grunni  Dýralæknafélagið er ósátt við samninginn við MAST  Dýralæknar í dreifðum byggðum eru alltaf á vakt  Ýmsar hugmyndir um endurbætur  Ráðherra skipar starfshóp um þjónustu dýralækna Morgunblaðið/Styrmir Kári Nautgripir Dýralæknar veita þjónustu vegna dýraheilbrigðis og fylgjast einnig með velferð dýra og hafa eftirlit með matvælaframleiðslu. Enginn dýralæknir hefur verið starfandi í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum frá 1. júlí. Starfið var auglýst í mars en enginn hefur sótt um. Á þeim tíma sagði eini starfandi dýralækn- irinn á svæðinu upp þjónustu- samningi sínum við Matvæla- stofnun (MAST). „Þjónustusamningurinn er ómanneskjulegur og engum bjóðandi. Ef ég vil komast í frí þarf ég að redda einhverjum fyrir mig og líka ef ég veikist eða slasast,“ sagði Sigríður Inga Sigurjónsdóttir dýralæknir. Hún hefur verið dýralæknir í 20 ár á Ísafirði en sagði upp í mars. Eftir að þjónustu- samningarnir fluttust yfir til MAST árið 2011 hef- ur hún ekki tekið sér frí því enginn hefur leyst hana af. thorunn- @mbl.is Alltaf í vinnunni DÝRALÆKNAR ÚTI Á LANDI Charlotta Oddsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.