Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRTækni og vísindi MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is För Apollos ellefta til tunglsins og til baka fyrir hálfri öld var óumdeilt risaskref í þágu mannkynsins. För- in breytti ekki aðeins viðhorfi fólks til alheimsins, heldur breytti hún og framvindu verkfræðinnar og annarra vísinda. Ól hún af sér ýmis vísindaafrek sem endurómar af og enn skipta verulegu máli. Til að tunglför yrði kleif þurfti bandaríska geimferðastofnunin NASA að yfirstíga og sigrast á miklum tæknilegum hindrunum. Það tókst henni einungis fyrir þá sök að bandaríska þingið veitti henni „opinn tékka“ – ómæld út- gjöld – til að sigrast á Sovét- mönnum í geimkapphlaupinu. Alls kostuðu þrjú fyrstu geimferðaverk- efnin 150 milljarða dollara. Hér á eftir er stiklað á stóru varðandi af- rakstur Apollo-ferðanna: Tölvubylting Fram á sjöunda áratuginn voru tölvur risastórar umfangs og sam- anstóðu af þúsundum orkuþyrstra, lofttómra lampaglasa. Það breyttist allt með tilkomu svonefndrar sam- rásartölvu og smárum sem gerðu kleift að smækka tölvurnar nógu mikið til að koma þeim fyrir í geim- förum. „Það þurfti mikinn kný frá eld- flaugunum en jafnframt þurfti að minnka massa og auka orku um borð fyrir tölvurnar,“ sagði G. Scott Hubbard, fyrrverandi forstjóri Ames-rannsóknarstofnunar NASA, við AFP. Apollo-áætlunin flýtti mjög fyrir þessum stakkaskiptum og gat einnig af sér svonefndan Kísildal í Kaliforníu, miðstöð tölvu- tækni og -þróunar í Bandaríkj- unum. Vatnshreinsun NASA þurfti að þróa lítið og létt vatnshreinsitæki sem þyrfti lág- marks orku og litla stjórnun. Niðurstaðan varð 255 gramma tæki sem komst fyrir í lófa manns og hreinsaði vatn með því að losa í það silfurjónir. Þurfti ekki klór í hreinsiferlið. Þessi tækni er nú not- uð um allar jarðir til að drepa ör- verur í dreifikerfum neysluvatns. Frostþurrkuð matvæli Einn vandi sem við blasti í geimnum var hvernig komast mætti hjá því að geyma matvæli í orkufrekum kælitækjum. Í rann- sóknum sínum á því duttu sérfræð- ingar NASA niður á frostþurrkun. Fólst hún í því að tappa vatni af ný- soðnum matvælum og þurrka þau við mjög lágt hitastig og pakka Vísindaleg risastökk með Apollo- AFP Lentir Richard Nixon forseti tekur á móti geimförum Apollo 11 sem settir voru í einangrun í sérstökum gámi um borð í flugmóðurskipinu Hornet. Frá vinstri: Neil Armstrong, Michael Collins, Edwin Aldrin og Nixon. Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Vinnufatnaður frá N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Erum á facebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.