Morgunblaðið - 01.08.2019, Page 2

Morgunblaðið - 01.08.2019, Page 2
Úr bænum Lovísa, Telma, Jökull og Daniel eru spennt yfir helginni. Systurnar Lovísa og Telma Jó- hannsdætur ásamt kærasta Lovísu, Jökli Andra Sigurðarsyni, voru að sýna Englendingnum Daniel McComic, kærasta Telmu, miðbæinn þegar blaðamaður gaf sig á tal við þau. Þau höfðu skroppið í Vínbúðina á leiðinni eftir drykkjum og kváð- ust vera á leið á Þjóðhátíð í heimabæ systranna Vest- mannaeyjabæ á fimmtudags- morgun. Fjórmenningarnir kváð- ust spenntir yfir helginni en þau ætla að sleppa útilegu í dalnum og gista í heimahúsi hjá foreldrum systranna. Á leið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Feðgar Sverrir, Gunnar og Ólafur eru með ólíkar áætlanir fyrir helgina. Feðgarnir Ólafur Hilmar Sverr- isson, Gunnar Dofri og Sverrir Ingi Ólafssynir segjast hafa verið að „plotta“ að kaupa sumarbústað í veðurblíðunni. Segja þeir að góð- viðrið í sumar sé ástæðan fyrir þeirri hugmynd. Gunnar kveðst líklega vera að fara norður til kærustu sinnar um versl- unarmannahelgina en bróðir hans Sverrir segist ætla að fara í há- menninguna á Tenerife. Faðir þeirra Ólafur ætlar að njóta lífsins heima í borginni. „Plotta“ það að kaupa sumarbústað 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Costa del Sol Stórlækkað verð á öllumbrottförum í ágúst! 6. ágúst í 7 nætur Verð frá kr. 94.995 Verð frá kr. 116.695 Flug frá kr. 49.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.isÁgúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Heildarfjöldi greiddra gistinátta í júní dróst saman um tvö prósent á milli 2018 og 2019. Á hótelum fækkaði gistinóttum um 5% en þeim fjölgaði um 14% á gistiheimilum. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær. Kristófer Oliversson, formaður Fé- lags fyrirtækja í hótel- og gistiþjón- ustu, segir að aukið framboð, sér- staklega á minni gistiheimilum, sé líklega ástæða þess að gistinóttum fækki ekki meira þrátt fyrir fækkun ferðamanna. „Árið í fyrra var mjög gott ár og menn vonuðust náttúrulega til þess að það yrði áfram en svo varð ekki.“ Á stöðum sem miðla gistingu gegn- um Airbnb og svipaðar síður fækkaði gistinóttum um 10,5%. 1,6% fækkun varð á öðrum tegundum gististaða. Kristófer segir vonbrigði að gisti- nóttum á vegum Airbnb hafi ekki fækkað meira en raun ber vitni. „Í ljósi þess að nú er verið að grípa til aðgerða og sýslumaðurinn er bú- inn að herða eftirlit en vonandi skilar það sér til lengri tíma.“ Kristófer bætir því við að mögu- lega geti fjölgun á gistinóttum gisti- heimila skýrst af því að einhverjir sem hafi áður stundað ólögleg Airbnb-viðskipti hafi fært sig yfir í lögleg viðskipti og reki nú gistiheim- ili. Framboð aukist um 125,5% Gistinóttum á hótelum fjölgaði á Austurlandi um 10% og Norðurlandi um 8% en fækkaði í öðrum lands- hlutum. Fjöldi gistinátta á höfuð- borgarsvæðinu dróst saman um 6% frá fyrra ári. Frá júní 2014 hefur framboð hótel- herbergja á landinu farið úr 6.100 herbergjum upp í 10.400 sem er aukning um 70,3%. Í júní 2009 voru herbergin 4.600 og aukningin því um 125,5% síðan þá. Herbergjanýting í júní 2019 var 72,1% sem er lækkun um 5,4 prósentustig frá júní 2018. ragnhildur@mbl.is 5% færri gistinætur á hótelum en 14% fleiri á gistiheimilum  Samdráttur um sex prósent á höfuð- borgarsvæðinu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðamenn Á Suðurlandi fækkaði greiddum gistinóttum um sex prósent. Rósa Margrét Tryggvadóttir Jón Birgir Eiríksson Yfir tuttugu stiga hiti var um hádeg- isbilið í höfuðborginni í gær og leit- aði fjöldi fólks í miðbæinn í veð- urblíðunni. Þó að ekki hafi sést til sólar þegar blaðamaður gekk um bæinn var bjart yfir fólki og voru flestir léttklæddir í hlýjunni. Margir kusu að sitja úti á kaffihúsum og matsölustöðum og virtust njóta sín vel. Aðspurðir voru flestir sem blaða- maður ræddi við farnir að huga að komandi helgi, verslunarmanna- helginni, þó að áform fólks um það hvernig henni yrði varið hafi verið fjölbreytt. Einhverjir voru að búa sig undir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, sumir ætluðu í útilegu með fjölskyldunni, einn ætlaði að yfirgefa landið og fljúga til Tenerife á meðan ein- hverjir ætluðu að njóta helgarinnar í höfuðborginni. Óvenjulega hlýtt á kvöldin Milt veður verður víða um helgina að því er fram kemur á vef Veð- urstofunnar. Athygli hefur vakið undanfarið að sérlega hlýtt hefur verið á kvöldin og næturnar. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur seg- ir að svo verði líklega áfram fram yfir helgi, en síðast var áþekkt veð- urfar í sumarlok um sumur kringum árið 2010 að hans sögn. Ein skýring á hlýindunum er að óvenjulega mikil austanátt hefur verið í öllum loftlögum yfir landinu vegna hæðar norðan við landið. „Austanáttin heldur svala af hafinu. Í annan stað hefur verið skýjað og raki í lægri lögum loftslagsins án þess að það rigni endilega. Rakainni- hald er mikið og maður finnur það í loftinu, þetta er svipað og í útlönd- um,“ segir hann. „Loftið hitnar af þremur ástæð- um. Eitt er blástur frá hlýrri svæð- um eins og gjarnan er hér á veturna. Ef við horfum til geislunar, þá þekkjum við hvernig það hlýnar í sólinni á daginn. Síðan er það óbein geislun, þessi eiginlegu gróðurhúsa- áhrif sem er ósýnileg geislun frá lofthjúpi úr skýjum. Þegar loftið er þurrt og engin ský, þá er lítið um slíka geislun og hiti fellur hratt þeg- ar sólin sest. Nú hefur bæði verið mikill raki og mikið af skýjum. Þá er óbein geislun í aðalhlutverki og held- ur hitanum inni þegar það kvöldar,“ segir Einar. Morgunblaðið/Hari Miðbærinn Fólk nýtur þess að sitja úti í veðurblíðunni á Austurvelli rétt fyrir verslunarmannahelgina. Bjart yfir fólki í veðurblíðunni  Fólk er farið að huga að helginni  Áfram verði óvenjuhlýtt á kvöldin Svanhildur Ólafsdóttir og þrjú af fimm börnum hennar, Anna Lára, Rakel og Veigar Ölversbörn, ákváðu að skreppa í bæjarferð til Reykjavík- ur í gær en þau búa á Selfossi. Svan- hildur segir að fjölskyldan hafi viljað kíkja á mannlífið í miðbænum og ætl- aði að fá sér ís í góða veðrinu. „Veig- ar fékk að taka með sér hlaupahjólið til þess að kíkja á Ingólfstorgið því hann vildi athuga hvort hann hitti ekki einhverja hjólabrettagaura,“ bætir Svanhildur við og hlær. Hún segir að fjölskyldan ætli að fara saman í útilegu um versl- unarmannahelgina. Ekki er alveg ákveðið hvar hún mun tjalda en Akranes og nágrenni koma sterklega til greina. Fjölskylduútilega Bæjarferð Svanhildur, Anna, Rakel og Veigar í blíðu á Austurvelli. Baldvin Þór Magnússon og Katrín Gunnarsdóttir ákváðu að skreppa í göngutúr til að svæfa dóttur sína Brynhildi í veðurblíðunni. Fannst þeim tilvalið að setjast niður úti og fá sér frískandi drykk á Café París og njóta þess að vera í fríi saman. „Maður verður að nýta þessa frá- bæru veðurblíðu sem hefur verið. Eins og núna; það er ekki einu sinni sól en samt er hægt að sitja úti. Þetta er eins og að vera í útlöndum,“ segir Katrín. Þau Baldvin ætla að verja helginni heima í Reykjavík og halda upp á eins árs afmæli Brynhildar. „Hún er víst of lítil til að fara í dal- inn,“ segir Baldvin og hlær. Fyrsta afmæli dótt- urinnar um helgina Eins árs Brynhildur mun eiga sitt fyrsta afmæli um helgina. Vinkonur Þórunn, Halla og Unnur njóta blíðunnar í miðbænum. Vinkonurnar Þórunn Ásgeirs- dóttir, Halla Gunnarsdóttir og Unnur Hjartardóttir ákváðu að fara í bæjar- og menningarferð í góða veðrinu. Þær voru á leið á matsölustaðinn Jómfrúna þegar blaðamaður gaf sig á tal við þær og vonuðust til að fá að sitja úti á staðnum. Þær segja að veðurspáin hafi lof- að þeim sól en eru allar sammála um að þrátt fyrir ský á himni henti blíðan og hlýjan þeim vel. Allar ætla þær að njóta lífsins í höfuðborginni yfir verslunar- mannahelgina. Ákváðu að fara á Jómfrúna í góða veðrinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.