Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
Nýjar glæsilegar íbúðir í lyftublokkum sem verið
er að byggja í borg hamingjunnar Þorlákshöfn
1 - 4 herbergja íbúðir í boði. Afhending á þessu ári, þrefalt gler,
umhverfisvænar byggingar, mikil lofthæð, vandaðar innréttingar og tæki.
Glæsileg íþróttaaðstaða, sundlaug, leikskóli, grunnskóli og öll almenn þjónusta.
Frábær staður fyrir barnafjölskyldur, rétt við golfvöllinn,
aðstæður fyrir hestafólk, brimbretti, stangveiði og almenna útivist.
Einkasöluaðili: Fasteignasala Suðurlands
Sími: 483 3424 netfang: fastsud@gmail.com
Sími: 892 5001 netfang: jonvalur@prohus.is
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.prohus.is, Facebook/ Pró hús
STÓRLÆKKUN
Á VERÐI ÍBÚÐA – frá 13,6 milljónum
Moskvu. AFP. | Skógareldar hafa oft
geisað í víðáttum Síberíu en eldarnir
sem hafa breiðst þar út í sumar eru
óvenju miklir og vísindamenn óttast
að þeir hraði bráðnun íss í norður-
héruðum Rússlands og hlýnun
jarðar.
Eldar loguðu á rúmlega 3,2 millj-
óna hektara svæði í gær, þeir
stærstu í sjálfstjórnarlýðveldinu
Jakútíu eða Saka og í grennd við
borgirnar Krasnojarsk og Írkútsk.
Hitinn á þessum slóðum hefur
verið yfir 30 stigum á Celsius og eld-
arnir hafa breiðst hratt út vegna
snarpra vinda. Reykurinn frá eld-
unum hefur ekki aðeins borist yfir
litla bæi í grennd við þá heldur einn-
ig borgir í Vestur-Síberíu, Altai-
lýðveldinu og við Úralfjöll, m.a.
Tsjeljabínsk og Jekaterínborg, og
raskað flugsamgöngum.
„Hræðileg“ loftmengun
„Reykurinn er hræðilegur. Ég er
að kafna og mig svimar,“ sagði elli-
lífeyrisþeginn Raísa Brovkína, sem
var flutt á sjúkrahús Novosíbírsk,
þriðju fjölmennustu borg Rússlands.
Reykurinn frá eldunum náði meðal
annars til grannríkisins Kasakstans.
Að sögn veðurstofu landsins mældist
óvenjumikil loftmengun í nokkrum
borgum, meðal annars höfuð-
borginni Núr-Súltan (áður Astana).
Umhverfisverndarsinnar sögðu að
auk þess sem skógareldarnir ógnuðu
heilsu manna gætu þeir hraðað hlýn-
un jarðar. „Skógareldarnir í austur-
hluta landsins hafa fyrir löngu hætt
að vera aðeins staðbundið vanda-
mál,“ sagði í yfirlýsingu frá Rúss-
landsdeild umhverfisverndar-
samtakanna Grænfriðunga. „Þeir
eru orðnir að vistfræðilegum ham-
förum sem hafa afleiðingar fyrir allt
landið.“
Áhrifin „mjög alvarleg“
Umhverfisverndarsamtökin
sögðu að nær tólf milljónir hektara
skóglendis hefðu brunnið það sem af
er árinu. Eldarnir hefðu valdið veru-
legu útstreymi koltvísýrings og yrðu
til þess að skógarnir byndu minna af
lofttegundinni þegar fram liðu
stundir. „Síðan bætist við það
vandamál að sótið sem fellur á ísinn
eða snjóbráðina dekkir yfirborðið,
þannig að það endurspeglar minna
af sólarljósi og stuðlar að meiri
hlýnun,“ sagði í yfirlýsingu frá Al-
þjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO).
Grígorí Kúksín, sérfræðingur
Rússlandsdeildar Grænfriðunga,
sagði að sótið og askan frá skógar-
eldunum hröðuðu bráðnun íss og ís-
frera á norðurslóðum og yllu þannig
auknu útstreymi gróðurhúsaloftteg-
unda sem stuðluðu að hlýnun jarðar.
Kúksín sagði að þessi áhrif skógar-
eldanna væru „mjög alvarleg“ og
sambærileg við losun gróðurhúsa-
lofttegunda í stórum borgum.
Umhverfisverndarsinnarnir segja
að flestir eldanna hafi geisað á af-
skekktum og ógreiðfærum svæðum
og yfirvöld í Rússlandi hafi ekki kall-
að út slökkviliðsmenn nema áætlað
eignatjón af völdum eldanna sé
meira en kostnaðurinn af slökkvi-
starfinu. Hlutverk yfirvaldanna hafi
því að miklu leyti einskorðast við
það að fylgjast með skógareldunum.
Meira en 3,2 milljónir
hektara hafa brunnið frá 29. júlí
R Ú S S L A N D
Sótið og askan hraða bráðnun íss og sífrera á svæðinu
Skógareldar í Síberíu
Heimildir: NASA, Copernicus, FIRMS, Resource Watch
MOSKVA
ÍrkútskBratsk
Jakútsk
Lítið Mikið
Magn agna í
andrúmsloftinu *
Helstu eldar
síðustu tvo daga
1.000 km
*agna sem tengjast aðallega skógareldum
Telja eldana geta
valdið meiri hlýnun
Vísindamenn vara við áhrifum skógarelda í Síberíu
Bandaríski sjávarlíffræðingurinn
og ljósmyndarinn Chase Dekker
hefur náð áhrifamikilli ljósmynd af
sæljóni falla í gin hnúfubaks. „Ég
verð oft vitni að mögnuðum fyrir-
bærum í starfi mínu en hef aldrei
séð nokkuð þessu líkt,“ segir ljós-
myndarinn.
Dekker er 27 ára og segist hafa
tekið náttúrulífsmyndir í um ára-
tug. Hann tók myndina þegar hann
var í hvalaskoðunarferð á báti und-
an strönd Monterey-flóa í Kali-
forníu í vikunni sem leið. Hann seg-
ist hafa verið að fylgjast með hópi
hnúfubaka að veiða torfu af ansjós-
um þegar hann hafi tekið eftir sæ-
ljóninu. Það hafi ekki komist undan
og lent í gini eins hnúfubakanna.
Ólíkt stórhvelinu sem gleypti spá-
manninn Jónas og skilaði honum á
land þremur dögum síðar gleypti
hnúfubakurinn ekki sæljónið, sem
synti í burtu, líklega dauðskelkað.
Sæljón í gini hnúfubaks
Sjaldgæft andartak fest á mynd
AFP
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, heimsótti Norður-Írland
í gær eftir að írskir leiðtogar höfðu
varað við því að loforð hans um að
Bretland gengi úr Evrópusamband-
inu 31. október með eða án samn-
ings um útgönguna gæti orðið til
þess að Bretland leystist upp.
Johnson áréttaði loforðið á fund-
um með forystumönnum fimm
helstu flokkanna á þingi Norður-Ír-
lands.
Mary Lou McDonald, leiðtogi
Sinn Féin, flokks norðurírskra lýð-
veldissinna, sagði eftir viðræðurnar
við Johnson að ef Bretland gengi úr
Evrópusambandinu ættu Norður-
Írar að fá tækifæri til að ákveða
hvort þeir vildu að Norður-Írland
sameinaðist Írska lýðveldinu.
Hafna kröfu Johnsons
Daginn áður ræddi Boris Johnson
Brexit-stefnu sína í síma við Leo
Varadkar, forsætisráðherra Írska
lýðveldisins, sem áréttaði andstöðu
sína við þá kröfu breska forsætis-
ráðherrans að umdeilt ákvæði um
írsku landamærin yrði fellt út úr
Brexit-samningi Theresu May við
ESB. Stuðningsmenn ákvæðisins
segja að það sé nauðsynlegt til að
koma í veg fyrir að Brexit grafi
undan samningnum sem náðist árið
1998 til að koma á friði á Norður-
Írlandi eftir átök sem kostuðu um
3.500 manns lífið. Andstæðingar
samningsins segja hins vegar að
ákvæðið geti orðið til þess að Bret-
land þurfi að vera áfram í tolla-
bandalagi ESB í mörg ár eftir út-
gönguna.
Varadkar hefur sagt að ef Bret-
land gengur úr Evrópusambandinu
án samnings auki það líkurnar á því
að Norður-Írland og Írska lýðveldið
sameinist. „Fólk sem hægt væri að
lýsa sem hófsömum þjóðernis-
sinnum eða hófsömum kaþólskum
kjósendum og er nokkuð ánægt með
óbreytt ástand verður hlynntara
sameinuðu Írlandi,“ sagði hann.
Nicola Sturgeon, forsætisráð-
herra skosku heimastjórnarinnar,
sagði í bréfi til Johnsons í vikunni
sem leið að ef Bretland gengi úr
ESB án samnings þyrftu Skotar að
fá tækifæri til að ákveða hvort þeir
vildu að Skotland lýsti yfir sjálf-
stæði. bogi@mbl.is
Írsku landamærin
500 km
30.000
Í R S K A
L Ý Ð V E L D I Ð
NORÐUR-
ÍRLAND
(BRETLAND)
Belfast
400 vegir yfir landamærin
fara yfir landamærin
til vinnu dag hvern
Viðskipti
án hindrana
Heimild: NISRA
B R E T L A N D
manns
Yki líkur á sam-
einingu Írlands
Írar andvígir Brexit án samnings