Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 26
dettur í hug, en það getur byggða-
safn ekki,“ segir Gunnar að-
spurður um muninn á Hérumbil-
safninu og almennu byggðasafni.
Vantar gamla sveitasímann
Ennþá vantar Gunnar gamla
góða sveitasímann innan um aðra
gamla síma og segist hann bíða
eftir því að einhver hringi og bjóði
honum hann. „Svo væri gaman að
fá símann hennar Báru í safnið,
hann myndi sóma sér vel innan
um þá fjölmörgu síma sem hér
eru. Hún kannski hefur samband
við mig,“ segir Gunnar sposkur á
svip.
Vænst þykir Gunnari um hlutina
sem voru í eigu afa hans, t.d. tób-
akshornin sem hann smíðaði sjálf-
ur. Enn fremur eru í uppáhaldi
gömlu íþróttamyndirnar úr sögu
Skallagríms og vill Gunnar koma
á því á framfæri að ef einhver á
gamlar myndir úr sögu Skalla-
gríms að hafa þá endilega sam-
band við hann. Eins eiga örugg-
lega margir gamlar myndir frá
kappleikjum Skallagríms á úti-
velli, það væri fengur í slíkum
myndum.
Safnið er til húsa baka til í
gamla pósthúsinu á Borgarbraut
og hefur verið þar í um sex ár.
Gunnar hefur haft opið á safna-
daginn 1. maí og svo 17. júní. „Svo
er bara opnað með litlum fyrir-
vara þegar mikið er af fólki í
neðri bænum í Borgarnesi. Eins
hef ég opnað fyrir hópa, en gamlir
brottfluttir Borgnesingar hafa
sérstaklega gaman af að skyggn-
ast hér um.“ Hann segir ekkert
ákveðið eða planað fram í tímann
en húsnæðið er nú þegar orðið of
lítið, svo það er spurning um
stærra húsnæði eða láta þetta
gott heita og láta það duga sem
hann hefur nú þegar. Þegar hann
eignaðist sína fyrstu hluti hafi
ekki hvarflað að honum að hann
yrði kominn með svona „stórt“
safn í dag.
Ekki henda hugsunarlaust
Gunnar biður fólk að hugsa
vandlega um sögulegt gildi þess
sem verið er að henda og hafa
samband við hann ef það telur
dótið eiga heima á safninu.
Gamalt dót getur eignast gott
framhaldslíf á Hérumbilsafni
Gunna Jóns. Það má hafa sam-
band við hann í gegnum Face-
book-síðu safnsins: Face-
book.com/Hérumbil-
safn-Gunna-Jóns.
Sá verðmæti í gömlu drasli
Um 1.500 munir í Hérumbilsafninu í Borgarnesi Húsnæðið er nú þegar orðið of lítið Gömlu
íþróttamyndirnar úr sögu Skallagríms eru í uppáhaldi safnstjórans Vantar gamla sveitasímann
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Safngripur Gunnar Jónsson með tóbakshorn sem afi hans smíðaði.
Nytjahlutir Það kennir ýmissa grasa í Hérumbilsafninu.
Skallagrímsmyndir Myndir úr sögu Skallagríms.Dósir og flöskur Gamlar dósir og flöskur á hillum.
Farsímasafn Meðal gripa í safninu eru gamlir farsímar.
Sveitasímann vantar Gamla sveitasímann vantar tilfinnanlega í símasafnið.
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
Árið 1896 flutti Björn Þorláksson bóndi áVarmá inn vélar til að
vinna ull og notaði til þess vatnsorku úrÁlafossi. Verksmiðjan
átti stóran þátt í stofnun og vexti byggðar íMosfellsbæ
Álafoss , Álafossvegi 23 Mosfellsbæ, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Á Hérumbilsafn-
inu má sjá skó-
pörin sem Gunnar
og Helga voru í
þegar þau hittust
í fyrsta sinn, en
það var í október
1979 í samkomu-
húsinu í Borgar-
nesi. Að sögn
Gunnars var það
aðalballstað-
urinn. Gott ef það
voru ekki Seðl-
arnir sem léku
fyrir dansi!
Ballskórnir til sýnis
FYRSTU KYNNINSVIÐSLJÓS
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Gunnar Jónsson, smiður í Borg-
arnesi, hefur um árabil safnað
ýmsum munum og eru þeir til sýn-
is í „Hérumbilsafni“ hans. Nafnið
vísar til þess tíma þegar hann var
kominn með um 100 hluti, en nú
eru þeir um 1.500 og hann segir ef
til vill tímabært að endurhugsa
nafnið á safninu. En hvaða munir
eru þetta og af hverju fór hann að
safna?
„Þetta byrjaði eiginlega þannig
að ég var að vinna í gömlum hús-
um og fólk var að henda „rusli“ en
ég sá í því verðmæti og fannst
margt merkilegt. Þannig kviknaði
þessi áhugi á gömlum hlutum og
dóti. Okkur Helgu konu minni hef-
ur líka áskotnast í gegnum tíðina
töluvert af munum sem voru í eigu
fjölskyldna okkar beggja,“ segir
Gunnar. Þannig hafi hann varð-
veitt ýmislegt gamalt sem afi
hans, Þórður Jónsson í Krossnesi,
átti og bjó til. Þá er hann með
mikið af gömlum íþróttabúningum
og myndum sem tengjast aðallega
sögu knattspyrnu og körfubolta í
Borgarnesi og úr héraðinu. Á
safninu eru mörg útvarpstæki og
símar, ýmislegt úr samfélaginu
sem hætt er að nota og kallar
fram „nostalgíutilfinninguna“.
Opið eftir áhuga
Annars eru þetta hlutir sem
koma alls staðar að og frá hinum
og þessum, og hefur hann einnig
fengið hluti í gegnum safnara-
síður, sérstaklega hluti sem eiga
tengingu í Borgarnes. Gunnar seg-
ist ekki hafa haldið skrá yfir hlut-
ina með markvissum hætti en veit
hvaðan þeir flestir koma. „Þetta
er nú til gamans gert hjá mér,
skemmtilegt áhugamál, og ég tek
einungis við ákveðnum hlutum á
meðan hefðbundið byggðasafn hef-
ur ákveðnum skyldum að gegna.
Svo hef ég bara opið þegar mér