Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 42

Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 ✝ Kolbrún LiljaSigurbjörns- dóttir fæddist 6. mars 1949. Hún lést á heimili sínu mánu- daginn 22. júlí. Foreldrar henn- ar voru Soffía Páls- dóttir frá Ögri og Sigurbjörn Krist- insson frá Eiði í Kolgrafafirði. Bræður hennar voru Hilmar, Sæmundur, Hörð- ur, Reynir, Birgir, Kristján, Jak- ob og Birgir Kristján. Jakob lifir einn systkini sín. Hún kynntist eftirlifandi manni sínum, Henry Svenning Winther Olsen frá Skopun á Sandoy, Færeyjum, þegar hún var 17 ára og gekk þá með elstu dóttur sína, Díönu Henriettu Fjölnisdóttur, f. 1964. Börn Kol- brúnar og Henrys eru Sófus Kristinn, f. 1967, Sigurbjörg Andrea, f. 1971, og Bjarni Mark Jóhannes, f. 1976. Barnabörnin eru níu og barnabarnabörnin eru fimm talsins. Dóttir Díönu er Kolbrún Líf, f. 1999. Börn Sóf- usar eru Lydia Rún, f. 1993, synir hennar eru Elvis Aron, f. 2014, og Relí Már, f. 2017, Viktor Snær, f. 2000, og Mikael Sebast- ian, f. 2005. Börn Sigurbjargar eru: Kristín Anna, f. 1989, synir hennar eru Tristan Blær, f. 2010, Úlfur Myrkvi, f. 2017, og Mjölnir Bjarmi, f. 2018; Ingibjörg Soffía, f. 1994, og Emilía Ósk, f. 2000; Metúsalem Páll, f. 2005. Sonur Bjarna er Hafsteinn Henry, f. 2004. Tengdabörn Kol- brúnar eru Sylwia Matusiak Henrysson, f. 1974, kona Sófusar; Jón Einar Jónsson, f. 1975, maður Sigurbjargar; og Dag- björt Fjóla Hafsteinsdóttir, f. 1976, kona Bjarna. Kolbrún ólst upp í Stykkis- hólmi og bjó þar utan nokkur ár eftir 1970 er þau Henry bjuggu í Vestmannaeyjum. Eftir að hafa flúið eldgosið í Heimaey 1973 settust þau aftur að í Stykkis- hólmi þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Kolla vann ýmis störf, lengst af við fiskvinnslu í Þórsnesi og Rækjunesi en líka í sláturhúsinu við Reitarveg. Kolbrún verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju í dag, 1. ágúst, klukkan 14. Ég var tengdasonur Kollu síð- ustu tólf ár. Fólki fannst það „áhugavert“ hlutskipti því Kolla var „ekki allra“; óhrædd við að segja skoðanir sínar og gat verið hreinskiptin með eindæmum. Hún var ófeimin við fólk og gaf sig á tal jafnt við ættingja, ná- granna eða bara fólk úti í búð, stundum var fólk ávarpað all- hressilega af tuga metra færi. Hennar innsta hvöt var alltaf að hún vildi vel og allt fyrir fólk gera. Hún kunni líka að hlusta og spyrja réttu spurninganna ef svo bar undir. Hún var barngóð, mikil amma og ömmu- og lang- ömmubörnin áttu alltaf skjól hjá henni. Hún var hamfarakokkur og alltaf hélt maður að það væri von á fleirum í mat því hún eldaði alltaf tvöfaldan skammt: fiski- bollur, kjöt í káli, saltkjöt, sviða- kjamma, bjúgu, kótelettur í raspi. Það voru kyrrðarstundir því þá flúðu barnabörnin á vit pappapítsu eða pylsuvagna. Hún reyndist mér á margan hátt vel og við áttum aldrei erfitt með að skilja hvort annað. Margt sem á hennar daga dreif var síst til að efla fólki kjark; erfiður bróðurmissir í æsku, eldgos þar sem þau misstu allt sitt og ekki síst erfið heilsa seinni hluta æv- innar. Ég hef aldrei þekkt aðra eins bjartsýni og hennar og hún krafðist þess að fólk væri bros- andi og tæki hlutunum ekki of al- varlega. Þess á milli var henni þungt í skapi og sátu þá ýmsar gamlar misgjörðir í henni. Hún stóð með sínu fólki, Kollu var alltaf hlýtt til Færeyja og Fær- eyinga og talaði reglulega við skyldfólk Henrys í síma. Þá var hún ættuð úr Höskuldsey og átti þaðan bernskuminningar. Hana dreymdi um að heimsækja allar þessar eyjar sínar en það varð aldrei. Ég mun ætíð minnast Kollu brosandi. Jón Einar Jónsson. Elsku besta amma mín, að fá þær ömurlegu fréttir að þú værir farin frá okkur var mikið áfall, aðeins 70 ára að aldri. Um þig á ég samt svo ótalmargar yndis- legar minningar sem ég mun allt- af hafa hjá mér. Söknuðurinn er afskaplega sár en það er nokkuð sem læra þarf að lifa með. Þið afi voruð mínir foreldrar númer tvö enda eyddi ég afskaplega mikl- um tíma með ykkur sem ég met svo mikils. Þú, elsku amma mín, kenndir mér margt og varst allt- af til staðar fyrir mig fram á þinn seinasta dag, og ef það var eitt- hvað þá varstu komin. Sem barn fannst mér alltaf best að vera hjá ömmu og afa, þar mátti líka allt. Eitt af því sem var svo frábært við þig voru spunasögurnar þínar sem þú bjóst til. Að leggjast nið- ur og biðja þig að segja mér sögu var mikið gert og alltaf varstu tilbúin til þess og aldrei var nein saga eins og önnur. Það var ekki bara skemmtilegt að hlusta á sögurnar heldur sagðir þú þær svo skemmtilega og með leik. Við vorum mjög nánar alla tíð elsku amma mín. Sykurmolar ofan í appelsínu, hvað er nú það? Jú það var eitt af því sem amma gerði alltaf. Hún gerði gat ofan í appelsínuna og stakk þar nokkr- um sykurmolum og síðan var appelsínan kreist og soginn úr henni ennþá sykraðri safinn sem í minningunni var mjög gott þótt ég sé ekki viss um að ég myndi gera þetta í dag. Amma Kolla var einstök og það var enginn eins og hún enda var hún frábær. Svartur var húmorinn og hún var svo full- komlega hreinskilin með allt og sagði bara það sem henni fannst, þannig var hún. Amma hætti að vinna ung en hún stoppaði þó aldrei, að elda og baka fannst henni einstaklega skemmtilegt og var hún einstaklega gestrisin þegar gesti bar að. Fiskibollurn- ar hennar ömmu eru þær allra bestu og oft var þetta hörku- framleiðsla; kleinur og ömmu- vínarbrauð og svo voru það mömmukökurnar sem allir elsk- uðu. Það var alveg sama hvað hún tók sér fyrir í eldamennsku eða bakstri; það var allt gott sem amma gerði. Það leyndi sér held- ur ekki hversu einstaklega mikil barnakona hún amma var, hún mátti ekki barn sjá þá var hún farin af stað að tala við það eða brosti og heilsaði ef það var í fjarlægð. Hún elskaði börn og sýndi það svo sannarlega. Ég vildi að litlu gaurarnir mínir gætu fengið að kynnast þér eins og Tristan gerði. Tristan var rosalega mikill ömmustrákur og það leyndi sér ekki enda var hann jafn mikið hjá ykkur og ég var þegar ég var barn. Tristan elskaði þig alveg afskaplega mik- ið, hans annað heimili var hjá ykkur afa. Þið voruð alltaf til staðar fyrir hann líka og var hjálpin mjög mikil á hans fyrstu árum, hann sá ekki sólina fyrir þér. Takk fyrir allt sem þú af þér gafst. Elsku besta amma, langamma og tengdaamma, þín verður sárt saknað en minningin um þig mun lifa með okkur alltaf, við elskum þig svo mikið. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kristín Anna, Andri Hrafn, Tristan Blær, Úlfur Myrkvi og Mjölnir Bjarmi. Elsku amma. Það er svo óraunverulegt að skrifa um þig minningargrein. Síðustu dagar hafa verið ótrú- lega erfiðir og tómlegir, en samt sem áður fullir af ást, umhyggju og minningum um þig. Það bjóst enginn við því að þú færir svona fljótt, en við höfum stutt hvert annað í gegnum sorgina, því við vitum að það er það sem þú hefð- ir viljað. Ég á ótal margar minningar um þig, þá sérstaklega úr æsku og gæti setið hér í allan dag og skrifað. Það sem stendur kannski helst upp úr er hversu ótrúlega þolinmóð þú varst við mig þegar ég spurði um allt milli himins og jarðar og þú svaraðir mér alltaf eins vel og þú gast. Eftir að ég varð eldri varstu dug- leg að minna mig á það hvað ég gat gert þig gráhærða með heim- spekilegum spurningum, og ég svaraði alltaf að maður lærir ekki öðruvísi en að spyrja. Og svo hlógum við saman. Amma var góðhjörtuð, hrein- skilin, ákveðin og afar stór kar- akter með svartan húmor og oft- ar en ekki veit fólk nákvæmlega hver ég er þegar ég segist vera barnabarn Kollu, enda þekkti hún svo marga. Hún vildi allt fyr- ir alla gera, þá sérstaklega sína nánustu og hún elskaði öll börn sem hún hitti. Það verður alltaf tómlegt án ömmu, en við vitum að hún passar enn upp á okkur. Við sjáumst síðar, amma mín, ég elska þig. Ingibjörg Soffía Oddsdóttir. Látin er í Stykkishólmi frænka mín, Kolbrún Lilja Sigurbjörnsdóttir, sjötíu ára að aldri. Kolbrún var kona sem tek- ið var eftir og hún setti svip á bæinn. Hún var eftirminnileg þeim sem henni kynntust. Hún var eina stúlkan og yngst í stórum barnahópi þeirra Soffíu Pálsdóttir föðursystur minnar og Sigurbjörns Kristjánssonar. Soffía móðir hennar var afar ljúf kona sem hélt vel utan um hóp- inn sinn. Bjössi mágur, eins og faðir minn og hans bræður köll- uðu hann, og nánast allir í Stykk- ishólmi þekktu hann undir því nafni, var dugmikill sjómaður og tókst að sjá fyrir sínum stóra barnahópi. Soffía og Sigurbjörn urðu fyrir þeirri stóru sorg að missa tvo unga drengi af slysför- um. Nú lifir einn bróðir Kolbrún- ar, Jakob, eftir. Kolbrún ól mest- allan sinn aldur í Hólminum utan örfá ár sem hún bjó í Vestmanna- eyjum, en kom aftur í Hólminn þegar Vestmannaeyjagosið varð. Hún eignaðist dóttur ung og kynntist svo færeyskum sjó- manni sem kom í Stykkishólm á vertíð, Henry Olsen. Þau eign- uðust svo þrjú börn til viðbótar og ólu upp sín fjögur börn með miklum sóma. Kolla, eins og hún var ávallt kölluð, tók sitt pláss í bænum og var úrræðagóð að sjá sér og sín- um farborða ásamt Henry sem lengst af var á sjó. Hann var heiðraður á sjómannadag fyrir nokkrum árum og var ánægju- legt að fá að aðstoða við það og gaman að kynnast nýjum hliðum á lífi Henrys. Hugur minn er hjá Henry, sem hefur misst mikið, og börnunum þeirra og fjölskyld- um sem hún alla tíð hélt vel utan um og reyndust henni vel. Það er sjónarsviptir að Kol- brúnu úr bæjarlífinu og sam- félagið er orðið einum litríkum persónuleika fátækara. Ég sendi Henry og fjölskyldunni allri kær- leiks- og samúðarkveðjur. Dagbjört S. Höskuldsdóttir. Kolbrún Lilja Sigurbjörnsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Þú varst ein besta og hjartahlýjasta manneskja sem ég hef þekkt og að þú sért farin frá okkur skilur eftir hol í okkur öllum sem verður aldrei fyllt. Þú varst svo góð við allt og alla í kring- um þig og settir bros á and- lit margra heima í Stykkis- hólmi og annars staðar líka, bara hvar sem þú komst. Ég á margar góðar minn- ingar um þig og mun varð- veita þær að eilífu. Ég mun sakna þín, elsku amma mín. Hvíldu í friði, fallegi engill- inn minn. Emilía Ósk Olsen. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Okkar ástkæri JÓHANN SIGURÐSSON tæknifræðingur, Seljuskógum 14, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands 26. júlí. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 7. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja heimahjúkrun HVE á Akranesi, rkn. 0186-05-100006, kt. 040888-2419, verndari reiknings er Þórhildur Orradóttir. Sigurrós Ingimarsdóttir Þórhildur Einar Gestur Guðný Sigurrós Sigurður Kai Sigurður Björgvinsson Jenný Jóhnnsdóttir og fjölskyldur Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hæðargarði 35, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 28. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Jónas Bjarnason Lilja Jónasdóttir Stefán Atli Halldórsson Gunnar Örn Jónasson Sigrún Jónasdóttir Óskar Jónasson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR VESTMANN skipstjóri, Gullsmára 11, lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn 28. júlí. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 7. ágúst klukkan 15. Oddný Vestmann Guðmundsdóttir, Kristján Þorvaldsson Elmar Guðmundsson Kulisara Tonan Svala Guðmundsdóttir Steindór Karvelsson Sandra Guðmundsdóttir Magnús Magnússon Anna María Guðmundsdóttir Kjartan Hallkelsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður og besti vinur, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SÆVAR KETILSSON, Holtsvegi 27, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 29. júlí. Útför auglýst síðar. Guðrún Hjálmarsdóttir Guðmunda D. Sigurðardóttir Árni Möller Hrafnhildur Sigurðardóttir Eiríkur Sigurðsson Ásbjörg Ólöf Sigurðardóttir Kristján Másson Katla Sigurðardóttir Magnús Viðar Heimisson Sigrún Sigurðardóttir Helgi Stefánsson Sigurður Sævar Sigurðsson og afabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og tengdasonur, BENEDIKT K. KRISTJÁNSSON sölu- og þjónustufulltrúi hjá Innnes, frá Bolungarvík, lést á heimili sínu sínu í Reykjanesbæ sunnudaginn 28. júlí. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 10. ágúst klukkan 14. Ragnhildur H. Benediktsd. Hagbarður Marinósson Kristján H. Benediktsson Ásdís Ósk Viggósdóttir Aron Ívar Benediktsson Þórdís Una Arnarsdóttir Gunnar, Katla, Kristín, Marinó Benedikt, Gabríel, Eydís, Kristín Líf Helga Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.