Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 sp ör eh f. Haust 10 Tíról í Austurríki er heill ævintýraheimur út af fyrir sig. Fegurð Alpafjallanna umlykur okkur þar sem við dveljum í fjallabænum Seefeld þaðan sem farið verður í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. í Swarovski kristalverksmiðjuna og til vínbónda í Isarco dalnum. Einnig verður komið til Garmisch-Partenkirchen og farið með kláfi upp á hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze. 24. - 29. september Fararstjórn: Inga Ragnarsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 169.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Tindrandi Tíról Ragnhildur Þrastardóttir Snorri Másson Ætla má að tjón hlaupi á hundruðum- milljóna eftir eldsvoða sem varð í at- vinnuhúsnæði á Fornubúðum við Hafnarfjarðarhöfn aðfaranótt mið- vikudags. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var tilkynnt um brunann um klukkan þrjú þá nótt. Allt tiltækt slökkvilið var sent á svæðið auk aðstoðar frá Bruna- vörnum Árnessýslu og Brunavörnum Suðurnesja. Húsnæðið sem um ræðir er 4.000 fermetrar en náðist að bjarga um það bil helmingi þess. Þar virðast þó vera reykskemmdir en fiskheildsalan Fiskmarkaður Suðurnesja hefur að- stöðu þar. Hinn helmingur hússins, sá sem í eldsvoðanum lenti, er gerónýtur. Þar voru tvö fyrirtæki til húsa, IP-dreif- ing, sem sér um dreifingu og vinnslu afla, og matvinnslufyrirtækið IC Core. Húsnæði IP-dreifingar var um 250 fermetrar og þar voru þrír starfs- menn í vinnu. Þar er altjón og ekkert er heilt. Tjónið hleypur á tugum millj- óna króna og lamar algerlega rekstur fyrirtækisins. Upptökin hjá IC Core Í samtali við mbl.is segir eigandi fyrirtækisins, Gunnar Bergmann Jónsson, að eldurinn hafi ekki átt upptök sín í húsnæði IP-dreifingar. Fyrir liggi að upptök eldsins hafi ver- ið í húsnæði matvinnslufyrirtækisins IC Core sem er með starfsemi í 1.250 fermetrum húsnæðisins. Húsið var fullt af fiskikerjum, plasti og öðru eldfimu efni ásamt dýr- um matvinnsluvélum IC Core. Guðmundur Guðjónsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð- inu, segir mikinn eld hafa logað í hús- næðinu. „Á meðan eldurinn logaði var mikill reykur frá þessu og íbúar í nágrenn- inu urðu varir við þann reyk. Við sendum strax út tilkynningu og ósk- uðum eftir því að fólk lokaði öllum gluggum þegar við áttuðum okkur á því að þetta var að leggjast yfir íbúða- byggð. Það hefur ekki verið nein önn- ur mengun frá vettvangi heldur en reykurinn sem var þarna í nótt.“ Nærliggjandi hús voru rýmd með aðstoð lögreglu en íbúðarhús eru í ná- grenni hússins sem brann. Enn er ekkert vitað um orsök brunans. Slökkvistarfi var við það að ljúka þegar Morgunblaðið náði tali af Guð- mundi rétt fyrir hádegi í gær. „Slökkvistarfið hefur gengið ljóm- andi vel og alveg áfallalaust. Allt í raun gengið eins vel upp og hægt er við þessar aðstæður en það var nátt- úrulega mikill eldur í húsinu þegar við komum að því,“ segir Guðmundur. Eigendur og leigjendur í húsinu hafa misst umráðaréttinn yfir því til rannsóknaraðila. Þeir hefja sín störf þegar slökkviliðið hefur afhent þeim vettvang. Altjón eftir stórbruna við höfn  Talið er að tjónið í Hafnarfirði hlaupi á hundruðum milljóna  Helmingur 4.000 fermetra atvinnuhúss gerónýtur og mögulega reykskemmdir í hinum helmingnum  Slökkvistarf gekk vel miðað við umfang Morgunblaðið/Hari Kæfa bálið Slökkviliðið að störfum við Hafnarfjarðarhöfn. Ekki dugði að kalla allt tiltækt lið slökkviliðsins á höf- uðborgarsvæðinu út því óskað var eftir aðstoð frá Brunavörnum Árnessýslu og Brunavörnum Suðurnesja. Morgunblaðið/Hari Mökkur Reykurinn var gífurlegur og náði til næstu húsa sem voru rýmd. „Á síðastliðnu ári urðu þrír stór- ir brunar þarna á þessu svæði og við höfum tvímælalaust fundið fyrir því að það hafi verið óvenju mikið af stórbrunum undanfarið,“ segir Guðmundur Guðjónsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgar- svæðinu. Eldsvoði varð um miðjan apríl í ár í Dalshrauni, sem er skammt frá Fornubúðum, ári fyrr kviknaði í húsnæði í Mið- hrauni sem er tæpa tvo kíló- metra frá Dalshrauni. Í Mið- hrauni var atvinnuhúsnæði og geymslur en í Dalshrauni kvikn- aði í íbúð. Í nóvember á síðasta ári kviknaði svo í atvinnuhúsnæði við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði, sem er ekki í nema tæplega kílómetra fjarlægð frá Fornu- búðum. Spurður hvort brunarnir sýni ekki fram á að betur þurfi að standa að eldvörnum segir Guð- mundur: „Við hvetjum húseigendur náttúrulega til þess að vera á varðbergi og hafa eldvarnir í lagi.“ Mbl.is greindi frá því í gær að nýr leigjandi, járnaverksmiðjan Járnborg, hefði átt að taka við hluta hússins í dag. Ekkert verð- ur úr þeim áformum úr þessu. Eigandi Járnborgar, Árni B. Halldórsson, nefnir í samtali við blaðamann brunann sem varð á Hvaleyrarbraut síðasta vetur, þar sem starfsemi áþekk starf- semi Járnborgar brann til grunna. „Það er ótrúleg tilviljun,“ segir Árni. 4 eldsvoðar á sama svæði MARGIR STÓRBRUNAR „Við erum ekki að setja hryggi í sölu en við erum svo sannarlega að huga að innflutningi [á lambahryggjum]. Við gerum ráð fyrir því að innflutn- ingur verði heimilaður því það er augljós skortur á markaði,“ sagði Gréta María Grétarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Krónunnar. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær var von á tugum tonna af innfluttum lambahryggjum til Ís- lands. Hryggirnir voru pantaðir eftir að ráðgjafanefnd um inn- og útflutn- ing landbúnaðarvara lagði til við ráð- herra að gefinn yrði út tímabundinn innflutningskvóti á lækkuðum toll- um til að bregðast við skorti á inn- lendum lambahryggjum. Viðskiptavinir - ekki pólitík Gréta segir að pólitíkin vegna inn- flutnings hryggja geti ekki verið að- alatriði hjá fyrirtækjum eins og Krónunni. Aðalatriðin séu viðskipta- vinirnir og þeirra þarfir. „Markmið okkar er að þjónusta okkar viðskiptavini og þegar það er skortur á vöru, hvort sem það er grænmeti eða kjöt, þá reynum við að finna sambærilega vöru þannig að viðskiptavinir geti haldið áfram að versla við okkur. Aðalbirgirinn okk- ar er Norðlenska, sem við eigum mjög gott samband við. Þeir upp- lýstu okkur fyrir löngu síðan um að þeir ættu ekkert til. Síðan höfum við náð að redda okkur hér og þar. Svo kom í fréttunum að KS hefði fengið magn af hryggjum en við höf- um ekki getað keypt af þeim. Það var bara ekki til,“ sagði Gréta. Hún sagði að Krónan hafi beðið ráðgjafa- nefndina um upplýsingar um hverjir eigi hryggi svo Krónan geti keypt þá. Ef niðurstaðan er sú að lamba- hryggir séu til einhvers staðar, magn af hryggjum, þá viljum við geta keypt það,“ sagði Gréta. thor@mbl.is Krónuna vantar lamba- hryggi en fær þá ekki  Reikna með að innflutningur á hryggjum verði leyfður Morgunblaðið/Jim Smart Lambakjöt Krónan kveðst ekki hafa fengið keypta lambahryggi hjá sínum kjötbirgi. Verslunin hefur hug á að selja innflutta lambahryggi í staðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.