Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 59

Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 Voru einhverjir þrír ungir (eða eldri) fótboltamenn að fífl- ast þegar þeir fylltu út könnun Leikmannasamtaka Íslands á vinnuumhverfi leikmanna í efstu deild karla hér á landi? Eða eru virkilega einhverjir þrír leikmenn í deildinni með 3,6 milljónir króna í laun á mánuði – eða voru með þau tímabundið á þeim tíma sem könnunin var gerð? Ég tek undir með efasemdar- röddunum. Það væri með ólík- indum ef þetta væri rétt. Stjórn Íslensks Toppfótbolta tekur hins vegar að mínu mati fulldjúpt í árinni með því að lýsa könn- unina í heild „algerlega mark- lausa“ þar sem þau birti „slíka fjarstæðu án athugasemda eða fyrirvara“. Framtak Leikmannasamtak- anna er lofsvert. Í könnun þeirra kemur fjölmargt forvitnilegt í ljós eins og lesendur Morgun- blaðsins sáu á þriðjudaginn. Það er íslensku íþróttafólki til mikilla hagsbóta að samtök sem þessi skuli vera til staðar og geti liðsinnt þeim sem lenda í vand- ræðum, t.d. varðandi launa- greiðslur eða samninga. Sú staðreynd sem kemur fram í könnuninni að 32 prósent leikmanna í efstu deild karla hafi upplifað tafir á launa- greiðslum segir sitt um mik- ilvægi þess að hafa eitthvert bakland sem hægt er að leita til. Það er því frekar dapurlegt ef rétt er að könnunin hafi í ein- hverjum tilvikum verið fyllt út í einhvers konar gríni. Þeir þrír sem áttu í hlut gætu hæglega einhvern tíma þurft að leita á náðir Leikmannasamtaka Ís- lands, ef þeir fá sínar svimandi háu launagreiðslur ekki útborg- aðar á réttum tíma! BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EM U18 karla B-deild í Rúmeníu: C-riðill: Ísland – Lúxemborg............................. 96:38 Tékkland – Noregur............................. 97:52 Ísrael – Bosnía ...................................... 82:77  Lokastaðan: Ísrael 10 stig, Tékkland 9, Bosnía 8, Ísland 7, Noregur 6, Lúxemborg 5. (Tvö stig fyrir sigur og eitt fyrir tap).  Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í keppni um sæti 9-16 á morgun.  Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við belgíska B- deildarliðið Lommel, en félagið til- kynnti þetta í gærkvöld. Kolbeinn er 19 ára gamall og er keyptur frá Breiðabliki, þar sem hann hefur skorað fjögur mörk í 12 leikjum í efstu deild í sumar. Stefán Gíslason, sem þjálfaði Kolbein í yngri flokkum Breiðabliks, er ný- tekinn við sem þjálfari Lommel. Fé- lagið keypti annan Blika fyrr í sum- ar, en það var Jonathan Hendrickx. Kolbeinn far- inn til Stefáns KNATTSPYRNA Evrópudeild karla, seinni leikur: Samsungv.: Stjarnan – Espanyol........ 19.15 Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Kópavogsvöllur: Breiðablik – Þór/KA..... 18 Í KVÖLD! vel við hraðann í sóknarmönnum deildarinnar og Guðný Geirsdóttir var að gefa þriðja markið í síðustu tveimur leikjum. Þá var svæðið milli varnar og miðju oft illa varið af miðjumönnum liðsins og Fylk- iskonur voru duglegar að spila í það svæði og refsa Eyjakonum. Þá var sóknarleikur liðsins tilvilj- unarkenndur og snerist að mestu um það að negla boltanum fram á Cloé Lacasse sem átti að elta og skora. Fylkisliðið er á miklu skriði og sigurinn gegn Þór/KA í tíundu um- ferð deildarinnar virðist hafa gefið liðinu mjög mikið. Ef allt er eðlilegt þá ætti það að duga liðinu að ná í sex stig í viðbótar til þess að halda sér í deildinni og það er erfitt að sjá eitt- hvert lið stoppa Árbæinga, fyrir ut- an Breiðablik og Val, eins og liðið er að spila um þessar mundir. Gengi ÍBV heldur áfram að versna og versna. Liðið er að fá á sig ódýr mörk eftir einstaklingsmistök og heilt yfir hefur frammistaða liðs- ins í sumar bara verið slök. Leiðtog- ar liðsins virðast vera heillum horfn- ir og ef ekki væri fyrir Cloé Lacasse væri liðið eflaust mun neðar í töfl- unni. Liðið nær ekki í mörg stig þegar Cloé fer, eins og staðan er í dag og útlitið í Eyjum er svart. Fylkir færist fjær fallbaráttunni  Staðan er hins vegar svört í Eyjum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Árbær Cloé Lacasse skoraði tvö en Hulda Hrund Arnarsdóttir fagnaði sigri. Í ÁRBÆNUM Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Fylkiskonur unnu gríðarlega mik- ilvægan 3:2-sigur gegn ÍBV í úrvals- deild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, í Árbænum í gær í frestuðum leik í 8. umferðinni. Marija Radojicic, Berglind Rós Ágústsdóttir og Stefanía Ragn- arsdóttir skoruðu mörk Fylkis en Cloé Lacasse skoraði bæði fyrir ÍBV. Fylkiskonur byrjuðu leikinn bet- ur og voru duglegar að nýta sér veikleikana í varnarleik ÍBV. Mið- verðir liðsins, þær Berglind Rós og Kyra Taylor, áttu báðar mjög góðan leik og héldu sóknarmönnum Eyja- kvenna í skefjum nánast allan leik- inn. Uppspil Fylkisliðsins var mjög gott, leikmenn liðsins voru hreyf- anlegir, og það var alltaf opin leik- maður til þess að senda boltann á. Það var alvöru plan í sóknarleik liðs- ins, koma sér á bak við bakverði ÍBV, og senda svo boltann fyrir markið og Fylkisliðið skoraði tvö slík mörk í leiknum. Varnarleikur Eyjaliðsins var langt frá því að vera sannfærandi. Bakverðir liðsins virðast ekki ráða Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA tilkynnti í gær að þátttöku- liðum á lokakeppni heimsmeist- aramóts kvenna yrði fjölgað úr 24 í 32 strax frá og með næstu keppni ár- ið 2023. Ákveðið var að taka þá ákvörðun utan hefðbundins fundar og hrinda strax í framkvæmd þar sem umsókn- arferli fyrir gestgjafa mótsins er enn í gangi. Næsta vor er gert ráð fyrir að ákveða hvar lokakeppni HM 2023 verður haldin en þar verður liðunum 32 skipt í átta fjögurra liða riðla. FIFA fjölgar liðum strax á HM 2023 AFP HM Megan Rapinoe hér fagnað af Gianni Infantino, forseta FIFA. Axel Stefánsson hefur ákveðið að end- urnýja ekki samning sinn við Hand- knattleikssamband Íslands og mun því hætta sem landsliðsþjálfari kvenna. Þetta kom fram í tilkynningu HSÍ í gærkvöld, en sambandið var mjög ánægt með störf Axels og taldi hann hafa náð mjög góðum árangri. „Eftir 3 ár í starfi landsliðsþjálfara telur Axel að það sé tími til að fá nýja áskorun á sínum ferli. Axel vill koma fram þökkum til allra sem starfað hafa með sér á þessum tíma hjá HSÍ og óskar landsliðinu velfarnaðar,“ segir í tilkynningu HSÍ. yrkill@mbl.is Axel hættir sem landsliðsþjálfari Morgunblaðið/Eggert Hættur Axel Stefánsson verður ekki áfram með kvennalandsliðið. 1:0 Marija Radojicic 24. 1:1 Cloé Lacasse 25. 2:1 Berglind Rós Ágústsdóttir 34. 3:1 Stefanía Ragnarsdóttir 66. 3:2 Cloé Lacasse 77. I Gul spjöldCloé Lacasse (ÍBV). MM Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki) Kyra Taylor (Fylki) FYLKIR – ÍBV 3:2 M Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Fylki) Ída Marín Hermannsdóttir (Fylki) Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylki) Stefanía Ragnarsdóttir (Fylki) Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki) Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV) Caroline van Slambrouck (ÍBV) Cloé Lacasse (ÍBV) Brenna Lovera (ÍBV) Dómari: Helgi Mikael Jónasson, 8. Áhorfendur: 210. EVRÓPUDEILD Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valur og Stjarnan mæta til leiks í Evrópuleikjum sínum í kvöld með ólíka stöðu. Valsmenn eiga raunhæfa möguleika á að slá út hið öfluga búlg- arska meistaralið Ludogorets frá Razgrad en Stjörnumenn spila nán- ast upp á heiðurinn þegar þeir taka á móti Espanyol frá Barcelona í Garða- bænum í kvöld. Þetta eru seinni leikir liðanna í 2. umferð Evrópudeildar karla í fót- bolta og Valsmenn freista þess að byggja ofan á jafnteflið, 1:1, sem þeir gerðu við Ludogorets á Hlíðarenda í síðustu viku. Takist þeim að koma aftur á óvart gegn öflugum andstæðingum og slá þá út í Razgrad í kvöld verða and- stæðingar í 3. umferð það lið sem tap- ar einvígi FC Köbenhavn frá Dan- mörku og The New Saints frá Wales í 2. umferð Meistaradeildarinnar. Þar eru Danirnir með 2:0-forskot frá úti- leiknum og Valur fengi því líklega velsku meistarana með því að komast áfram, og þar með óvænt tækifæri til að fara alla leið í fjórðu umferðina. Leikmenn Ludogorets sluppu fyrir horn á Hlíðarenda þegar Anicet Abel frá Madagaskar jafnaði metin fyrir þá, 1:1, í uppbótartímanum gegn Val. Ludogorets vann heimaleik gegn Vi- tosha Bistritsa, 2:0, í búlgörsku 1. deildinni á mánudagskvöldið og er þar á toppnum með níu stig og markatöluna 8:2 eftir þrjá fyrstu leik- ina. Ólafur Jóhannesson hefur svigrúm til að koma Búlgörunum á óvart í leiknum í kvöld því hann hvíldi nokkra lykilmenn í fyrri leiknum. Haukur Páll Sigurðsson, Hannes Þór Halldórsson, Ólafur Karl Finsen, Emil Lyng og Sigurður Egill Lár- usson komu ekki við sögu og þeir Bjarni Ólafur Eiríksson og Kristinn Freyr Sigurðsson komu inn á sem varamenn. Ætla að njóta leiksins Espanyol vann Stjörnuna 4:0 í Barcelona síðasta fimmtudag, eftir þrjú mörk á níu mínútum í seinni hálfleik, og Garðbæingar þyrftu „æv- intýri aldarinnar“ til að ógna því for- skoti í heimaleiknum í kvöld. Liðið sem kemst áfram mætir Luz- ern frá Sviss eða KÍ Klaksvík frá Færeyjum í 3. umferð og þar á fær- eyska liðið enn möguleika eftir naum- an 1:0-ósigur í fyrri leiknum í Sviss. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði við mbl.is í gær að þeir leikmenn sem væru tæpir yrðu hvíldir í leiknum í kvöld en hann myndi stilla upp mjög sterku liði. „Við ætlum að njóta þess að spila við svona sterkan andstæðing,“ sagði Rúnar m.a. í viðtalinu. Espanyol hafnaði í 7. sæti spænsku 1. deildarinnar, La Liga, síðasta vet- ur, sem er besti árangur liðsins frá 2005, og leikur í Evrópukeppni í fyrsta sinn í þrettán ár. Liðið spilar ekki deildaleik fyrr en 18. ágúst en Spánverjarnir komu við á Englandi á leið sinni til Íslands og gerðu þar jafntefli, 2:2, við B-deildarliðið Shef- field Wednesday á sunnudaginn. Koma Valsmenn aftur á óvart?  Stjarnan fær Espanyol í heimsókn Espanyol Leikmenn spænska stórliðsins æfðu í Garðabænum í gærkvöldi. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.