Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég myndi segja að dagskráin væri
óvenjufjölbreytt í þetta sinn. Hún
spannar allt frá brasilískri bossa-
novatónlist til óperunnar La Travi-
ata eftir Giuseppe Verdi,“ segir Ólöf
Sigursveinsdóttir, listrænn stjórn-
andi Berjadaga. Tónlistarhátíðin
hefst í kvöld, fimmtudagskvöldið 1.
ágúst, og lýkur á sunnudagsmorgun,
4. ágúst. Hátíðin er haldin í 21. sinn
en þetta er í fyrsta sinn sem hún er
um verslunarmannahelgi.
Hátíðin hefst á því að Örn Magn-
ússon, stofnandi hátíðarinnar, snýr
aftur með hljómsveit sinni Spil-
mönnum Ríkínís og heldur tónleika í
Ólafsfjarðarkirkju í kvöld kl. 20.
„Þetta er fjölskylduhljómsveit sem
hefur verið að lyfta grettistaki í því
að vekja upp þjóðlagaarfinn með
gömlum hljóðfærum og einstökum
tökum á íslenskri tungu,“ segir Ólöf.
Stofna brasilíska hljómsveit
Síðar um kvöldið er förinni heitið
yfir í menningarhúsið Tjarnarborg
þar sem brasilísku Ólafsfirðing-
arnir, eins og Ólöf kemst að orði,
bæjarlistamennirnir Guito og
Rodrigo, leiða hljómsveit.
„Hollenska söngkonan Femke
Smit er sérstaklega komin til lands-
ins til þess að koma fram með þess-
um snillingum þannig að ég er í raun
að stofna brasilíska hljómsveit sér-
staklega fyrir Berjadaga.“ Það
þekkja líklega fáir hér á landi nafnið
Femke Smit en Ólöf segir hana vera
stórkostlega söngkonu sem hafi sér-
hæft sig í brasilískri músík.
Á hátíðarkvöldinu á föstudag
verða íslensk söngljóð á dagskrá.
Meðal flytjenda eru Elmar Gilberts-
son tenórsöngvari, Hanna Þóra
Guðbrandsdóttir sópransöngkona
og Páll Palomares fiðluleikari. Þar
kemur sellóleikarinn og fram-
kvæmdastjórinn Ólöf sjálf fram. Á
efnisskránni verða meðal annars
verk eftir íslensku tónskáldin Jón
Nordal, Sigursvein D. Kristinsson,
Atla Heimi Sveinsson, Þórunni Guð-
mundsdóttur og Báru Grímsdóttur.
Ólöf segist hafa lagt áherslu á að
hafa ólík tónskáld, bæði konur og
karla. Þeir Hjörleifur Hjartarson og
Eiríkur Stephensen, sem mynda
hljómsveitina Hund í óskilum, halda
uppi fjörinu eftir að hátíðartónleik-
unum lýkur og flytja eins konar
samtal við tónlistina sem flutt var
fyrr um kvöldið.
Viðburðurinn Kráka situr á steini
verður á laugardag kl. 11:30. Þar
býðst öllum að syngja norræn þjóð-
lög með Diljá Sigursveinsdóttur,
fiðlu- og tónmenntakennara.
Fjölskylduvæn dagskrá heldur
áfram síðar um daginn þegar farið
verður í göngu inn í Árdal undir
leiðsögn Maríu Bjarneyjar Leifs-
dóttur og þangað segir Ólöf alla
vera velkomna. Lagt verður af stað
frá Kaffi Klöru kl. 12. Á göngunni
verður litið til grasa, berja og
sveppa. Með þessu tengir fram-
kvæmdastjórinn, Ólöf, saman ein-
kunnarorð hátíðarinnar „náttúra og
listsköpun“.
„Tilgangur hátíðarinnar er að
fremja fagrar listir í fögru og mögn-
uðu umhverfi árlega,“ segir listræni
stjórnandinn.
Ólöf leggur áherslu á að gestum
gefist tækifæri á að kynnast þeim
listamönnum sem koma fram á há-
tíðinni og öfugt. „Í göngunni gefst
kostur á því að gestir og flytjendur
hafi samskipti sín á milli. Það er fal-
legt,“ segir Ólöf.
Ópera í fyrsta sinn á Ólafsfirði
„Það mætti segja að sígildur tón-
listararfur sé enn þá að nema land
hérlendis því það hefur aldrei verið
flutt ópera á Ólafsfirði.“ Konsert-
uppfærsla af fyrsta þætti La Travi-
ata verður sett upp í Tjarnarborg á
laugardagskvöld. „Vegna þessarar
uppfærslu er auðvitað hægt að hitta
miklu fleiri listamenn en síðustu
sumur, þannig að hátíðin er bæði
óvenju fjölbreytt og fjölmenn. Það
myndast svo mikil orka þegar svona
margir listamenn koma saman á ein-
um stað,“ segir Ólöf og bætir því við
að af þessu tilefni hafi verið stofn-
aður einsöngvarakór. „Hann skipa
að stærstum hluta söngvarar úr kór
Íslensku óperunnar frá uppsetningu
La Traviata þar í vetur en svo bæt-
ast við góðir félagar frá Akureyri.“
Með aðalhlutverk í óperunni fara
Sigrún Pálmadóttir, Elmar Gil-
bertsson, Jón Þorsteinsson og
Ágúst Ólafsson. Óperan verður hluti
af tónleikum sem bera yfirskriftina
„Ítalskt og rússneskt kvöld“. Nat-
halía Druzin Halldórsdóttir mezzó-
sópran flytur rússnesk ljóð eftir hlé.
Með alla anga úti allt árið
Listræni stjórnandinn, Ólöf, seg-
ist skipuleggja hátíðina út frá því
efni sem hún vilji að sé flutt og það
stýri því að miklu leyti hverjir komi
fram. Fleira stjórnar þó valinu á
listamönnum. „Mér þykir mikilvægt
að þeir listamenn sem eiga hér for-
feður geti komið í fjörðinn og þrosk-
ast sem listamenn í umhverfi sem
þeim þykir vænt um. Síðan er mikil-
vægt að kynna unga söngvara og
hljóðfæraleikara,“ segir Ólöf og
nefnir Jönu Salóme Ingibjargar-
dóttur söngkonu sem dæmi um unga
listamenn sem stíga á svið í ár.
Hún bætir þó við að öllum sé opið
að sækja um að koma fram á hátíð-
inni. „Ég er alltaf með alla anga úti
allt árið. Ég lifi og hrærist í músík
og maður kynnist fólki á hverjum
degi í þessum geira.“
Passi á hátíðina alla kostar 8.500
krónur en einnig er hægt að kaupa
miða á staka viðburði. Miðasala fer
fram á www.midi.is. Frítt er fyrir 18
ára og yngri og segir Ólöf börn sér-
staklega velkomin á alla tónleikana.
Nánari upplýsingar um dagskrá
Berjadaga á Ólafsfirði má finna á
vefsíðunni www.berjadagar-
artfest.com.
Berjadagar Stór hluti þeirra tónlistarmanna sem koma fram á tónlistarhátíðinni kom saman fyrr í vikunni.
Fagrar listir í mögnuðu umhverfi
Tónlistarhátíðin Berjadagar á Ólafsfirði haldin um verslunarmannahelgina Allt frá óperu
til brasilísks bossanova Listrænn stjórnandi segir hátíðina óvenjufjölbreytta og fjölmenna
Morgunblaðið/RAX
Tónaflóð Elmar Gilbertsson og Ólöf Sigursveinsdóttir við æfingar.
Píanóhönnuðurin og hljóðfæra-
smiðurinn David Klavins stendur
við hljómborð nýjasta hljóðfæris
síns, hins flennistóra M470i lóðrétts
konsertflygils sem hann reisti í
Latvia-tónlistarhúsinu í Ventspils í
Lettlandi. Hæð hljóðfærisins er 470
cm og herma fréttir að um sé að
ræða stærsta lóðrétta píanó sem
smíðað hefur verið. Hljóðfærið
gnæfir yfir höfðum tónleikagesta
eins og þriggja hæða hús og þarf
hljóðfæraleikari að klífa stiga til að
komast upp á pallinn að leika á það.
Heimsins hæsti flygill
AFP
Hátt Þýski hljóðfærasmiðurinn David Klavins stemndur við hljómborð hins
nýja og mikla hljóðfæris síns í tónleikahúsinu í Ventspils í Lettlandi.